Morgunblaðið - 25.10.2008, Blaðsíða 27
UM HELMINGUR bandarískra
lækna gefur sjúklingum reglulega
lyfleysu í stað lyfja – yfirleitt lyf eða
vítamín sem koma sjúklingnum að
litlu sem engu gagni. Þessir læknar
eru líka gjarnir á að fela fyrir sjúk-
lingum sínum að „lyfin“ séu gagns-
laus.
„Þessar niðurstöður koma veru-
lega á óvart,“ segir Franklin G. Mill-
er, sem er yfir rannsóknum á siðferði
við bandaríska heilsustofnun.
„Þarna er verið að beita blekkingum
sem ganga þvert á reglur um upplýst
samþykki sjúklinga.“
Rannsóknin hefur verið birt í nýj-
asta hefti læknablaðsins BMJ, sem
áður hét British Medical Journal.
Í rannsókninni var lyfleysa skil-
greind sem hvers konar meðferð
sem myndi ekki endilega hjálpa
sjúklingum.
Lengi hefur verið vitað að lyfleysa
getur haft áhrif á líðan sjúklinga;
telji þeir sig vera að fá meðferð geti
líðan þeirra batnað.
„Vel getur verið að sjúklingar
beiti lækna sína miklum þrýstingi en
þessi „styttri leið“ er engan veginn
viðunandi,“ Irving Kirsch, prófessor
í sálfræði við Háskólann í Hull í
Bretlandi.
Höfundar rannsóknarinnar segja
að flestir læknar vilji frekar gera
eitthvað en ekkert og réttlæti með
þeim hætti lyfleysugjöfina.
Helmingur gefur lyfleysu
Daglegt líf 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. OKTÓBER 2008
ein-stök-brjóst
100 ljósmyndir sem verða til sölu
Dansatriði
Listaverkauppboð kl. 16
KONUR!
Þökkum ykkur fyrir þátttökuna
í þessu ein-staka verkefni
www.brjost.is
Opnuð í dag kl. 14
Ljósmyndasýning í Glæsibæ
Opnunartími helgina 25.-26. okt. kl. 14-18, 27.-29. okt. kl. 14-20.
Aðgangur ókeypis - Allir velkomnir
Karl af Laugaveginum lætur sigmálefni líðandi stundar varða:
Banka skekur heiminn hér
hrun og plágur aðrar.
Hver er næstur sjálfum sér.
Samfylkingin blaðrar.
Undína skáldkona hét réttu nafni
Helga Baldvinsdóttir. Hún var
fædd „með ljóð á vörum“ á
Litlu-Ásgeirsá í Víðidal árið 1858
og fluttist vestur um haf 14 ára.
Hún átti til skálda að telja, var
þremenningur við Jakob Smára í
móðurætt, en faðir hennar, Baldvin
Helgason, Þorgils gjallandi og Jón
Hinriksson voru systkinabörn.
Undína orti í bernsku:
Hnígur sunna, og sígur
svartur skuggi á dal bjartan.
Fríðum í fjallahlíðum
fjóluna bælir gjóla.
Eftir létt eyrum sléttum
ítækur streymir lækur.
Í móum litlum lóum
leiðist ei við sín hreiður.
Undína átti um skeið við erfið
kjör að búa, er hún stóð ein uppi
með börn sín tvö eftir hjónaskilnað.
Þá orti hún:
Nær mun létta þungri þrá
af þeim, er líða flest?
Og nær mun gæfan nálgast þá,
sem núna flýr hún mest?
Enn orti hún:
Ef engum hlut til yndis breytt
ástin fær né sælu veitt,
þá er hjónalífið leitt –
og langtum verra en ekki neitt.
Með ljóð
á vörum
STREITA vegna vinnuálags í kjöl-
far efnahagshrunsins í heiminum
hefur þegar haft mjög neikvæð
áhrif á mataræði og hreyfingu
Bandaríkjamanna. Hugsanlega má
yfirfæra þessi tíðindi á okkur Ís-
lendinga en þessu heldur frétta-
stofan AP fram. Fólk sem hættir
að sinna heilsunni segir streitu
helstu ástæðuna. Það sleppir lík-
amsræktinni og huggar sig frekar
við sykurríka fæðu. En sérfræð-
ingar segja að aldrei sé mikilvæg-
ara að leggja stund á heilsusam-
legan lífsstíl en einmitt á
álagstímum
Streita er eðlilegur hluti daglegs
lífs en getur vissulega valdið alvar-
legum vandamálum sé hún viðvar-
andi.
Þegar fólk er undir álagi er það
líklegra til að snúa sér að óhollum
lífsháttum; drekka of mikið áfengi,
reykja of mikið og borða sætan og
feitan mat í óhófi. En það sem ekki
allir gera sér grein fyrir er að slíkt
hefur eingöngu í för með sér enn
meiri streitu. Skyndibitinn getur
því komið fólki enn frekar úr jafn-
vægi og fólk endar þá í vítahring
sem erfitt er að losa sig út úr. En
hvernig er þá best að draga úr
streitu?
Til þess eru vissulega betri að-
ferðir en að borða óhollari mat og
reykja meira. Regluleg hreyfing er
þar lykilatriði en einnig er víst að
íhugun og jóga koma að góðu
gagni. Önnur góð ráð eru t.d.:
Taktu þér tíma þegar erfiðar að-
stæður koma upp og vertu
raunsæ(r) við ákvarðanatöku.
Gefðu þér tíma til að huga að
mataræðinu og hreyfingu og
forðastu sætan og feitan mat.
Drekktu áfengi í hófi.
Reyndu að ná góðum nætur-
svefni.
Aflaðu þér upplýsinga um að-
ferðir til slökunar.
Taktu þér stutt hlé frá vinnunni
á hverjum degi.
Skyndibitinn
kemur fólki
úr jafnvægi
VÍSNAHORN pebl@mbl.is