Morgunblaðið - 25.10.2008, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 25.10.2008, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. OKTÓBER 2008 Einar Sigurðsson. Ólafur Þ. Stephensen. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Útlitsritstjóri: Árni Jörgensen. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Ákvörðunrík-isstjórn- arinnar um að fara fram á að- stoð Alþjóða- gjaldeyrissjóðs- ins (IMF) mun stuðla að því að hægt verði að end- urheimta traust íslenzks efnahagslífs, bæði hér heima fyrir og á alþjóða- vettvangi. Langt er síðan ríkt, vest- rænt ríki hefur þurft að leita á náðir sjóðsins. En það er líka langt síðan ríkt, vestrænt ríki hefur lent í öðrum eins fjármálahremm- ingum og Ísland hefur geng- ið í gegnum. Það er engin skömm að því að leita til sjóðsins; það sýnir þvert á móti að Ísland er reiðubúið að nýta sér reynslu annarra ríkja sem hafa lent í svip- uðum hremmingum og vinna með öðrum ríkjum að því að endurreisa efnahag landsins. Við áttum ekki aðra kosti í núverandi stöðu en að leita til sjóðsins. Vinaríki, sem voru reiðubúin að aðstoða Ísland, gerðu þátttöku sjóðsins í björgunar- aðgerðum að skilyrði fyrir því að lána okkur fé. Sjóð- urinn er í því hlutverki að afla upplýsinga fyrir hönd þessara ríkja og stilla, í samstarfi við íslenzk stjórn- völd, upp raunhæfri áætlun um hvernig á að komast út úr erfiðleikunum. Það, sem vitað er um þá efnahagsáætlun, bendir ekki til að sjóðurinn setji Ís- landi neina afarkosti, heldur inniheldur hún aðgerðir sem við hefðum þurft að grípa til hvort sem er. Sumar þeirra fela klárlega í sér að við þurfum að færa fórnir – en bjóst einhver við öðru eins og staða okkar er orðin? Fljótlega verður reynt að koma gjaldeyrismarkaðnum í samt horf. Ráða má af um- mælum fulltrúa IMF að til að byrja með verði ein- hverjar hömlur á gjaldeyr- isviðskiptum. Enn fremur má búast við því að Seðla- bankinn verði að fylgja mjög aðhaldssamri pen- ingastefnu, jafnvel hækka vexti á ný, til að koma í veg fyrir fjármagnsflótta úr landinu, sem myndi enn grafa undan gengi krón- unnar. Það verður ekki auð- velt verkefni að tryggja stöðugleika krónunnar. Á blaðamannafundi full- trúa IMF í gær kom fram að ríkissjóður yrði rekinn með halla næstu tvö árin til að koma hjólum atvinnulífsins á snúning, en síðan þyrfti að ná jafn- vægi á ný. Það mun kosta erfiðar ákvarðanir; ann- aðhvort verður að skera nið- ur í opinberum útgjöldum eða hækka skatta. Á tímum þegar fólk og fyrirtæki þurfa hvatningu til að vinna og vaxa, er skattahækk- unarleiðin ekki vænleg til árangurs. Við munum frek- ar þurfa að sætta okkur við samdrátt í opinberum um- svifum um tíma. Hraðari vöxtur í atvinnulífinu mun svo í framtíðinni skila meiri skatttekjum. Með erlendum lántökum sem standa fyrir dyrum mun skuldsetning ríkissjóðs aukast gífurlega. Við verð- um að leggja mikla áherzlu á að borga þau lán niður sem allra fyrst. Það verður því ákaflega lítill grundvöllur fyrir útþenslu opinberrar þjónustu á Íslandi næstu ár- in. Þriðja meginatriðið í efnahagsáætluninni er end- urreisn bankakerfisins. Þar leggur Alþjóðagjaldeyr- issjóðurinn til endurskoðun reglna og eftirlitsstofnana, sem lá í augum uppi að yrði að ráðast í hvort sem var. Miðað við það, sem fram kom á blaðamannafundum ríkisstjórnarinnar og full- trúa IMF í gær, má gera ráð fyrir að einstök ríki muni leggja til allt að tvöfalda þá upphæð sem sjóðurinn mun lána okkur. Þar var rætt um norrænu ríkin, Japan og Rússland. Geir H. Haarde forsætisráðherra upplýsti í gær að ennfremur hefði ver- ið leitað eftir aðstoð frá Seðlabanka Evrópu og frá Bandaríkjunum. Í máli hans á blaðamannafundi kom fram að samkomulagið við IMF þýddi að ekki þyrfti að biðja Rússa um jafnhátt lán og upphaflega var rætt um, eða fjóra milljarða evra. Lán frá Rússlandi á líka miklu betur heima innan ramma aðstoðar IMF en ef um væri að ræða tvíhliða samkomulag Íslands og Rússlands um lánið. Samkomulagið við IMF er skýrt merki til umheimsins um að Ísland taki nú efna- hagsmálin föstum tökum á ný. Og án hjálpar umheims- ins komumst við ekki út úr kreppunni. Án hjálpar um- heimsins komumst við ekki út úr krepp- unni.