Fréttablaðið - 22.04.2009, Síða 62
42 22. apríl 2009 MIÐVIKUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
LÁRÉTT
2. ílát, 6. 999, 8. aðstoð, 9. lærir, 11.
mun, 12. harmur, 14. safna saman,
16. karlkyn, 17. fúadý, 18. sníkjudýr,
20. þys, 21. fyrirhöfn.
LÓÐRÉTT
1. langar, 3. verkfæri, 4. eyja í Mið-
jarðarhafi, 5. svelg, 7. raf, 10. er, 13.
útdeildi, 15. skrambi, 16. nögl, 19. átt.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. vasi, 6. im, 8. lið, 9. les,
11. ku, 12. tregi, 14. smala, 16. kk, 17.
fen, 18. lús, 20. ys, 21. ómak.
LÓÐRÉTT: 1. vilt, 3. al, 4. sikiley, 5.
iðu, 7. merskúm, 10. sem, 13. gaf, 15.
ansi, 16. kló, 19. sa.
BESTI BITINN Í BÆNUM
„Ég er búin að fara núna
þrisvar á einni viku að fá mér
sushi á Nings. Það er alveg æðis-
legt, hollt og gott og hentar vel
þegar maður hefur lítinn tíma
til að borða. Þetta er eiginlega
það eina sem maður leyfir sér
núna.“
Guðrún Árný Karlsdóttir söngkona
„Það er námsmannastemning
á okkar heimili. Heldur betur,“
segir Logi Bergmann sjónvarps-
maður.
Logi vinnur nú hörðum hönd-
um að lokaverkefni sínu í stjórn-
málafræði við Háskóla Íslands
og kona hans, Svanhildur Hólm
Valsdóttir, er að skrifa kandíd-
atsritgerð í lögfræði. Lokaverk-
efni Loga er um kosningahegðun
og hefur hann sent nemendum við
háskólann könnun þar að lútandi.
Hann stefnir að því að útskrifast
um næstu áramót en á auk loka-
verkefnisins ólokið tveimur próf-
um sem hann er að taka núna.
„Þetta hefur tekið langan tíma.
Ekki kjöraðstæður að vera í skóla
akkúrat núna. Það er mikið að
gera,“ segir Logi sem nú undirbýr
kosningaþátt sem verður á laugar-
dagskvöld. Þó Logi sé nú með nefið
ofan í námsbókunum verður þátt-
urinn ekki fræðilegur. „Þar verð-
ur glaumur og gleði og í raun lítil
pólitík,“ segir Logi. Hann gerir
létt grín að því hversu lang-
an tíma námið hefur tekið
en það eru um fimmtán ár
síðan hann hóf það. Hann
hefur lent í ýmsum vanda-
málum í tengslum við það.
„Já, þetta er algjört rugl. Var
að gaufa við þetta með vinnu.
Tók mér svo hlé en kom sterk-
ur inn aftur. En þetta er varla
sama stjórnmálafræðin sem ég
er að læra núna og var þegar ég
byrjaði. Ég get þó huggað mig
við það að Sovétríkin voru ekki
lengur til þegar ég byrjaði. Ég
rétt missti af þeim.“
Það vinnur svo á móti að starf
Loga sem fréttamaður hefur nýst
honum vel við námið. - jbg
Logi rannsakar kosningahegðun
LOGI BERGMANN Sér nú fyrir endann á
stjórnmálafræðinámi sínu og útskrif-
ast, ef Guð lofar, um næstu áramót.
Þrátt fyrir að kvennahljóm-
sveitin Elektra, með
þær Hara-systur
í broddi fylkingar,
hafi ekki náð
eins langt í
Eurovision-
keppninni og
vonir stóðu
til meðal
aðstandenda er hljómsveitin síður
en svo af baki dottin. Í gærkvöldi var
hún í stúdíói við tökur á nýju lagi
eftir Dr. Gunna „allstaðar” við eigin
texta en upptökustjórn var í hönd-
um einskis annars en Örlygs Smára.
