Morgunblaðið - 03.11.2008, Qupperneq 9
Bylting í laxeldi Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, kynntist tækninýjungum Vaka hjá þeim Hermanni Krist-
jánssyni og Hólmgeiri Guðmundssyni eftir að fregnir bárust af leigusamningnum.
Morgubnlaðið/RAX
Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur
annaei@mbl.is
ÞAÐ ríkir almenn ánægja hjá for-
svarsmönnum hátæknifyrirtæk-
isins Vaka með nýjan leigusamn-
ing við laxeldisfyrirtækið Marine
Harvest. Um er að ræða 200 millj-
óna króna samning um leigu á
nýjum búnaði, raunar þeim fyrsta
sinnar tegundar, sem mælir stærð
og vöxt fiska neðansjávar.
„Við höfum áður átt í viðskipt-
um við Marine Harvest, sem er
stærsta laxeldisfyrirtæki í heimi,“
segir Hermann Kristjánsson
framkvæmdastjóri Vaka. „Að
þessu sinni vorum við hins vegar
að leigja þeim svolítið stóran
pakka til að nota við laxeldi sitt í
Skotlandi.“
Marine Harvest er einnig með
fiskeldi í Noregi, Skotlandi, Chile
og Kanada og segir Hermann því
vel möguleika á að frekari leigu-
samningar á búnaðinum fylgi í
kjölfarið á næstunni. „Við viljum
þó ekki vera að byggja neinar
skýjaborgir, en þessi nýja kynslóð
af búnaði býður vissulega upp á
ákveðna byltingu í rekstri fiskeld-
isstöðva. Reynslan af búnaðinum
verður síðan vonandi það góð að
menn vilji fá hann sem Tæknin
hefur verið nokkur ár í þróun og
má, að sögn Hermanns, nota
búnaðinn alls staðar þar sem lax-
eldi fer fram. Þykir hann því
bjóða upp á mikla vaxtarmögu-
leika fyrir fyrirtækið, sem er nú
þegar með um 96% af veltu sinni
erlendis.
Selur Vaki í dag vörur til 50
landa og eru stærstu markaðirnir
í Noregi, Skotlandi, Kanada,
Chile og við Miðjarðarhafið.
Efnahagsvandinn hér heima
hefur valdið fyrirtækinu rétt eins
og öðrum útflutningsfyrirtækjum
erfiðleikum. „Við vorum hins veg-
ar með svo góða stöðu þegar
kreppan skall á að undanfarnar
vikur höfum við einfaldlega
sleppt því að reka á eftir
greiðslum erlendis frá,“ segir
Hermann og bætir við að slíkt
geti þeir þó ekki gert endalaust.
Hann telur lítil fyrirtæki í
þekkingariðnaðinum, fyrirtæki á
borð við Vaka, geta átt eftir að
reynast vel við endurreisn hag-
kerfisins.
„Það eru þó nokkur fyrirtæki
hér á landi sem svipar til okkar
og eru að gera góða hluti. Lausn-
in þarf nefnilega ekki alltaf að
felast í einum stórum hlut, eins
og til dæmis álveri, heldur geta
smærri fyrirtæki líka átt sinn
þátt í lausninni.“
Geta reynst vel við
endurreisn hagkerfisins
Fyrsti mælibúnaður sinnar tegundar
Fleiri leigusamningar kunna að fylgja í kjölfarið
Í HNOTSKURN
»96% af veltu Vaka eru er-lendis.
»Vaki selur nú vörur til 50landa og eru stærstu
markaðirnir í Noregi, Skot-
landi, Kanada, Chile og við
Miðjarðarhafið.
»Um 80% af veltu fyrirtæk-isins sitja eftir í íslensku
hagkerfi.
Morgunblaðið/RAX
Hátæknibúnaður Reynir Kristófers-
son er einn 40 starfsmanna Vaka.
Fréttir 9INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 3. NÓVEMBER 2008
Miðvikudaginn 5. nóvember kl. 12 á 20. hæð í
Turninum, Kópavogi.
Forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson,
afhendir verðlaunin og sem fyrr eru þau veitt
fyrirtækjum sem hafa verið áberandi í markaðsmálum
á líðandi ári og sannað þykir að sýnilegur árangur hafi
náðst. Við ákvörðun um verðlaunahafa er tekið mið af
fagmennsku við markaðsmálin.
