Morgunblaðið - 25.10.2008, Blaðsíða 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. OKTÓBER 2008
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@mbl.is
FJÁRÖFLUNARTEKJUR sumra aðild-
arfélaga Öryrkjabandalags Íslands, ÖBÍ, hafa
minnkað um 20 til 30 prósent frá því í sept-
ember. Halldór Sævar Guðbergsson, formaður
ÖBÍ, kveðst hafa áhyggjur af rekstri félaga
bandalagsins almennt þar sem flest þeirra
treysti mikið á stuðning almennings og fyr-
irtækja.
„Þar sem ég þekki best til, það er hjá Blindra-
félaginu, koma 80 prósent teknanna í gegnum
fjáröflun eða eigin rekstur. Nú er mikill óvissu-
tími og menn þurfa væntanlega að setja sig í
stellingar til þess að endurskipuleggja fjáröfl-
unarstarfsemina,“ segir Halldór.
Býst við minni tekjum
Hann telur að félagasamtök hafi í minna mæli
en íþróttafélög verið með stóra styrktarsamn-
inga. Almennt hafi líknarfélög sótt meira til al-
mennings vegna styrkja, til dæmis með happ-
drættismiðum og styrktarfélögum. „Þær tekjur
minnka mögulega enn meir þegar harðnar á
dalnum.“
Til þess að fara yfir stöðu mála hefur Halldór
sent aðildarfélögum ÖBÍ bréf þar sem hann bið-
ur um upplýsingar um hagi þeirra, meðal annars
upplýsingar um hvort þau hafi átt hlutabréf eða
inneign í peningamarkaðssjóðum.
Með fé í peningamarkaðssjóðum
„Ég er búinn að fá nokkur svör og af þeim
virðist sem menn hafi ekki verið á hlutabréfa-
markaði. Það er hins vegar eitthvað um að menn
hafi verið með fé í sjóðum. Mönnum var ráðlagt
að það væri jafngott og að geyma varasjóðina á
bankabók. Aðgengið að þeim væri auk þess
betra en að verðtryggðum bókum sem væru
bara opnar á ákveðnum tímum.“
Halldór á fastlega von á því að þeim fé-
lagsmönnum sem leita til aðildarfélaganna vegna
erfiðrar fjárhagsstöðu eigi eftir að fjölga. „Verð
hefur verið að hækka og það kemur verst niður á
þeim sem hafa lítið á milli handanna. Það hefur
verið erfitt fyrir öryrkja á strípuðum bótum að láta
enda ná saman og það verður enn erfiðara nú.“
Tekjurnar minnkað um 30 prósent
Fjáröflunartekjur sumra aðildarfélaga ÖBÍ hafa minnkað um 20 til 30 prósent Nær allar
tekjur sumra félaga fást með fjáröflun Sum eru með fé í peningamarkaðssjóðum
Í HNOTSKURN
»Öryrkjabandalag Íslandssafnar nú upplýsingum
um stöðu aðildarfélaganna í
því skyni að verja hag ör-
yrkja og sjúklinga.
»Bregðast á við í samræmivið þau svör sem berast.
»Aðildarfélög Ör-yrkjabandalagsins eru 32
og hafa flest þeirra treyst á
stuðning einstaklinga og fyr-
irtækja í miklum mæli.
»Nær allar tekjur sumrafélaganna fást með ýmiss
konar fjáröflun, til dæmis
happdrætti.
Morgunblaðið/Frikki
Áhyggjufullur Halldór Sævar Guðbergsson,
formaður ÖBÍ, segir vandann mikinn.
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
VEL gekk að bjarga togaranum
Lómi II af strandstað við smá-
bátahöfnina í Kópavogi í gær eftir
að skipið hafði slitnað frá bryggju
við Kópavogshöfn í veðurofsanum
í fyrrinótt. Starfsmenn Köfunar-
þjónustunnar ehf. voru kallaðir til
bjargar og sagði Alexander Stef-
ánsson, framkvæmdastjóri fyr-
irtækisins, að fyrri tilraun til að
ná skipinu á flot á flóðinu aðfara-
nótt föstudags hefði ekki rúmast
innan þess tímaramma sem árdeg-
isflóðið gaf. Þá þegar hafði hann
vaktað skipið drjúga stund og
metið aðstæður frá fyrsta útkalli.
