Fréttablaðið - 22.04.2009, Side 54
34 22. apríl 2009 MIÐVIKUDAGURNÝTT Í BÍÓ!
SÍMI 462 3500
SÍMI 564 0000
16
16
L
12
L
L
12
L
L
L
CRANK 2: HIGH VOLTAGE kl. 5.50 - 8 - 10
17 AGAIN kl. 5.50 - 8
FAST AND FURIOUS kl. 10
16
L
12
CRANK 2: HIGH VOLTAGE kl. 5.50 - 8 - 10.10
CRANK 2: HIGH VOLTAGE LÚXUS kl. 5.50 - 8 - 10.10
17 AGAIN kl. 3.40 - 5.50 - 8 - 10.20
I LOVE YOU MAN kl. 8 - 10.10
DRAUMALANDIÐ kl. 5.50 - 8
FRANKLÍN & FJARSJÓÐURINN kl.3.50
FAST AND FURIOUS kl. 5.45 - 10.15
MALL COP kl.3.40
BLÁI FÍLLINN kl.3.50
5%
FÆRÐ 5% ENDURGREITT EF ÞÚ BORGAR
BÍÓMIÐANN MEÐ KREDITKORTI
5%
L
12
12
14
L
12
12
14
L
DRAUMALANDIÐ kl. 6 - 8 - 10
STATE OF PLAY kl. 8 - 10.30
BÍÓDAGAR GRÆNA LJÓSSINS 17. APRÍL - 4. MAÍ
TWO LOVERS kl. 8 ísl. texti
BOY A kl. 6 ísl. texti
ME AND BOBBY FISHER kl. 6 ísl. texti
DIE WELLE kl. 6 enskur texti
BIGGER STRONGER FASTER kl. 8 ísl. texti
HUNGER kl. 10 ótextuð
GARBAGE WARRIOR kl. 10 ísl. texti
SÍMI 530 1919
SÍMI 551 9000
12
12
L
7
L
I LOVE YOU MAN kl. 5.50 - 8 - 10.10
FAST AND FURIOUS kl. 5.50 - 8 - 10.10
MALL COP kl. 5.50 - 8 - 10.10
DRAGONBALL kl. 6
MARLEY AND ME kl. 8 - 10.20
300 kr.
UNCUT
Eftir Friðrik Guðmundsson
kl. 3.50
300 kr.
OBSERVE AND REPORT kl. 6 - 8D - 10:10D 16
OBSERVE AND REPORT kl. 4 - 8 - 10:10 VIP
THE UNBORN kl. 8 - 10:10 16
THE UNBORN kl. 6 VIP
17 AGAIN kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:20 L
I LOVE YOU MAN kl. 8 - 10:20 12
PUSH ekki sýning í dag sýnd á morgun kl.5:50 12
MONSTERS VS... m/ísl. tali kl. 3:40(3D) - 5:50(3D) L
MONSTERS ALIENS m/ísl. tali kl. 3:40 - 5:50 L
KNOWING kl. 8 - 10:20 12
CHIHUAHUA m/ísl. tali kl. 3:40 L
BOLT m/ísl. tali kl. 3:40 L
THE UNBORN kl. 6:10 - 8:20 - 10:20 16
OBSERVE AND REPORT kl. 6:10D - 8:20D - 10:20D 16
MONSTERS VS ALIENS m/ísl. tali kl. 6:10(3D) L
LET THE RIGHT ONE IN kl. 8 16
BAADER MEINHOF COMPLEX kl. 10:20 16
I LOVE YOU MAN kl. 8 - 10:20 12
FAST & FURIOUS kl. 8 - 10:20 12
17 AGAIN kl. 8 - 10:10 L
FAST AND FURIOUS kl. 8 12
KNOWING kl. 10:10 12
PUSH kl. 6 12
STATE OF PLAY kl. 8 - 10:20 12
OBSERVE AND REPORT kl. 8 - 10:20 16
MONSTERS VS ALIENS kl. 6 L
Magnaður spennutryllir frá framleiðandanum Michael Bay.
