Morgunblaðið - 25.10.2008, Blaðsíða 43
Krossgáta 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. OKTÓBER 2008
LÁRÉTTT
1. Fámennasta heimsálfan. (17)
8. Grásvartur tannhvalur sem er einungis hér
við land á sumrin. (10)
9. Hvers kyns ummerki fornra mannvirkja og
annarra staðbundinna minja sem menn
hafa gert eða mannaverk eru á. (10)
10. Indverskt strengjahljóðfæri. (5)
12. Api sem lifir í regnskógum í Indónesíu og
Malasíu. (9)
14. Sjúkdómar þar sem lífeðlisfræðilegt eða
sálarfræðilegt mynsturs í einstaklingi veld-
ur vanlíðan eða afbrigðilegri hegðun. (12)
16. ___ litli flugustrákur. (4)
17. ____ Pétursborg, hét Leníngrad 1924 til
1991. (6)
18. Maður á miðöldum sem sór konungi eða
fursta trúnaðareið og dvaldist við hirð
hans. (9)
20. Vinsæll veiðihundur. (8)
23. ______ á Miðnesheiði sem lögð var niður
30. september 2006. (9)
25. Sandro _______ ítalskur myndlistarmaður á
snemmendurreisnartímanum. (10)
27. Stærsta spendýr jarðar. (12)
29. Sir Arthur _____ sem stóð að miklum upp-
greftri í Knossos. (5)
30. William ________ Hearst bandarískur fjöl-
miðlakonungur. (8)
31. Innkirtill á stærð við baun sem gengur nið-
ur úr undirstúku heilans. (12)
32. Buenos ____ höfuðborg Argentínu. (5)
LÓÐRÉTT
1. Hlaup búið til úr svínakjöti. (10)
2. Smávaxnar viðarkenndar plöntur. (6)
3. Furstaríki í Evrópu. (6)
4. „Sjarmi, elegans, stiginn _____ dans, lifað
og leikið. Búin að reyna allt sem má.“ (8)
5. Þriðja stærsta eyja í heiminum, skiptist
milli ríkjanna Malasíu, Indónesíu og Brú-
nei. (6)
6. Mótstaða efnis gegn streymi rafmagns. (6)
7. Stór rör úr pastadeigi. (10)
11. Robert James ______ lést í Reykjavík 17.
janúar 2008. (7)
13. „____ , það er ég.“ (Loðvík 14.) (5)
14. _____vísur eftir Stefán Jónsson (5)
15. Máltíð sem neytt á bilinu kl. 2-5 (14)
19. Útdautt skriðdýr (8)
20. Sár sem koma á beinabera staði af rúm-
legu. (7)
21. Ritverk og munnleg menning. (10)
22. Matvara sem er búin til með því að láta
mjólk hlaupa. (5)
24. Skæð farsótt sem gekk um landið 1707 –
1709. (5,4)
25. Kapphlaup þar sem liðsmenn hvers liðs
skipast á um að hlaupa. (8)
26. Skífa úr kúptu gleri. (5)
28. Joel Coen og ____ Coen, kvikmyndagerð-
armenn sem oft eru nefndi Coen-bræður.
(5)
HALLGERÐUR Helga Þor-
steinsdóttir er Íslandsmeistari
kvenna 2008. Hallgerður vann Sigríði
Björgu Helgadóttur örugglega í sjö-
undu og síðustu unmferð og hlaut 6
vinninga af sjö mögulegum og varð ½
vinningi fyrir ofan Guðlaugu Þor-
steinsdóttur sem einnig vann skák
sína í lokaumferðinni. Þetta er í
fyrsta sinn sem Hallgerður verður
Íslandsmeistari en hún er aðeins 17
ára gömul og hefur því líkt og Guð-
laug og Guðfríður Lilja Grétarsdótt-
ur unnið þennan titil vel innan við tví-
tugsaldurinn. Í fyrra munaði litlu að
hún næði að landa sigrinum en hún
varð þá jöfn Guðlaugu í efsta sæti en
tapaði síðan í einvígi um Íslands-
meistaratitilinn. Hallgerður Helga,
sem verður 18 ára í lok næsta mán-
aðar, hefur um alllangt skeið verið í
fararbroddi ungra stúlkna sem vakið
hafa mikla athygli fyrir góða frammi-
stöðu við skákborðið. Á Evrópumóti
unglinga í Herceg Novi á dögunum
tefldi hún af miklu öryggi og tapaði
þar aðeins einni skák – átti m.a. gjör-
unnið tafl á stigahæsta keppanda
flokksins. Hún er vel að sér í byrj-
unum, hefur góða einbeitni og teflir
traust. Í baráttunni um titilinn nú
breytti miklu þegar norðlenska
stúlkan Ulker Gasanova, sem á ættir
sínar að rekja til Aserbaídsjan, sigr-
aði Guðlaugu í fyrstu umferð móts-
ins.
