Morgunblaðið - 25.10.2008, Blaðsíða 18
18 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. OKTÓBER 2008
Framkvæmdastjóri mannauðsmála hjá Alcoa Fjarðaáli,
Steinþór Þórðarson, var að vonum ánægður í gær þeg-
ar fyrirtækinu var veitt viðurkenning Jafnréttisráðs á
sviði jafnréttismála. „Tæplega þriðjungur starfsmann-
anna 450 er konur og við bindum vonir við að ná enn
jafnari kynjahlutföllum.“
Nú eru 28 prósent starfsmannanna konur, 34 prósent
í framleiðslustörfum og 27 prósent í framkvæmda-
stjórn. „Þetta er besti árangur í jafnréttismálum sem
náðst hefur innan Alcoa samsteypunnar og líkur á að
um heimsmet í áliðnaðinum sé að ræða,“ sagði Jóhanna
Sigurðardóttir félagsmálaráðherra þegar hún afhenti
viðurkenninguna. Steinþór segir að gripið hafi verið til
sérstakra aðgerða til þess að laða konur að fyrirtæk-
inu. „Við efndum til dæmis til sérstaks kvennadags
haustið 2006. Þá komu 300 konur í heimsókn og þetta
skilaði fjölmörgum umsóknum. Í auglýsingum er einn-
ig bent á að störfin í álverinu henti jafnt konum sem
körlum.“
Það er stefna Fjarðaáls að starfsmenn endurspegli
samfélagið, að sögn Steinþórs. Æskilegt þykir að öll
störf henti jafnt konum sem körlum auk þess sem stefnt
er að góðri aldursdreifingu. „Konurnar sem starfa hér
eru á öllum aldri, alveg eins og karlarnir.“
Í álverinu Fjöldi kvennanna þar er líklega heimsmet í áliðnaðinum.
Jafnréttisviðurkenning til Fjarðaáls
Nýtt og
ferskara
helgarblað
Njóttu sunnudagsins til fulls.
Tryggðu þér áskrift á mbl.is eða
í síma 569 1100
Góð helgi
framundan
Björgólfur
Guðmundsson
svarar fyrir sig
Ítarlegt viðtal við fyrrverandi
eiganda Landsbankans í nýja
sunnudagsmogganum
Vald FME
Neyðarlögin og gerræðislegt
vald Fjármálaeftirlitsins
og skilanefnda
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
2
7
5
0
5
Bókaútgáfan Opna - Skipholti 50b - 105 Reykjavík - sími 578 9080 - www.opna.is
Nýjasta bókin eftir Íslandsvininn
David Attenborough
er komin!