„Vindstrengurinn var þvert á
skipið og bryggjuna með þeim af-
leiðingum að skipið sleit af sér
alla spotta að aftan og hékk í
tveimur að framan þegar hringt
var í okkur,“ sagði hann. Þegar
Alexander mætti á staðinn slitn-
uðu festarnar svo að framan og
skipið fór á rek. Stöðvaðist það við
smábátahöfnina í leðjubotni. „Það
var gengið strax í að koma taug-
um um borð og snúa stefni skips-
ins upp í vindinn, jafnvel að toga
það aðeins af stað en það reyndist
ekki tími til þess á flóðinu í [fyrri-
]nótt.“
Reynt var aftur á síðdegisflóð-
inu í gær og þá gekk allt upp eins
til var ætlast. Var sver kaðall
tengdur úr skipinu í 50 tonna
gröfu og 35 tonna jarðýtu klukkan
14.30. Losnaði skipið þá og var
dregið að bryggju.
Að sögn Alexanders tóku um 10
manns þátt í björguninni. Hugs-
anlega þarf að kafa niður með
skipinu til að athuga með
skemmdir.
Alexander segir að menn hafi
óttast aðeins að skipið færi á hlið-
ina á strandstað á fjörunni. Þess
vegna var settur spotti á stjórn-
borðssíðu skipsins til öryggis. „Við
hjá Köfunarþjónustunni þekkjum
þessa höfn mjög vel og vissum að
skipið sæti í leðju. Við vissum að
það myndi ekki nást upp nema
með rétta búnaðinum.“
Kraftar Taka þurfti duglega á því til að kippa Lómi II af strandstað á síðdegisflóðinu í gær og voru stórvirkar vinnuvélar notaðar til starfans.
Lómur sleit af sér allar
taugar og rak á land
Vel gekk að ná togaranum af strandstað í Kópavogi í gær
Utanríkisráðuneytið óskar eftir
staðfestum upplýsingum um tilvik
þar sem Íslendingar hafa orðið fyr-
ir óþægindum eða ósanngjarnri
meðferð erlendis, vegna ástandsins
í efnahagsmálum. Ráðuneytið legg-
ur ríka áherslu á að fá upplýsingar
frá fyrstu hendi og eru viðkomandi
hvattir til að senda tölvupóst á net-
fangið borgarathjonusta@utn-
.stjr.is um tilgreind atvik.
Markmið ráðuneytisins með
þessu er að safna saman upplýs-
ingum um atvik af þessu tagi til
þess að hægt sé að fá skýra mynd af
þeim vandamálum sem að almenn-
ingi steðja erlendis í beinum
tengslum við núverandi aðstæður
og bregðast við eftir atvikum.
Slæm meðferð
á Íslendingum
Ferðaskrifstofa
Borgarlottó
Dublin Verð frá:30.okt. – 4nætur
49.900kr.
Á mann miðað við 2 í herbergi í 4 nætur. Flug og gisting,
morgunverður, flugvallaskattar og íslensk fararstjórn.
Þú velur áfangastaðinn en tekur þátt í lottóinu
um hvaða gistingu þú lendir á. Viku fyrir brottför
staðfestum við á hvaða gististað þú ferð!
Fyrstur kemur, fyrstur fær.
Nánari upplýsingar og bókanir
á www.plusferdir.is
VEÐURSTOFAN gaf í gærkvöldi
út viðvörun um að búist væri við
norðanstórhríð norðanlands með
norðvestan 18-25 m/s. Snjóflóða-
deild Veðurstofunnar lýsti yfir við-
búnaðarstigi vegna snjóflóðahættu
norðanlands.
Víða um land var ófært eða þæf-
ingsfærð vegna stórhríðar eða
skafrennings. Varað var við hálku
og éljagangi og fólk minnt á að
kanna vel stöðuna áður en farið
væri af stað.
Brjálað veður