Þórarinn Þórarinsson fréttastjóri DV
var með frekar neyðarlega yfirlýs-
ingu á Facebook-síðu sinni nýverið,
á þessa leið: „Vörutorg vill vera
Facebook-vinur minn. Þótt ég sé
desperat segi ég nei takk.“ Í
athugasemd kom skömmu
síðar orðsending frá Jakob-
ínu Davíðsdóttur blaða-
manns að Þórarni bæri
að tala varlega því
eigandi Vörutorgs
væri frændi hennar
Davíð Smári
– sem þá kemur víða við samkvæmt
því. Davíð vakti fyrst athygli í Idol-
keppninni sem tröllvaxinn söngvari,
söðlaði svo algerlega um, skar sig
niður og gerðist einkaþjálfari í kjöl-
farið. Og nú er það Vörutorgið.
Búast má við því að margur tromm-
arinn sé spenntur því einhver helsti
trymbill íslenskrar tónlistarsögu,
sjálfur Pétur Östlund, ætlar að vera
með sýnikennslu í Hljóðfærahúsinu/
Tónabúðinni í Síðumúla á laugar-
daginn næsta. Pétur gerði garðinn
frægan með Hljómum á sjöunda
áratugnum en fluttist svo til Svíþjóð-
ar þar sem hann hefur starfað með
fjölda heimsþekktra tónlistarmanna
svo sem „Zoot” Sims, Clark
Terry, „Toots“ Thielemans
og Niels-Henning Örsted
Pedersen svo aðeins
brot sé nefnt. Pétur
kennir nú trommuleik
við Tónlistarháskólann
í Örebro í Svíþjóð.
- jbg
FRÉTTIR AF FÓLKI
„Ég held að þetta sé rétti vettvangurinn fyrir
Egil Einarsson að koma þarna og sýna að
hann sé verðugur landsliðsfyrirliði og lands-
liðsþjálfari Íslands í póker,“ segir Ólafur
Helgi Þorkelsson, formaður mótanefndar
Pókersambands Íslands. Pókersambandið
blæs til mikillar veislu um kosningahelgina
þegar mótaröð á vegum þess heldur áfram á
skemmtistaðnum Gullöldinni. Fimmtíu fram-
bærilegir spilarar hafa skráð sig til leiks.
Ólafur upplýsir að nokkur sæti séu laus. Eins
og Fréttablaðið greindi frá í vikunni stendur
mikill styr á milli Pókersambandsins og Egils
„Gillzeneggers“ Einarssonar um þær yfir-
lýsingar kraftajötunsins að hann sé fyrirliði
landsliðsins í póker. Ólafur Helgi telur að
Egill geti sannað á mótinu um helgina að hann
verðskuldi þá titla sem hann slái um sig með
og býðst til að greiða þátttökugjaldið fyrir
Egil.
Og Egill sjálfur tekur ekki illa í til-
boðið. „Þetta er athyglisvert. Ég þarf
reyndar að skila spólu á laugardaginn
en þetta er alveg þess virði að skoða,“
segir Egill og því ljóst að pókeráhuga-
menn gætu hugsanlega orðið vitni
að sögulegum viðburði. Egill segir
að umræðan um landsliðsfyrirliða-
tign sína hafi farið í taugarn-
ar á sér og hann gefi lítið
fyrir yfirlýsingar fiskanna
hjá PSÍ. En að sögn Egils
er hugtakið „fiskar“ notað
yfir lélega pókerspilara í
pókerheimum. „Ég ætla
að íhuga þetta, það getur
bara vel verið að ég komi
þarna og kenni þessum
körlum hvernig á að spila
póker.“ - fgg
Pókersambandið skorar á Gillzenegger
STÁL Í STÁL Ólafur Helgi Þorkelsson
vill ólmur bjóða Agli Einarssyni á
mótaröð Pókersambands Íslands.
