Morgunblaðið - 25.10.2008, Page 12
12 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. OKTÓBER 2008
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
ARKITEKTAR hafa verið afskap-
lega eftirsóttir í uppsveiflu undan-
farinna ára enda hefur aldrei í Ís-
landssögunni verið byggt jafn mikið
af húsum. Nú finna þeir óþyrmilega
fyrir niðursveiflunni því samkvæmt
könnun Félags sjálfstætt starfandi
arkitekta stefnir í að 75% starfsfólks
á mörgum arkitektastofum hafi ver-
ið eða verði sagt upp og í sumum til-
vikum missa enn fleiri vinnuna.
Skelfur svolítið í hnjánum
Einn þeirra arkitekta sem hafa
fengið uppsagnarbréf er Gunnþóra
Guðmundsdóttir hjá VA arkitektum.
Eiginmaður hennar, Michael Erich-
sen, starfar einnig sem arkitekt hér
á landi og hefur ekki fengið tilkynn-
ingu um uppsögn. Ástandið veldur
þeim skiljanlega áhyggjum. „Við er-
um bæði hjónin arkitektar þannig að
maður skelfur nú svolítið í hnján-
um,“ sagði Gunnþóra í samtali við
Morgunblaðið í gær.
Gunnþóra og Michael kynntust í
Danmörku þar sem þau námu fagið.
Þegar bæði höfðu lokið námi fluttust
þau til Íslands, það var árið 2006, og
keyptu sér íbúð í Reykjavík. Bæði
fengu vinnu og mikið var að gera, að
sögn Gunnþóru. Mjög hafi legið á
mörgum verkefnum og fólk verið
óþreyjufullt að sjá hvernig húsin
myndu líta út. „Það var svo mikil
uppsveifla, allir að byggja og selja og
allt þetta. En nú þegar allt er stopp,
ja, þá er bara skrúfað algjörlega fyr-
ir.“
Gunnþóra hefur verið í fæðingar-
orlofi og var að hefja störf að því
loknu. Nú tekur við þriggja mánaða
uppsagnarfrestur. „Ég veit ekki
hvað tekur við eftir þennan tíma en
maður reynir að vera bjartsýnn og
vonast eftir því að hjólin fari eitthvað
að snúast,“ sagði hún. „Við viljum
gefa þessu tíma, að þetta jafni sig að-
eins, þótt það taki auðvitað einhverja
mánuði eða ár.“
Gunnþóra hefur heyrt að nokkrir
starfsbræður hennar og -systur ætli
að freista þess að fá vinnu í útlönd-
um, batni ástandið hér á landi ekki
fljótlega. Helst á þetta við um fólk
sem á erlendan maka. Gunnþóra
bendir á að fólki í þeirri stöðu reynist
auðveldara að flytjast utan því þá
hafi þau fjölskyldu og vini í seiling-
arfjarlægð en þurfi ekki að byrja al-
gjörlega upp á nýtt.
Gunnþóra og Michael vilja frekar
búa hér á landi. Leikskólarnir eru
frábærir og gott að ala upp börn.
„Við viljum búa hér. Hér hefur okk-
ur liðið vel,“ sagði hún.
Úr uppsveiflu og mikilli
vinnu í algjört stopp
„Ég veit ekki hvað
tekur við eftir
þennan tíma“
Morgunblaðið/Frikki
Tími „Við erum bæði hjónin arkitektar þannig að maður skelfur nú svolítið í
hnjánum,“ segir Gunnþóra Guðmundsdóttir arkitekt.
Í HNOTSKURN
» Listaháskóli Íslands hófað bjóða upp á BA-nám í
arkitektúr árið 2002 og út-
skrifuðust fyrstu nemend-
urnir þremur árum síðar.
» Nú stundar 51 nemdandinám í arkitektúr við skól-
ann.
» Samkvæmt könnun meðalarkitektastofa stefnir í að
75% starfsfólks á arkitekta-
stofum verði sagt upp störfum
um mánaðamótin.
» Í sumum tilvikum verður90% starfsfólks sagt upp.
» Um 280 arkitektar voruað störfum í landinu í
fyrra og nóg var að gera, eins
og undanfarin ár.
MIKIL funda-
höld hafa verið
hjá Samtökum
atvinnulífsins
vegna efnahags-
ástandsins í
landinu undan-
farnar vikur.
Vilhjálmur
Egilsson, fram-
kvæmdastjóri
SA, segir að þar
hafi flestir þeir hlutir sem verið
hafi í umræðunni undanfarið verið
uppi á borðinu.
„Við höfum fjallað mikið um
gjaldeyrisviðskiptin, málefni Al-
þjóðagjaldeyrissjóðsins, peninga-
markaðssjóðina, gjaldmiðlaskipta-
samninga, opinberar framkvæmd-
ir, atvinnumál og fleira,“ segir
Vilhjálmur.
Mikil vanskil erlendis
Einna brýnast að mati SA sé að
koma viðskiptum milli Íslands og
annarra landa í eðlilegt horf.
„Íslensk fyrirtæki hafa unnvörp-
um lent í vanskilum erlendis og
hafa ekki getað komið greiðslum til
landsins fyrir þær vörur og þjón-
ustu sem þau hafa verið að selja,“
segir hann. Úr þessu verði að
bæta. „Við höfum fylgst með þessu
og ýtt eftir því að eitthvað gerðist
og komið upplýsingum á framfæri
um það sem hefur verið að.“
elva@mbl.is
Fyrirtæki
unnvörpum
í vanskilum
Vilhjálmur
Egilsson
Afar brýnt að viðskipti
komist í eðlilegt horf
Mán til mið 10–18.30, fim 10–21, fös 10–19, lau 10–18, sun 13–18 | Sími 517 9000 | www.kringlan.is