Morgunblaðið - 25.10.2008, Blaðsíða 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. OKTÓBER 2008
„ÞAÐ þarf ekki flókna hagfræði til
að sjá að hlutverk hins opinbera er
frekar að framkvæma á krepputím-
um en á þenslutímum svo fremi sem
bolmagnið sé til staðar,“ segir Ell-
iði Vignisson, bæjarstjóri í Vest-
mannaeyjabæ. Svo sé í Eyjum og
því verði tilboð í 4.000 fermetra
knatthús opnuð og skoðuð 11. nóv-
ember. „28 aðilar hafa sótt tilboðs-
gögn og vonandi getum við tekið
nýtt hús í notkun árið 2009. Það
eina sem getur breytt því er að til-
boðin víki verulega frá áætlunum
okkar,“ segir hann.
„Hjá Vestmannaeyjabæ höfum
við haldið að okkur höndum á með-
an þenslan var hvað mest og ein-
beitt okkur að hagræðingu í
rekstri. Við getum því framkvæmt
nú þegar kreppir að og atvinnu-
leysi er yfirvofandi víða.“
gag@mbl.is
Eiga fé til
framkvæmda
Í DAG, laugardag, kl. 16 verður
farin kyndilganga frá Austurvelli
að Ráðherrabústaðnum undir slag-
orðinu Rjúfum þögn ráðamanna.
„Mætum öll á Austurvöll, til að
hittast, til að sýna fram á að við höf-
um rödd, að við erum til. Sýnum
hvert öðru samhygð, að við stönd-
um saman, og ef ekki einfaldlega til
að finna að við erum ekki ein – og
að við finnum til,“ segir í tilkynn-
ingu.
Fjöldi fólks hefur tilkynnt þátt-
töku og hafa nokkur félög og sam-
tök sent pósta á sína félagsmenn,
s.s. Samband ungra framsókna-
manna, Samband ungra vinstri
grænna og Femínistafélagið. For-
maður Kvenréttindafélagsins og
formaður Neytendasamtakanna
hafa líka tilkynnt þátttöku.
Rjúfum þögn
ráðamanna
MIKIL uppsveifla er í loðdýrarækt
að sögn Björns Halldórssonar, for-
manns Sambands íslenskra loð-
dýrabænda, en aðalfundur samtak-
anna var haldinn nýverið. Margt
kemur til. Þrátt fyrir að einungis sé
starfandi 21 minkabú á landinu hef-
ur fjöldi dýra aldrei verið meiri. Út-
flutningsverðmæti íslenskra skinna
í fyrra var um 600 milljónir króna
og er það met. Formaðurinn sagði
jafnframt að miðað við núverandi
rekstarumhverfi væri mikið sókn-
arfæri í loðdýrarækt og stórefla
bæri atvinnugreinina nú þegar æ
háværari raddir heyrðust um það
að gjaldeyrisöflun væri það sem
helst gæti bjargað Íslandi úr þeim
þrengingum sem nú steðja að.
Loðdýrarækt
í blóma
ÍSLENSKA kokkalandsliðið lenti í
10. sæti á Ólympíumóti mat-
reiðslumeistara sem fram fór í Er-
furt í Þýskalandi, en 32 þjóðir
kepptu á Ólympíuleikunum. Það
var norska liðið sem hreppti 1. sæti.
Íslenska liðið fékk 2 gull og 2 silfur
sem er besti árangur liðsins fram
að þessu.
Kjötbankinn og Dreifing hafa í
tilefni af þessum árangri ákveðið
að styrkja kokkalandsliðið um
100.000 kr. og skora á önnur fyr-
irtæki og velunnara að gera slíkt
hið sama.
Okkar kokkar
í 10. sæti
STUTT
Eftir Unu Sighvatsdóttur
una@mbl.is
FORMENN stjórnarandstöðuflokk-
anna eru gagnrýnir á þær málalykt-
ir að ríkisstjórnin leiti á náðir Al-
þjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF) þar
sem allar aðrar leiðir hafi lokast.
Steingrímur J. Sigfússon, formað-
ur Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs, er andvígur því að form-
legt erindi verði sent til sjóðsins.
Hann telur að önnur úrræði hafi
ekki verið reynd til þrautar. „Menn
hefðu átt að reyna að halda fleiri
dyrum opnum, eins og þeim sér-
staklega að reyna að þræða upp
samstarf við hin Norðurlöndin. Ég
hefði talið miklu æskilegra að ná
saman einhverjum norrænum
pakka, til dæmis undir forystu
Norðmanna. En þetta er allt á for-
sendum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins
og undir hans stjórn og hans sam-
ræmingu og á grundvelli hans skil-
mála,“ segir Steingrímur.