Í ár eru eftirfarandi fyrirtæki tilnefnd:
Síminn
Vodafone
Össur
Samhliða fer fram val á Markaðsmanni ársins.
Kynnt verður hugmyndavinna fulltrúaráðs ÍMARK um
aðkomu markaðsfólks að lausn þeirra þrenginga sem
Ísland er nú að ganga í gegnum.
Turninn í Kópavogi, 20. hæð, kl. 12.00 - 13.30.
Verð 3.800 kr. fyrir ÍMARKfélaga og 4.900 kr.
fyrir aðra – hádegisverður innifalinn.
Skráning á imark.is eða á imark@imark.is.
Markaðsverðlaun
ÍMARK 2008
t í s k u h ú s
Rauðarárstíg 1, sími 561 5077
opið 10-18 - laugard. 11-15
Ný sending
Nóvembertilboð
20% afsláttur
þessa viku
VEGNA þess alvarlega ástands sem
nú er uppi í samfélaginu hefur ver-
ið ákveðið að láta fé það sem gestir
Hafnarfjarðarkirkju láta af hendi
rakna í morgunmessum á mið-
vikudögum í haust renna til Mæðra-
styrksnefndar Hafnarfjarðar. Í
morgunmessum er vaninn að láta
söfnunarbauk ganga fyrir alt-
arisgöngu og geta þeir sem vilja
gefið fé, sem rennur til góðra
verka. Mun söfnunin halda áfram
fram yfir fyrsta miðvikudag í að-
ventu, en þá verður söfnunarféð af-
hent. Eru allir sem áhuga hafa
hvattir til að leggja söfnuninni lið á
miðvikudagsmorgnum nú í nóv-
ember.
Frá byrjun september hefur ver-
ið sungin gregorsk messa í Hafn-
arfjarðarkirkju kl. 8 alla mið-
vikudagsmorgna. Eftir messuna er
boðið upp á léttan morgunverð í
safnaðarheimili kirkjunnar.
Messuþjónustu annast sr. Þór-
hallur Heimisson en forsöngvari er
Guðmundur Sigurðsson organisti
og sönghópurinn Lux aeterna.
Safnað fyrir Mæðrastyrks-
nefnd við morgunmessu
RJÚPNAVEIÐI hófst á laugardag-
inn og fór vel af stað að sögn Sigmars
B. Haukssonar, formanns Skotveiði-
félags Íslands, þótt stofninn sé enn
lítill og veiðin misjöfn.
Mikil hefð er fyrir því að flestir
fari af stað fyrstu veiðihelgina og má
því búast við að um 3.000 veiðimenn
hafi verið á kreiki. Næstu helgar á
eftir jafnast fjöldinn svo út, en veiði-
mönnum hefur raunar fækkað frá
því sem áður var þegar um 5.000
manns fóru að jafnaði á rjúpu.
„Menn veiða með öðru hugarfari
núna,“ segir Sigmar.
„Menn eru hættir magnveiðum en
veiða bara lítið fyrir sig og sína.“
Fyrsta veiðihelgin gekk þó ekki
slysalaust fyrir sig, því Landhelgis-
gæslan var þrisvar kölluð út vegna
rjúpnaskyttna og sótti þyrla gæsl-
unnar m.a. mann sem fótbrotnaði
illa.
Sigmar bendir á að þegar svo stór
hópur manna er úti í náttúrunni í
einu að vetri til geti því miður orðið
slys. Þau séu hinsvegar tiltölulega
fátíð miðað við þann mikla fjölda sem
er á veiðum hverju sinni.
Rjúpnaveiðitímabilið stendur til
30. nóv. og er veiði heimil fjóra daga
vikunnar, fimmtudag til sunnudag.
Rjúpnaveiðin fór vel af stað
Um 3.000 rjúpnaskyttur voru á ferð og gekk veiðin vel
Landhelgisgæslan fékk þrjú útköll vegna veiðimanna
Morgunblaðið/Helgi Garðarsson
Fyrst Hannes Sigmarsson fékk eina.