Fréttablaðið - 22.04.2009, Page 56
36 22. apríl 2009 MIÐVIKUDAGUR
sport@frettabladid.is
Kynntu þér málið hjá sölumönnum Eirvíkur
Íslenskt stjórnborð - Stórt hurðarop
Íslenskar leiðbeiningar - 20 ára ending
Miele þvottavélar hafa verið framleiddar í yfir hundrað ár.
Miele þvottavélar eru framleiddar til að endast.
Þvottavélar - Verð frá kr. 154.995
Þurrkarar - Verð frá kr. 129.995
TILBOÐ
Sparaðu
með Miele
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Sími 588 0200 | www.eirvik.is
Ekkert verður af því að landsliðsmaðurinn Sverre Andreas Jakobsson
gangi í raðir þýska félagsins Fuchse Berlin. Félagið hefur í langan
tíma haft áhuga á Sverre en nú er endanlega útséð með að ekkert
verði af því að hann fylgi Rúnari Kárasyni og Degi Sigurðssyni til
félagsins.
„Ég get víst kysst það bless. Dagur er búinn að staðfesta
það við mig. Það þarf eitthvað mjög óvænt að gerast ef ég á
að fara þangað, sem er miður enda afar spennandi dæmi,“
sagði Sverre. Ástæðan sem Sverre var gefin upp er sú að
félagið ætlaði að kaupa færri leikmenn en upphaflega
stóð til. Kreppan bítur í Berlín rétt eins og í Reykjavík.
Sverre var einnig undir smásjánni hjá danska félaginu
GOG en ekkert verður af því að hann fari þangað enda
fjárhagsstaða félagsins slæm. Leikmenn þurftu að taka á
sig launalækkun og engar danskar krónur í bauknum fyrir
nýjum leikmönnum.
„Það voru smá þreifingar með GOG og fór ekkert á alvar-
legt stig. Þurfti heldur ekki að koma á óvart enda fjárhagurinn
þar enn verri en hjá mörgum,“ sagði Sverre.
Það er þó ekki loku skotið fyrir að Sverre Andreas fari til
Þýskalands eftir allt saman en tvö þýsk úrvalsdeildarlið eru í
viðræðum við varnartröllið ljúfa þessa dagana.
„Ég er með tilboð frá Magdeburg en það má eiginlega
segja að það sé hálfgert krepputilboð. Þetta er allt í lagi
tilboð en það þarf meira til að maður flytji úr landi,“
sagði Sverre sem er í góðri vinnu hjá Landsvirkjun og
ánægður á Íslandi.
„Maður segir ekki upp góðri vinnu fyrir þetta
tilboð. Svo hef ég aðeins verið að heyra frá
Grosswallstadt en þeir vilja samt líklegast ekki fá
mig fyrr en sumarið 2010,“ sagði Sverre en með
Grosswallstadt leikur félagi hans í landsliðinu,
Einar Hólmgeirsson.
„Það er smá óvissa með hvað þeir
nákvæmlega vilja gera en það skýrist von-
andi á næstu dögum. Svo gæti þetta breyst
allt fljótlega. Maður veit aldrei þessa dagana,“ sagði
landsliðsmaðurinn Sverre Andreas Jakobsson.
SVERRE ANDREAS JAKOBSSON: FER EKKI TIL BERLÍNAR EN GÆTI SAMT VERIÐ Á LEIÐ TIL ÞÝSKALANDS
Áhugi hjá bæði Magdeburg og Grosswallstadt
> Snæfell vill fá Inga Þór
Körfuknattleiksdeild Snæfells hefur boðið Inga Þór
Steinþórssyni að taka við karla- og kvennaliði félagsins.
Ingi Þór staðfesti við Fréttablaðið í gær að það væri búið
að bjóða honum starfið og hann sagðist bíða
eftir samningstilboði úr Hólminum. Ingi Þór
er fyrrverandi þjálfari KR og gerði liðið að
Íslandsmeistara á sínum tíma. Hann var
síðan aðstoðarmaður Benedikts Guð-
mundssonar í vetur og þeir félagarnir
skiluðu stóra titlinum í hús. Ingi
Þór neitaði því ekki að hann hefði
áhuga á starfinu hjá KR sem er
laust eftir að Benedikt hætti en
sagði KR-inga ekkert hafa rætt
við sig.