Nauðvörn að leita til sjóðsins
Guðni Ágústsson, formaður
Framsóknarflokksins, gagnrýnir
einnig ríkisstjórnina fyrir að leiða
þjóðina í slíkt öngstræti að eina leið-
in út sé slík nauðvörn. „Íslenska rík-
isstjórnin brást ekki við eins og hún
átti að gera af fullri einurð og hörku
gagnvart Bretum. Þau ummæli for-
sætisráðherra Breta að við værum
gjaldþrota þjóð hafa í raun ekki ver-
ið leiðrétt og ég held að við það hafi
allar dyr lokast á aðstoð þeirra þjóða
sem þó voru líklegar til þess að
hjálpa.“ Hann segir þessar fáu vikur
í október vera langar í sögu þjóð-
arinnar en aðkoma sjóðsins nú muni
vonandi verða til þess að dyr opnist
að nýju til vináttuþjóða okkar.
Guðjón Arnar Kristjánsson, for-
maður Frjálslynda flokksins, segir
lánsupphæðirnar sem um er rætt
geigvænlegar og engan veginn sé
hægt að láta sér lítast vel á þau drög
sem fyrir liggja. „En við erum
kannski að taka þann eina kost sem
við áttum. Við getum ekki hlaupið
hvort sem er, þetta er neyð-
arúrræði.“
Ríkisstjórnin ber ábyrgðina ein
Formennirnir leggja allir áherslu
á að stjórnarandstöðuflokkarnir taki
ekki ábyrgð á þessum gjörðum rík-
isstjórnarinnar. Hún hafi kosið að
vinna þetta ein. „Það er auðvitað
mjög ámælisvert líka hve lítið Al-
þingi hefur komið að þessu og nán-
ast ekki neitt. Þannig að rík-
isstjórnin tekur sér hér geysilega
mikið vald. Ég hefði talið að Alþingi
hefði þurft að koma beint að þessu
máli með sjálfstæðum hætti,“ segir
Steingrímur.
Þeir segjast uggandi vegna þeirra
efnahagsaðgerða sem ríkisstjórnin
hefur boðað eftir samkomulagi við
IMF og hafa áhyggjur af þeim skil-
yrðum sem okkur verði sett.
„Ég geri þann fyrirvara fyrir
mína parta að skilyrði um hækkun
vaxta eru ekki aðgengileg í núver-
andi stöðu. Ég held að það hjálpi
hvorki okkur né atvinnulífinu eins og
nú er háttað,“ segir Guðjón Arnar.
Guðni tekur í sama streng og segir
vaxtahækkun helsta áhyggjuefnið.
„Hér er ekki nein eftirspurn-
arverðbólga, hér er allt að frjósa fast
og við þurfum eins og aðrar þjóðir að
lækka vextina sem hraðast en ekki
keyra þá upp á nýjan leik.“
Jafnframt telja þeir allir óvið-
unandi að hjálp IMF fylgi einhver
skilyrði um samninga við Breta og
Hollendinga. „Það er þarna óbein
tenging, þótt reynt sé að gera lítið úr
því en hún er því miður til staðar og
af því hef ég miklar áhyggjur,“ segir
Steingrímur. Guðni tekur undir en
segist þó bjartsýnn á framhaldið.
„Ég held að hér séu ýmsir mögu-
leikar og við eigum með markvissri
stefnu að geta unnið okkur út úr
þessu á tiltölulega stuttum tíma.“
Gagnrýnivert að leiða þjóð-
ina inn í slíkt öngstræti
Aðkoma Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins
neyðarúrræði
Morgunblaðið/Golli
Formenn Að loknum fundi með ráðherrum í Ráðherrabústaðnum í gær ræddu formennirnir við blaðamenn.
Í HNOTSKURN
»Vinstri græn hafa óskaðeftir opnum fundi í efna-
hags- og skattanefnd Alþingis
í dag þar sem upplýst verði um
skilmála IMF og þeir skýrðir.
»Jafnframt óskar flokk-urinn þess að fundurinn
verði opinn fjölmiðlum og al-
menningi öllum.
»Fráleitt er að mati VG aðleita til IMF án þess að Al-
þingi fjalli áður um samnings-
forsendur Íslendinga.