- bara lúxus
Sími: 553 2075
CRANK 2 HIGH VOLTAGE kl. 8 og 10 - POWER 16
STATE OF PLAY kl. 5.30, 8 og 10.30 12
FRANKLÍN - Ísl. tal kl. 6 L
MONSTERS VS. ALIENS 3D kl. 6 Ísl tal L
VILLTU VINNA MILLJARÐ kl. 8 og 10.15 12
MIÐVIKUDAGUR
ER TILBOÐSDAGUR
500 KR
Á A L L A R
M Y N D I R
NEMA ÍSLENSKAR OG 3D MYNDIR
POWERSÝNING
KL. 10.00
SÝND Í 3D
500 kr.
500 kr.
500 kr.
500 kr.
Kvikmyndin Slumdog Milli-
onaire sló í gegn á þessu ári
og fékk nánast öll verðlaun
sem í boði voru. Svo virðist
sem líf barnanna í kvik-
myndinni sé ekki ósvipað
því sem gengur og gerist í
raunveruleikanum.
Í raun má segja að börnin tvö, þau
Rubiana Ali og Ayush Mahesh Khe-
dekar, hafi stolið senunni eftir að
kvikmyndin var frumsýnd því fjöl-
miðlar hafa með reglulegu millibili
greint frá hörmulegum aðstæðum
þeirra í Mumbai. Mannréttinda-
samtök hafa gagnrýnt bæði fram-
leiðendur myndarinnar og leik-
stjórann, Danny Boyle, fyrir að
láta ekki nóg af hendi rakna til
stjarnanna sinna tveggja. Í byrjun
ársins var greint frá því að börnin
tvö byggju enn í hreysum sínum
í Mumbai en þá gripu indversk
stjórnvöld í taumana og fluttu fjöl-
skyldurnar tvær í betra húsnæði.
News of the World mætir
Blaðran sprakk hins vegar endan-
lega þegar breska sunnudagsblað-
ið News of the World greindi frá
því að faðir Rubiönu, smiðurinn
Rafiq Qureshi, hefði verið reiðubú-
inn til að selja dóttur sína til arab-
ísks olíufursta fyrir 200 þúsund
pund eða 39 milljónir íslenskra
króna. Umræddur auðjöfur var
blaðamaður á vegum News of the
World í dulargervi. Fréttin hefur
farið eins og eldur í sinu um netið
og hafa aðstandendur myndarinn-
ar þurft að svara harðri gagnrýni;
hvers vegna eru aðstæður þess-
arar stúlku, sem heillaði heims-
byggðina upp úr skónum á hvíta
tjaldinu, ennþá jafn bagalegar og
raun ber vitni? Rafiq birtist síðan í
viðtali við BBC og sagði það aldrei
hafa komið til greina að selja dótt-
ur sína, slíkt væri fjarstæða. Hann
bætti því við að News of the World
hefði með þessu lymskufulla bragði
sínu haft fátækt að háði og spotti.
Nágrannar Rafiq tóku jafnframt
upp hanskann fyrir hann, sögðu
Rafiq vera góðan mann sem elsk-
aði dóttur sína meira en allt annað.
Jafnframt hafa barnaverndaryfir-
völd á Indlandi gagnrýnt þennan
fréttaflutning News of the World
harðlega og hafa lýst því yfir að
það hafi verið siðferðilega rangt að
blanda hinni ungu Rubiana í málið
og tala við hana.
Sagan fékk á sig óvænta mynd í
gær þegar fjölmiðlar birtu fréttir
af því að líffræðileg móðir Rubiönu
og stjúpmóðir hefðu slegist úti á
götu. Móðir Rubiönu ku hafa orðið
æf þegar hún frétti af sölu dóttur
sinnar en stjúpmóðirin heldur því
fram að hún sé bara á höttunum
eftir peningum.
Danny Boyle svarar fyrir sig
Framleiðendur Slumdog og leik-
stjóri hafa lýst því yfir að þetta
sé allt hið sorglegasta mál. Þessir
aðilar hafa mátt þola mikla gagn-
rýni og sumir hafa bent á að
Slumdog hafi ekki kostað mikið
í framleiðslu, samkvæmt IMDB.
com var framleiðslukostnaður-
inn rétt rúmlega fimmtán millj-
ónir dollara eða tæpir tveir millj-
arðar. Hún hefur hins vegar halað
inn í miðasölu 23 milljarða bæði
í Bretlandi og Bandaríkjunum.
Mannréttindafrömuðir hafa bent
á þessar stjarnfræðilegu tölur og
spurt af hverju hluta af þeim sé
ekki varið til að bjarga bæði Ali
og Khedekar.