N1-deild kvenna
Fram-Haukar 34-32 (29-29/14-19)
Mörk Fram: Stella Sigurðardóttir 10/6 (18/7),
Karen Knútsdóttir 7 (8), Ásta Birna Gunnarsdóttir
5 (7), Þórey Rósa Stefánsdóttir 4 (7), Hildur
Knútsdóttir 3 (3), Guðrún Þóra Hálfdánsdóttir 2
(2), Anett Köbli 2 (8/1), Marthe Sördal 1 (3)
Varin skot: Sunneva Einarsdóttir 21/2 (52/4
40,4%), Brynja Þorsteinsdóttir (1/1 0%)
Hraðaupphlaup: 7 (Karen 2, Þórey, Hildur, Mart-
he, Stella, Ásta)
Fiskuð víti: 8 (Karen 4, Hildur 2, Marthe, Ásta)
Mörk Hauka: Hanna Guðrún Stefánsdóttir 13/3
(16/5), Ramune Pekarskyte 8 (20), Nína Kristín
Björnsdóttir 4 (10/1), Nína Arnfinnsdóttir 3 (3),
Ester Óskarsdóttir 3 (6), Erna Þráinsdóttir 1 (1),
FÓTBOLTI Liverpool sá á bak tveim-
ur mikilvægum stigum í gærkvöld
þegar liðið fékk Arsenal í heim-
sókn á Anfield. Leikurinn hreint
stórkostleg skemmtum, miklar
sveiflur, átta mörk og lokatölur 4-
4. Sömu tölur og í Meistaradeildar-
leik Liverpool og Chelsea í síðustu
viku. Ekki hægt að kvarta yfir
skemmtanagildinu í leikjum Liver-
pool þessa dagana.
Liverpool var betra liðið í fyrri
hálfleik en Arshavin skoraði eina
mark hálfleiksins. Sá átti síðar
eftir að minna á sig í leiknum.
Liverpool mætti enn grimmara til
leiks í síðari hálfleik og Fernando
Torres jafnaði leikinn fyrir heima-
menn á 49. mínútu.
Yossi Benayoun kom Liver-
pool yfir á 56. mínútu og héldu þá
margir að Liverpool væri komið á
beinu brautina. Andrey Arshavin
var ekki þeirra á meðal. Hann
jafnaði leikinn fyrir Arsenal á 67.
mínútu og kom liðinu yfir þrem
mínútum síðar.
Liverpool bugaðist ekki frekar
en oft áður og Fernando Torres
jafnaði leikinn fyrir Liverpool
aðeins tveim mínútum síðar, 3-3.
Arshavin fullkomnaði fernuna á
90. mínútu en Benayoun bjargaði
stigi fyrir Liverpool er hann jafn-
aði á ný þegar þrjár mínútur voru
komnar fram yfir venjulegan leik-
tíma,
Liverpool er nú komið á toppinn
með jafnmörg stig og Man. Utd en
með betri markatölu. Liðið hefur
aftur á móti leikið tveimur leikjum
meira en meistararnir, sem spila
gegn Portsmouth í kvöld.
„Þetta var gæðaleikur af beggja
hálfu í kvöld,“ sagði Arsene
Wenger, stjóri Arsenal, eftir leik-
inn. „Bæði lið gáfu allt sem þau
áttu. Maður er náttúrlega ekki full-
komlega sáttur er liðið manns fær
á sig fjögur mörk. Frammistaða
Andrey Arshavin var stórkostleg.
Hann er alltaf hættulegur, mikill
karakter og sigurvegari.“
Rafael Benitez, stjóri Liverpool,
var eðlilega svekktur enda veit
hann sem er að vonin um titilinn
minnkaði mikið með þessu jafn-
tefli. „Við gerðum of mörg mistök
í þessum leik. Það er að sama skapi
jákvætt að liði sýndi karakter allt
fram á síðustu mínútu. Við náðum
í stig gegn góðu liði og erum á
toppnum. United er vissulega í
ökumannssætinu en við munum
halda áfram að þjarma að þeim.