} Traustvekjandi aðgerð 1 maí árið 2007 gekk íslenskur banka- stjóri frá 800 milljóna króna starfs- lokum. Þann sama dag bárust fréttir af hörmulegum aðstæðum verka- manna við Kárahnjúka sem flúðu fárveikir heim. Sjaldan hefur alþjóðlegur dagur verkalýðsins verið jafn niðurlægður á Íslandi eins og þennan fallega vordag. Tólf dögum síðar gekk íslenska þjóðin til kosn- inga. Sama ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks hélt velli. Hún hélt velli þrátt fyrir aðförina að ís- lenska velferðarsamfélaginu, Íraksstríðið, gjörspillta einkavinavæðingu bankanna, kvót- ann, sívaxandi misrétti, eyðileggingu náttúr- unnar, kynbundinn launamun, 1. maí, þrátt fyrir allt. Hverjir eru sökudólgarnir? Við kjósendur, kannski? Áður en fjármálakerfið hrundi var grundvallarstoð lýðræðisins búin að veikjast inn að kviku, hægt og hljótt og örugglega. Flestum virtist standa á sama. Hrun lýðræðisins fæddi á endanum hrun fjármálakerfisins. Tökum bara eitt dæmi, Alþingi Íslendinga. Alþingi, sem á að heita vagga lýðræðisins, er í eðli sínu, starfsháttum og vinnulagi ólýðræðisleg stofnun.Vagga lýðræðisins hefur um nokkra hríð verið lítið meira en stimpilstofnun ráðherra- valdsins. Álitum og sjónarmiðum minnihluta, sem oft hafa ýmislegt vandað til málanna að leggja, er hent út á hafsauga. Landslög á Íslandi fæðast á skrifborði ein- hvers embættismannsins í umboði ráðherra og rúlla svo í gegn. Þannig verða til meingölluð lög í landinu. Þau sem mótmæla eru einatt lituð sem þreytandi kjaftaskar. Þá verður til klisja um fólk sem er „á móti öllu“. Henni er stungið í samband hvenær sem færi gefst og hagsmunaöflum þóknast. Og hvað með aðrar stoðir lýðræð- isins? Aðhalds- og eftirlitsstofnanir brugðust alfarið og nú sitjum við uppi með þrjár rík- isstjórnir í landinu, eina í hvíta húsinu, eina í svörtu loftum og eina á Suðurlandsbraut. Von er svo á alþjóðlegri yfirstjórn heims- kapítalismans, IMF, fyrir ofan þessar þrjár. Annað liggur líka fyrir: Klappstýrurnar voru margar og íslenska þjóðin hélt áfram að kjósa sama tóbakið þrátt fyrir allt. Það er ekki nóg að kjósa flokka rétt eins og að halda með KR, og það er heldur ekki nóg að bergmála málpípur valdsins. Lýðræði byggir á því að hver og einn sé ábyrgur þátttakandi og rýni í staðreyndir. Niðurlæging íslenska lýðræðisins er innsigluð og við þurfum á einn eða annan hátt öll að bera á því ábyrgð. Hvað er þá að gera? Það er ekkert annað að gera en að byggja upp á nýtt og byggja öðruvísi og vera bjartsýn þrátt fyrir allt. Ég legg til að við byrjum á því í samein- ingu að endurreisa íslenskt lýðræði. En til þess þurfum við líka öll að vera þegnar sem neita að láta blekkjast af innistæðulausum loforðum, þegnar sem þora að endur- skoða hug sinn, ögra valdi og stokka upp á nýtt. Erum við tilbúin í þann slag? liljagretars@gmail.com Guðfríður Lilja Grétarsdóttir Pistill Þolendur eða þátttakendur? Víða eftirspurn eftir vinnuafli erlendis FRÉTTASKÝRING Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@mbl.is Þ ótt samdráttar sé farið að gæta á vinnumarkaði hérlendis og meiri sam- dráttur sé fyrirsjáan- legur er víða eftirspurn eftir starfskrafti. Eftir fjórar vikur koma fulltrúar vinnumálastofnana sjö evrópskra landa hingað til lands til að kynna atvinnutækifæri í heimalönd- um