Danny Boyle hefur reynt að
svara fyrir sig í fjölmiðlum og í
verki. Nýverið gaf hann, ásamt
framleiðendum myndarinnar, 500
þúsund pund til góðgerðasamtak-
anna Plan sem vinna að því að
bæta lífsviðurværi fátækra barna
í Mumbai. Við þá gjöf sagði einn
forkólfur samtakanna að Slumdog
hefði sýnt hvernig einn sjötti hluti
mannkyns hefði það. Boyle hefur
jafnframt greint frá því að fjöl-
skyldur leikaranna ungu hefðu
kosið að fá peninga í staðinn fyrir
góðan húsakost, þeir peningar séu
hins vegar uppurnir. Rafiq sagði
hins vegar í frétt News of the
World að þær upphæðir sem fjöl-
skylda Rubiönu hefði fengið væru
smáaurar og í engu samræmi við
vinsældir myndarinnar. Boyle
hefur hins vegar margoft lýst því
yfir að bæði Rubiana og Khedeker
hafi verið send í skóla í fyrsta
skipti á ævinni og að þeirra bíði
laun erfiðisins á reikningi merkt-
um þeim.
Hrikalega sorgleg örlög
Slumdog-stjörnu í Mumbai
SAMHENT MÆÐGIN Rubiana Ali ásamt föður sínum, Rafiq Qureshi. Hann vísar því á
bug að hafa reynt að selja dóttur sína til arabísks olíufursta sem reyndist vera blaða-
maður News of the World í dulargervi. NORDICPHOTOS/GETTY
„Eftir það sem hefur gerst á Gasa-
svæðinu undanfarin ár og með
auknum fréttaflutningi er almennt
meiri samstaða meðal fólks,“ segir
Eva Einarsdóttir í félaginu Ísland-
Palestína sem auglýsir hönnunar-
samkeppni um plötuumslag nýrr-
ar safnplötu til stuðnings Gasa.
„Samkeppnin er haldin í sam-
starfi við Félag íslenskra teikn-
ara og hafa einungis félagar
FÍT þátttökurétt, en mynd
Ragnars Freys Rúnarsson-
ar af umslagi síðustu
safnplötu, Frjáls Pal-
estína, hefur verið
tilnefnd til FÍT-
verðlauna og verið
notuð í fjáröflunar-
listasýningu í Syd-
ney fyrir Palest-
ínu,“ útskýrir Eva.
Fimm ár eru síðan platan Frjáls
Palestína kom út og safnaðist þá
tæp milljón sem rann til æsku-
lýðsstarfs í Balata-flóttamanna-
búðunum. Að sögn Evu
verður allur ágóðinn af
væntan legri safnplötu
eyrnamerktur börnum
á Gasa, en platan sem
kemur út í júní hefur
hlotið heitið Inshalla
og að henni koma tón-
listarmenn á borð
við Mugison, FM
Belfast, Sin
fa ng bous ,
Reykjavík!,
Múm, Lay Low,
Skáta, Borko,
Agent Fresco
og Hjaltalín.
„Undir-
tektirnar
frá tónlistar-
mönnum og
öllum sem að
disknum koma
h a fa ver ið
vonum fram-
ar og það sögðu
nánast allir já sam-
stundis. Það er öðruvísi en fyrir
fimm árum þegar maður þurfti að
tala fólk inn á þetta, en eftir þær
hörmungar sem hafa átt sér stað
er fólk ekki hrætt við að bendla sig
við Gasa,“ segir Eva. Skilafrestur
á hugmyndum að plötuumslagi er
til mánudagsins 11. maí en ítarleg-
ar upplýsingar um keppnina er að
finna á www.teiknarar.is. - ag
Samkeppni um plötuumslag
FRJÁLS PALESTÍNA Mynd Ragnars Freys
Rúnarssonar af umslagi plötunnar Frjáls
Palestína hefur vakið mikla athygli og
verið notuð í auglýsingaherferð fyrir
Palestínu í Ástralíu.
MIKIL SAMSTAÐA Eva
Einarsdóttir í félaginu
Ísland-Palestína segist
finna mikinn samhug
meðal fólks eftir þær
hörmungar sem áttu sér
stað á Gasasvæðinu í kring-
um síðustu áramót.