Morgunblaðið - 25.10.2008, Síða 44

Morgunblaðið - 25.10.2008, Síða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. OKTÓBER 2008 Sudoku Frumstig 8 4 3 6 5 3 4 2 9 7 7 5 2 4 6 8 5 1 5 4 3 7 5 3 7 1 9 1 6 9 4 6 5 2 7 6 9 8 2 9 8 5 7 8 5 7 9 3 4 9 5 7 6 9 8 5 2 4 8 1 9 3 1 6 9 4 8 6 4 7 9 7 8 3 5 2 6 8 5 3 6 1 7 9 6 8 3 6 7 1 3 1 2 4 1 5 8 6 7 5 2 1 4 8 5 7 6 3 9 3 6 5 9 1 4 8 2 7 7 8 9 3 6 2 4 5 1 4 7 6 1 3 5 2 9 8 8 2 3 7 4 9 5 1 6 9 5 1 6 2 8 7 4 3 6 9 2 5 7 1 3 8 4 1 4 7 2 8 3 9 6 5 5 3 8 4 9 6 1 7 2 3 4 8 1 5 9 2 6 7 5 2 6 4 8 7 9 3 1 1 9 7 2 6 3 8 4 5 2 1 3 7 9 8 4 5 6 6 8 9 5 3 4 7 1 2 7 5 4 6 2 1 3 9 8 8 3 5 9 1 2 6 7 4 4 6 2 3 7 5 1 8 9 9 7 1 8 4 6 5 2 3 5 6 8 9 2 3 1 4 7 1 2 9 7 4 8 3 5 6 3 4 7 5 1 6 8 2 9 7 9 1 3 8 5 4 6 2 2 5 4 6 7 1 9 3 8 8 3 6 4 9 2 7 1 5 9 8 3 2 6 4 5 7 1 4 7 2 1 5 9 6 8 3 6 1 5 8 3 7 2 9 4 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu Sudoki. Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig töl- urnar 1-9 og aldrei má tví- taka neina tölu í röðinni. dagbók Í dag er laugardagur 25. október, 299. dagur ársins 2008 Orð dagsins: Á þeim degi munuð þér skilja, að ég er í föður mínum og þér í mér og ég í yður. (Jh. 14, 20.) Víkverji er mikill matgæðingur.Hann er jafnframt svarinn and- stæðingur verðbólgudraugsins og vill ólmur glíma við hann eins og Grettir sterki við Glám forðum daga. Víkverji fagnar þess vegna ákaft þegar mat- sölustaðir hækka ekki verðskrá sína um leið og nýjustu verðbólgutölur birtast. Hann nýtir sér líka hvers kyns „tilboð dagsins“ og sækir mikið staði þar sem hrísgrjón eru staðlað meðlæti. Oft er nefnilega auðvelt að fá ábót á grjónin til að vinna upp sósuna, þessa súrsætu. x x x Hins vegar hefur borið nokkuð áþví að matarskammtarnir fari minnkandi. Staðir sem í góðærinu hrúguðu vel á diskana eru farnir að minnka skammtana tilfinnanlega. Þetta er auðvitað óheiðarlegri leið en verðhækkun, og þær vita upp á sig sökina, bæði skyndibitakeðjur með mexíkóskri, bandarískri og kínverskri áherslu. Sífellt leitar þó á Víkverja sú hugsun að kannski sé þetta fyrir bestu. Hann verður þá síður skvap- holda í lok kreppunnar, síðla árs 2010. Mögulega gæti þá þurft að breyta nafni þessa dálks í „Adonis skrifar“. x x x Þar sem Víkverji sat og hámaði ísig hrísgrjónaábót sína í vikunni komst hann ekki hjá því að hlusta á tal manna á næsta borði. Tveir ungir iðnaðarmenn sátu þar og körpuðu um það hvenær gera skyldi óháða rann- sókn á aðdraganda þess að banka- kerfið hrundi. Annar taldi rétt að vinda sér í verkið strax og fá málin á hreint. Sá var að snæða djúpsteiktar rækjur. Hinn taldi það óráðlegt þar sem meiri tíma og yfirvegun þyrfti til að ná skynsamlegri niðurstöðu. Hann hafði valið sér önd í hádegismat. Það sem vakti athygli Víkverja var hins vegar að aldrei kom til tals hvort slíka rannsókn þyrfti yfirleitt að gera. Það var auðvitað gefið og bara spurning um hvenær en ekki hvort. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 antigna, 4 óveður, 7 þvinga, 8 mynnið, 9 skaufhala, 11 lengdareining, 13 fjall, 14 reiðri, 15 þorpara, 17 tóbak, 20 ránfugls, 22 fim, 23 brúkar, 24 lík- amshlutar, 25 peningar. Lóðrétt | 1 slen, 2 soð, 3 hermir eftir, 4 hrörlegt hús, 5 í vafa, 6 kveif, 10 styrkir, 12 óþrif, 13 málmur, 15 ódaunninn, 16 ófrægir, 18 viður- kennir, 19 blundar, 20 vætlar, 21 svara. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 liðleskja, 8 stund, 9 rotna, 10 dót, 11 renna, 13 innan, 15 rykug, 18 strák, 21 rok, 22 Skoti, 23 iðnar, 24 spekingar. Lóðrétt: 2 Iðunn, 3 ledda, 4 sorti, 5 jatan, 6 Æsir, 7 magn, 12 níu, 14 nót, 15 rása, 16 kropp, 17 grikk, 18 skinn, 19 ranga, 20 kort. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 a6 5. Rc3 Dc7 6. Be2 b5 7. 0-0 Bb7 8. He1 Rc6 9. Rxc6 dxc6 10. e5 Bb4 11. Bd2 c5 12. Bf3 Bxc3 13. Bxb7 Dxb7 14. Bxc3 Hd8 15. Dg4 Re7 16. Hed1 0-0 17. b3 h6 18. h3 Rf5 19. Bb2 Dc6 20. c4 b4 21. De2 a5 22. a4 bxa3 23. Hxa3 Db7 24. Bc3 Rh4 25. f3 Rf5 26. Hxd8 Hxd8 27. Bxa5 Rd4 28. Dd1 Hd7 29. Be1 Db8 30. f4 Hb7 31. Bf2 Rxb3 32. Dd6 Dc8 33. Kh2 Hd7 Staðan kom upp í fyrstu umferð þýsku deildarkeppninnar sem fór fram fyrir skömmu. Stórmeistarinn David Baramidze (2.557) frá Þýskalandi hafði hvítt gegn kollega sínum Nor- munds Miezis (2.557). 34. Hxb3! Hxd6 35. exd6 Dc6 36. Bxc5! Dxc5 37. Hb8+ Kh7 38. d7 Dxc4 39. d8=D hvítur er nú hróki yfir og innbyrti sigurinn nokkru síðar. Hvítur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Stóra skóflan. Norður ♠10962 ♥Á3 ♦ÁKD93 ♣82 Vestur Austur ♠Á ♠G8543 ♥109842 ♥D65 ♦10762 ♦-- ♣D53 ♣ÁKG104 Suður ♠KD7 ♥KG7 ♦G854 ♣976 Suður spilar 3G redobluð. Englendingar áttu undir högg að sækja í úrslitaleiknum við Ítala á heimsleikunum. Þeir skulduðu 35 stig (impa) fyrir síðustu 16 spila lot- una og voru á höttunum eftir sveifl- um. Malinowski og Sandqvist tóku fram stóru skófluna í þessu spili. Sá fyrrnefndi vakti í norður á 1♦ og Sementa stakk inn 1♠ á austurspilin. Sandqvist teygði sig í 2G á flata tíu punkta og Malinowski lyfti í þrjú, sem Sementa doblaði til að vara við útspili í spaða. Með sex líklega slagi ákvað Malinowski að sleppa ekki þessu tækifæri til að skora og redo- blaði. Duboin kom út með ♠Á (þrátt fyrir doblið), en skipti snarlega yfir í ♣D. Tveir niður og þúsundkall til Ítala. Það er svona með stóru skóflurnar – þær moka í báðar áttir. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Þú þarft ekki að klára allt sem þú byrjar á. Auðlegð felst í því að kunna að hætta á toppnum. Snúðu þér þá að ein- hverju öðru til að glíma við og sigra. (20. apríl - 20. maí)  Naut Þú getur ekki læknað allar hörmungar heimsins á einum degi, en þú gerir allt til að leysa vandann í þínu litla horni. Þú ert með lista og krossar við. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Þú veist betur en svo að bíta í höndina sem fæðir þig. Þú þarft bara að taka í hana. Alúðleg viðkenning þín er við- eigandi og vel þegin. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Það hitnar í kolunum í öllum sam- böndum. Þér þykir líka lítið varið í ylvolga ástúð. Þú sannar ást þína með því að fara hvergi þegar í harðbakkann slær. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Þú verður sífellt ábyrgðarfyllri. Þú tek- ur vandamálin persónulega sem vinnuhópur þinn glímir við. Fólk daufheyrist við skip- unum – gerðu hlutina sjálf(ur). (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Mikilvægi tækifærisins er í beinu sambandi við stærð áhættunnar. Þú veist hverju þarf að fórna, og metur stöðuna vel áður en þú tekur ákvörðun. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Það er ekki auðvelt að vera alltaf hóg- vær og nærgætin(n), en þú ert betri í því en flestir aðrir. Þú þarft nefnilega ekki sífellt að koma sjálfri/sjálfum þér að. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Það getur verið þreytandi að vera yfirmáta spenntur, hvort það er á nei- kvæðan eða jákvæðan máta. Dragðu þig út úr aðstæðum tillfinningalega. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Vertu aðgætin(n) þegar kemur að tilfinningum fólks, sérstaklega ef þú hef- ur gert eitthvað af þér og langar að leysa frá skjóðunni. Hugsaðu fyrst um aðra. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Þú hefur leikhæfileika og notar þá til að fá þínu framgengt. Þú blekkir engan, teygir bara aðeins á mörkum persónuleika þíns. Þú átt Óskar skilinn. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Enginn þolir það þegar þú verður taugaveikluð/aður, allra síst þú. Ef þú ert kvíðin(n) yfir frammistöðu þinni, skaltu ímynda þér að allir haldi með þér. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Þú ert með hausinn fullan af skap- andi lausnum á vanda þínum. Hver þeirra virkar? Sú sem þú hefur langmesta trú á! Stjörnuspá Holiday Mathis 25. október 1852 Barnaskólinn á Eyrarbakka var settur í fyrsta sinn. Hann er elsti barnaskólinn sem enn er starfræktur. 25. október 1914 Verka- kvenna- félagið Framsókn í Reykjavík var stofn- að, að til- hlutan Kvenrétt- indafélags Íslands. Stofnfélagar voru sjötíu. Þetta var fyrsta verkakvenna- félagið. 25. október 1947 Kvikmyndasýningar hófust í Austurbæjarbíói, sem þá var stærsta samkomuhús landsins og rúmaði 787 manns í sæti. Sýnd var kvikmyndin „Ég hef ætíð elskað þig“, en þetta var sögð tónlistarmynd í eðlileg- um litum. Nafni bíósins var síðar breytt í Bíóborgin. 25. október 1986 Mjólkurstöð Mjólkursamsöl- unnar við Bitruháls í Reykja- vík var tekin í notkun. Gólf- flötur hennar er 13.800 fermetrar og byggingarkostn- aður var 850 milljónir króna. „Nýtískulegasta mjólkurstöð heims,“ sagði í Morg- unblaðinu. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist … Brúðkaup Þorbjörg Helga Konráðsdóttir og Hákon Bjarki Harðarson voru gefin saman 12. júlí síðastliðinn í Breiða- bólsstaðarkirkju í Vesturhópi af séra Sigurði Grétari Sigurðssyni. GÖNGUGARPURINN Reynir Pétur Ingvarsson fagnar sextugsafmæli sínu í dag, en afmælisbarnið hyggst fagna tímamótunum tvisvar sinnum. Í dag halda systkini Reynis Péturs honum afmælisveislu í Reykjavík, en á mánudag ætlar hann að fagna af- mælinu með vinum og samstarfsfólki á Sólheimum, þar sem hann býr og starfar. „Ég ætla að halda smá-veislu í [kaffihúsinu] Grænu könnunni eftir vinnu,“ segir hann glaður í bragði. Reynir Pétur man vel eftir því þegar hann var ungur strákur á Sólheimum og dönsk fóstra, sem þar var, bjó til karl úr tómötum sem skreytti köku afmælisbarnsins. Tómatkarlinn vakti mikla lukku hjá Reyni Pétri. Reynir Pétur lætur aldurinn síður en svo koma í veg fyrir að hann stundi hreyfingu. „Ég hjóla ennþá og hreyfi mig. Ég væri nú bilaður ef ég segði að ég væri hættur að hjóla því ég væri orðinn svo fullorðinn. Ef maður hefur góða heilsu á að láta boltann rúlla,“ segir Reynir Pétur, sem dagsdaglega vinnur við ræktun grænmetis. Reynir Pétur segir fínt að eiga afmæli. „En það sem mestu skiptir er að eiga góða félaga og vini og kærleika,“ segir hann. Gott sé að nota til- efni eins og afmæli til þess að gleðjast með sínum nánustu. elva@mbl.is Reynir Pétur Ingvarsson er sextugur í dag Tómatkarlinn vakti lukku Nýirborgarar Reykjavík Thelma Sigríður og Tómas fæddust 18. júlí. Thelma Sigríður vó 2.500 g og var 47 cm löng. Tómas vó 3.535 g og var 49 cm langur. Foreldrar þeirra eru Ásdís Kristjánsdóttir og Agnar Tómas Möller. Akranes Elín Björk fædd- ist 6. ágúst kl. 20.28. Hún vó 3.495 g og var 50 cm löng. Foreldrar hennar eru Emelía Elín Frans- dóttir og Hafþór Atli Hall- mundsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.