sínum. Fulltrúar erlendra bygg- ingafyrirtækja munu einnig koma til Íslands og kynna fyrirtæki sín. Ákveðið var að efna til kynningar- innar, sem verður í Ráðhúsinu í Reykjavík, vegna fyrirsjáanlegs sam- dráttar á vinnumarkaði, að sögn Valdimars Ólafssonar, ráðgjafa í svo- kallaðri Eures-deild Vinnumálastofn- unar sem leiðbeinir fólki í leit að vinnu innan Evrópska efnahagssvæð- isins. Fyrirspurnir en ekki flótti enn Nú þegar hafa fjölmargar fyrir- spurnir borist til Vinnumálastofn- unar frá Íslendingum um atvinnu- tækifæri erlendis . „Það er hins vegar enn ekki hægt að segja að landflótti sé hafinn. Það eru bara tvær til þrjár vikur síðan at- vinnuleysisskráningunum fór að fjölga verulega. Eftir fjórar vikur á atvinnuleysisskrá hér á landi er hægt að fá bætur erlendis í þrjá mánuði séu menn í virkri atvinnuleit í við- komandi landi. Fólk er enn bara að þreifa fyrir sér,“ bendir Valdimar á. Hann segir enn vinnu að fá í flest- um atvinnugreinum í Noregi. Í Dan- mörk sé einnig vinnu að fá í flestum greinum auk þess sem þar hafi verið tekin pólitísk ákvörðun um að efla vinnumarkaðinn. „Þeir gefa í á með- an aðrir stíga á bremsuna. Atvinnu- tækifærum fjölgar einnig greinilega í Hollandi.“ Atvinnumarkaðurinn í Þýskalandi hefur verið að eflast undanfarin miss- eri, að því er Valdimar greinir frá. „Það er hins vegar erfitt að komast inn á vinnumarkaðinn þar og einnig á vinnumarkaðinn í Frakklandi. Þegar húsnæðismarkaðurinn hrundi á Spáni hrundi byggingageirinn þar og vegna fjármálakreppu víða um heim búast Spánverjar einnig við sam- drætti í ferðaþjónustu. Vinnumark- aðurinn er einnig að dragast saman í Bretlandi og í Svíþjóð,“ tekur Valdi- mar fram. Hann segir atvinnuástandið vera farið að batna í Póllandi þótt atvinnu- leysi þar sé enn mikið. Fregnir hafa borist af því að Pólverjar sem verið hafa í vinnu hér á landi séu margir farnir að huga að heimferð eða farnir til annarra landa í atvinnuleit. Óljóst um brottför útlendinga Enn er ekki hægt að kasta tölu á hversu margir erlendir verkamenn eru farnir úr landi, að sögn Valdi- mars. „Allar tölur í sambandi við fjölda útlendinga á Íslandi eru á reiki. Aðeins brot þeirra sem fara tilkynna um brottförina. Þeir sem eru farnir geta verið miklu fleiri en þeir sem vit- að er um. Þetta kemur ekki í ljós fyrr en eftir næstu skattaskil.“ Samkvæmt tölum Hagstofunnar, sem Valdimar segir miðaðar við upp- lýsingar úr þjóðskrá, eru útlendingar taldir hafa verið um 21 þúsund hér á landi þegar mest var í ár. Þegar illa hefur árað hér hafa Ís- lendingar flykkst úr landi, til dæmis til Norðurlandanna og Ástralíu fyrir nokkrum áratugum. Með kynning- unni í Ráðhúsinu eftir fjórar vikur fá þeir, og einnig útlendingar búsettir hér, upplýsingar um vinnumarkaðinn í Danmörku, Noregi, Hollandi, Belg- íu, Þýskalandi, Póllandi og Litháen. Morgunblaðið/Ómar Samdráttur Þegar harðnar á dalnum fara fleiri utan í atvinnuleit. HÆGT er að fá greiddar atvinnu- leysisbætur í allt að þrjá mánuði í ríkjum innan Evrópska efnahags- svæðisins hafi menn verið skráðir atvinnulausir í samfellt fjórar vikur fyrir brottför og ekki hafnað at- vinnutilboði. Bæturnar eru sú upphæð sem viðkomandi átti rétt á í heimaland- inu. Ríkið sem viðkomandi leitar að atvinnu í greiðir bæturnar en rukk- ar svo heimalandið um þær, sam- kvæmt upplýsingum frá Vinnu- málastofnun. Til þess að halda bótum sínum þarf að sækja um svo- kallað E-303 vottorð hjá Vinnu- málastofnun. Í gær voru 3.882 á atvinnuleysi- skrá hjá Vinnumálastofnun. Frá því að mest fjölgaði á atvinnuleysis- skránni dag einn í októberbyrjun, um 107, hafa 50 til 70 bæst við á skrána á hverjum degi. BÆTUR Í ÚTLÖNDUM ››
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.