Egill ætlar að íhuga tilboðið og
viðurkennir að það sé freistandi að
sýna „fiskunum“ hvernig eigi að spila
þennan leik.
Kvikmyndafyrirtækið ZikZak
hefur keypt kvikmyndaréttinn að
barnabók Kristínar Helgu Gunn-
arsdóttur, Draugaslóð. Bókin fékk
frábæra dóma þegar hún kom út
fyrir tveimur árum síðan.
Ottó Geir Borg hefur ráðinn til
að skrifa handritið eftir bókinni og
hann segist vera himinlifandi með
verkefnið. „Þessi bók á allt það lof
sem hún hefur fengið skilið, hún
er alveg frábær,“ segir Ottó sem
var staddur heima hjá sér í Mos-
fellsbæ með nýfæddan son sér við
hlið þegar Fréttablaðið ræddi við
hann.
Ottó skrifaði handritið að Ast-
rópíu ásamt Jóhanni Ævari Gríms-
syni og handritið að Gauragangi,
sem er í undirbúningi, ásamt
Gunnari Birni Guðmundssyni.
Hann kveðst þó ekki vera á góðri
leið með að verða að átrúnargoði
hjá ungu fólki í ljósi þess að mynd-
irnar þrjár voru og eru hugsaðar
fyrir ungt fólk. „Nei, ég held að
kubbslegur náungi í Mosó sé ekk-
ert sérstaklega vel til þess fall-
inn að verða átrúnargoð hjá yngri
kynslóðinni. Ég held að menn þurfi
að hafa útlitið með sér til að vera
sæmdir slíkri nafnbót.“
Ottó kann litlar skýringar á því
hvers vegna barnabækur hafa ekki
verið vinsælt kvikmyndafóður á
Íslandi. Upptalning á þeim barna-
bókum sem hafa ratað á hvíta
tjaldið er ekki löng, helst má nefna
Benjamín Dúfu og að sjálfsögðu
Jón Odd og Jón Bjarna. „Ég held
að menn hafi einblínt of mikið á
áhorfendur og hugsað í listrænum
og flottum myndum. Það er nefni-
lega líka allt í lagi að gera bara
skemmtilegar myndir,“ útskýr-
ir Ottó og það má til sanns vegar
færa. Kvikmyndir fyrir börn og
unglinga hafa nefnilega notið tölu-
verðrar hylli í kvikmyndahúsum
borgarinnar, þegar þær á annað
borð rata þangað.
Handritshöfundurinn viðurkenn-
ir að það sé ekki létt verk að koma
barnabók yfir í kvikmyndaformið.
En bætir því við að þetta sé þó eitt
það skemmtilegasta sem hann hafi
gert. „Það er ekkert auðvelt fyrir
mann í 36 ára gömlum líkama að
skrifa fyrir börn. Að sama skapi
er skemmtilegra að búa til ævin-
týraheim fyrir börn því þau eiga
miklu auðveldara með að meðtaka
hann. Fullorðnir geta oft verið svo
skeptískir og vantrúa.“
freyrgigja@frettabladid.is
OTTÓ GEIR BORG: EKKI BEINT ÁTRÚNAÐARGOÐ HJÁ YNGRI KYNSLÓÐINNI
DRAUGASLÓÐ KRISTÍNAR
HELGU Á HVÍTA TJALDIÐ
SKEMMTILEGASTA VERKEFNIÐ Ottó Geir Borg er að skrifa handrit eftir bók Kristínar
Helgu Gunnarsdóttur, Draugaslóð. Hann segir þetta eitt skemmtilegasta verkefni sem
hann hafi fengist við. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
ATH ERUM ALDREI FISKLAUSIR
NÝR RAUÐMAGI
GLÆNÝ STÓRLÚÐA
LÚÐUHAUS
GELLUR OG KINNAR