Það getur allt gerst í fótbolta,“
sagði Benitez. henry@frettabladid.is
Ferna Arshavin dugði ekki
Rússinn Andrey Arshavin fór á kostum á Anfield í gær og skoraði fjögur mörk
gegn Liverpool. Það dugði ekki til sigurs fyrir Arsenal því Liverpool skoraði
einnig fjögur mörk. Liverpool missti af tveimur dýrmætum stigum.
LYGILEG FRAMMISTAÐA Andrey Arshavin heldur hér fjórum puttum á lofti eftir að
hafa skorað sitt fjórða mark fyrir Arsenal í gær. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
HANDBOLTI Fram er komið í úrslit
í N1-deild kvenna eftir að liðið sló
út deildarmeistara Hauka í fram-
lengdum leik í gær, 34-32. Odda-
leik þarf til hjá Val og Stjörnunni
en Valur vann fimm marka sigur í
gær, 28-23.
Fram lék frábærlega í síðari
hálfleik venjulegs leiktíma og
knúði fram framlengingu með
marki Guðrúnar Hálfdánardóttur
40 sekúndum fyrir leikslok.
Haukar voru einu marki yfir að
lokinni fyrir hálfleiks framleng-
ingarinnar, 30-31, en Fram skor-
aði fjögur síðustu mörk leiksins og
tryggði sér sigur, 34-32.
„Ég hugsa að margir hafa búist
við að Haukar myndu klára þetta.
Þær spiluðu frábærlega í vetur
og við spiluðum ekki eins vel og á
síðustu leiktíð í deildarkeppninni
en við vorum alltaf með í þessari
keppni og ég vissi hvað þetta lið
getur. Þetta eru sigurvegarar úr
yngri flokkum,“ sagði Einar Jóns-
son þjálfari Fram, í leikslok.
„Sunneva varði frábærlega í
seinni hálfleik og framlengingu og
tekur gríðarlega mikilvæga bolta.
Átján ára tappi að spila eins og ég
veit ekki hvað. Hún var léleg í fyrri
hálfleik en rífur sig svo upp og
klárar þennan leik. Við vorum með
lausnir við öllu sem þær gerðu. Við
keyrðum á gríðarlega háu tempói
báða þessa leiki, algjörlega með-
vitað. Við erum í miklu betra formi
en þetta Haukalið og þær sprungu
bara, ég er sannfærður um það.
Hanna er þindarlaus og gerði
okkur lífið leitt en aðrar sprungu,“
sagði Einar.
„Það voru allir með það á hreinu
að við myndum vinna þennan leik,“
sagði kampakátur þjálfari Fram
sem vonast eftir einvígi Reykja-
víkurliða Vals og Fram í úrslitum,
bæði í karla- og kvennaflokki.
- gmi
Fram komið í úrslit en oddaleik þarf til hjá Val og Stjörnunni:
Taugar og úthald Fram var betra
HARKA Ramune Pekarskyte fer hér í háls Ástu Birnu Gunnarsdóttur. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Varin skot:Bryndís Jónsdóttir 4/1 (15/5 26,7%),
Heiða Ingólfsdóttir 11(34/2 32,4%)
Hraðaupphlaup: 5 (Hanna 3, Nína A., Nína K.)
Fiskuð víti: 7 (Nína A. 2, Ester 2, Nína K. 2,
Hanna)
Valur-Stjarnan 28-23 (13-10)
Mörk Vals: Hrafnhildur Skúladóttir 9, Eva Barna 8,
Hildigunnur Einarsdóttir 3, Íris Ásta Pétursdóttir
3, Guðrún Drífa Hólmgeirsdóttir 2, Berglind Íris
Hansdóttir 1, Dagný Skúladóttir 1, Ágústa Edda
Björnsdóttir 1.
Mörk Stjörnunnar: Alina Petrache 11, Elísabet
Gunnarsdóttir 5, Kristín Jóhanna Clausen 3,
Harpa Sif Eyjólfsdóttir 2, Sólveig Lára Kjærnested
1, Þorgerður Atladóttir 1.