Lokaniðurstaða mótsins varð
þessi:
1. Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir 6 v.
2. Guðlaug Þorsteinsdóttir 5½ v.
3. Elsa María Þorfinnsdóttir 4 v.
4. Jóhanna Björg Jóhannsdóttir 3½
5.-6. Sigríður Björg Helgadóttir og
Tinna Kristín Finnbogadóttir 2½ v.
7. Sigurlaug Friðþjófsdóttir 2 v.
8. Ulker Gasanova 1½ v.
Í B-flokki Íslandsmótsins sigraði
Stefanía Bergljót Stefánsdóttir og
vann hún allar skákir sínar, sjö tals-
ins. Skákstjóri og aðalskipuleggjandi
þessa móts var Páll Sigurðsson.
Anand með þriggja
vinninga forskot
Indverski heimsmeistarinn Wisva-
nathan Anand virðist ætla að vinna
Vladimir Kramnik með meiri yfir-
burðum en nokkurn hafði órað fyrir.
Anand vann sjöttu einvígisskák sl.
þriðjudag og jók þá forskot sitt í þrjá
vinninga. Jafntefli hefur orðið í sjö-
undu og áttundu skákinni sem tefld
var í gær. Anand þarf því aðeins einn
vinning í þeim fjórum skákum sem
eftir eru til að verja titil sinn. Í skák-
inni í gær sniðgekk Anand slavnesku
vörnina sem gefist hefur svo vel og
nú kom upp hið flókna Vínarafbrigði.
Kramnik virtist algerlega hug-
myndalaus og greip til þess að ráðs
að þráskáka þegar atlaga hans á mið-
borði skilaði engum árangri. Þess má
geta að einvíginu er skipt í tvennt að
því leyti til að Kramnik hafði hvítt í
fyrstu skákinni og Anand var síðan
með hvítt í sjöundu skákinni. Þetta
einkennilega fyrirkomulag var tekið í
einvígi Kramnik við Topalov fyrir
tveim árum:
8. einvígisskák:
Vladimir Kramnik – Wisvanthan
Anand
Vínartafl
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 d5 4. Rc3
dxc4 5. e4 Bb4 6. Bg5 c5 7. Bxc4
cxd4 8. Rxd4 Da5 9. Bb5+ Bd7 10.
Bxf6 Bxb5 11. Rdxb5 gxf6 12.
0-0Rc6 13. a3 Bxc3 14. Rxc3 Hg8 15.
f4 Hd8 16. De1 Db6+ 17. Hf2 Hd3
18. De2 Dd4 19. He1 a6 20. Kh1 Kf8
21. Hef1 Hg6 22. g3 Kg7 23. Hd1
Hxd1 24. Rxd1 Kh8 25. Rc3 Hg8 26.
Kg2 Hd8 27. Dh5 Kg7 28. Dg4+ Kh8
29. Dh5 Kg7 30. Dg4+ Kh8 31. Dh4
Kg7
32. e5 f5 33. Df6+ Kg8 34. Dg5+
Kh8 35. Df6+ Kg8 36. He2 Dc4 37.
Dg5+ Kh8 38. Df6+ Kg8 39. Dg5+
– Jafntefli.
Staðan: Anand 5½ : Kramnik 2½
Haustmót TR hefst á morgun
Haustmót Taflfélags Reykjavíkur
2008 hefst á morgun, sunnudag. Ára-
tugahefð er fyrir hinu vinsæla Haust-
móti TR en það er flokkaskipt og öll-
um opið og eru skákmenn hvattir til
þátttöku í þessu fyrsta stórmóti vetr-
arins.
Teflt verður í húsakynnum Tafl-
félags Reykjavíkur, skákhöllinni að
Faxafeni 12, á miðvikudögum, föstu-
dögum og sunnudögum og eru góð
verðlaun í boði í öllum flokkum. Alls
verða tefldar 9 skákir í hverjum
flokki. Í efstu flokkunum verður teflt
í lokuðum 10 manna flokkum, en í
neðsta flokki verður teflt eftir sviss-
nesku kerfi. Skráning fer fram á tafl-
felag@taflfelag.is eða í síma 895-
5860.
Morgunblaðið/Ómar
Íslandsmeistari Hallgerður Helga
Þorsteinsdóttir við skákborði í gær.
Hallgerður Helga
Íslandsmeistari
kvenna í fyrsta sinn
Helgi Ólafsson | helol@simnet.is
SKÁK
Garðabæ
Íslandsmót kvenna
13.-24. október 2008
Bridsdeild
Breiðfirðingafélagsins
Nú er lokið tveim kvöldum í
þriggja kvölda tvímenningskeppni
og er baráttan um efsta sætið mjög
jöfn og tvísýn. En að loknum tveim
kvöldum er staða efstu para þessi.
Sveinn Sveinss.– Gunnar Guðmss. 477
Hörður R Einarss.– Benedikt Egilsson 475
Unnar A Guðmss. – Ólöf Ólafsd. 474
Magnús Sverriss. - Halldór Þorvaldsson 468
Solveig Jakobsd. – Ingibj. Guðmundsd. 461
Sunnudaginn 19/10 var spilað á 10
borðum. Hæsta skor kvöldsins í
Norður/Suður:
Ingibj.Guðmundsd. - Solveig Jakobsd. 245
Jóna Magnúsd. - Jóhanna Sigurjónsd. 245
Sveinn Sveinss. - Gunnar Guðmundss. 228
Austur—Vestur
Magnús Sverriss. - Halldór Þorvaldss. 246
Ólöf Ólafsd. - Unnar A Guðmss. 244
Benidikt Egilsson - Hörður R Einarsson 238
Spilað er í Breiðfirðingabúð,
Faxafeni 14, á sunnudögum klukkan
19.
Frá eldri borgurum
í Hafnarfirði
Föstudaginn 17 október var spilað
á 17 borðum. Meðalskor var 312. Úr-
slit urðu þessi í N/S:
Albert Þorsteinss. – Björn Árnason 411
Sæmundur Björnss. – Gísli Víglundss. 382
Gísli Hafliðas. – Björn Pétursson 378
Jens Karlsson – Örn Einarsson 355
A/V
Jón Lárusson – Halla Ólafsdóttir 371
Dröfn Guðmundsd. – Margrét Pálsd. 363
Anton Jónss. – Ingimundur Jónsson 344
Stefán Ólafsson – Óli Gíslason 337
Sveitakeppni hjá
Bridsfélagi Reykjavíkur
Nú er lokið tveimur kvöldum af
þremur í monrad-sveitakeppni
Bridgefélags Reykjavíkur. Sextán
sveitir eru í keppninni og eru spilaðir
sjö spila leikir, fjórar umferðir á
kvöldi.
Fullnaðarsigur í leik er 20-0 og
jafntefli 10-10.
Staða efstu sveita er þannig:
All in 109
Sölufélag garðyrkjumanna 108
Júlíus Sigurjónsson 102
Ice save 102
Breki Jarðverk 100
Síðasta kvöldið, þann 28. okt.
verður svokallaður Danskur mon-
rad. Það þýðir að tvær efstu sveitir
mætast og síðan næstu tvær o.s.frv.
óháð því hvort þær hafi mæst áður í
keppninni.
Þann 4. nóvember hefst svo
þriggja kvölda hraðsveitakeppni.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is