Morgunblaðið - 05.11.2008, Síða 6

Morgunblaðið - 05.11.2008, Síða 6
6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 2008 Eftir Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttur gag@mbl.is ÞAÐ verður í höndum nýrra bankaráða, sem kosin verða í þessari viku, hverjir fara með stjórn Glitnis, Kaupþings og Landsbanka. Þetta sagði Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra að loknum fundi rík- isstjórnarinnar í gær. „Þarna var fólk sem stökk í mjög erfið og stór störf á mikilvægum augnablikum í lífi þjóðarinnar. Það skipti mestu máli á þeirri stundu að halda bankakerfinu gangandi. Svo er ýmislegt sem við þurfum að laga og höfum ekki gert nógu vel í öllum flýtinum og kapphlaupinu,“ segir hann. Björgvin sagði að ekkert benti til þess að lán starfsmanna Landsbanka og Glitnis hefðu fengið sér- meðferð eins og vísbendingar væru um að gert hefði verið hjá Kaupþingi. „Gjörningurinn er riftanlegur ef hann hefur verið óeðlilegur.“ Spurður hvort ekki eigi að víkja þeim starfsmönnum sem verði rannsak- aðir sagði Björgvin: „Forstjóri bankans var tekinn utan frá. Hitt er verið að rannsaka. Ég ætla ekki að dæma neinn fyrirfram en ég lít málið mjög alvar- legum augum.“ Björgvin sagði Fjármálaeftirlitið nú rannsaka mál bankastjóra Glitnis, Birnu Einarsdóttur, sem ætlaði að kaupa í Glitni banka en kaupin gengu ekki eftir vegna mannlegra mistaka. „Ég lýsi ekki yfir van- trausti á nokkurn mann fyrirfram og treysti henni að sjálfsögðu á meðan ekkert annað hefur komið fram.“ Spurður um fregnir af því að starfsmenn Kaup- þings hefðu stofnað einkahlutafélög um skuldir sínar svarar Björgvin. „Það er örugglega margt sem hefur verið gert í fjármálaumhverfi okkar sem er löglegt en siðlaust. Við erum að fara í gegnum það núna hvernig við byggjum upp nýtt, betra og heilbrigðara fjármálakerfi í landinu.“ KAUPÞING EINN MEÐ SÉRKJÖRIN  Ný bankaráð sem kosin verða í vikunni ráða hverjir stjórna bönkunum  Óeðlilegum viðskiptum verður rift Morgunblaðið/Kristinn Viðskiptaráðherra Björgvin G. Sigurðsson útilokar ekki að nýir stjórnendur bankanna víki. Það sé í höndum nýrra bankastjórna sem kosnar verði í vikunni. Núverandi stjórnendur hafi átt að halda bönkunum gangandi. Eftir Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttur gag@mbl.is EIGNARHALDSFÉLAGIÐ Sam- son, sem keypti Landsbankann af ríkinu fyrir sex árum, fær ekki lengri greiðslustöðvun. Það er úrskurður Héraðsdóms Reykjavíkur frá því í gær. Bíða forsvarsmenn félagsins nú eftir því að einhver lánardrottna óski eftir gjaldþrotaskiptum þess. Einn lánardrottna þeirra, Com- merzbank International, höfðaði mál og mótmælti framlengingu greiðslu- stöðvarinnar, sem félagið fékk allt til þriðjudagsins 28. október. Samson skuldar Commerzbank annars vegar tæplega 7,8 milljarða króna og hins vegar nær 15,6 milljarða. Í úrskurði héraðsdóms bendir verj- andi bankans á að forsvarsmönnum Samsonar sé fyllilega ljóst að virði hlutarins í Landsbanka Íslands sé af- ar takmarkað og vísar í fundargerð þar sem stendur að yfirgnæfandi lík- ur séu á því að ekkert eigið fé sé í fé- laginu og að umtalsverðar líkur séu á því að eignir bankanna hafi rýrnað það mikið að eigið fé sé ekkert. Því sé óþarfi að framlengja greiðslustöðv- unina til að bíða og sjá hvers virði eignarhlutur Samsonar sé í Lands- bankanum eftir þjóðnýtinguna. Magnús Hrafn Magnússon, lög- maður Commerzbank, vildi ekki tjá sig um hvort bankinn ætlaði að óska eftir gjaldþrotaskiptum Samsonar en í dómnum stendur að bankinn telji að Samson sé þegar sýnilega orðið skylt að krefjast gjaldþrotaskipta. Taldi bankinn að jafnvel þótt það tækist að innheimta allar kröfur Samsonar sem og selja allar óveðsettar eignir á markaði, fyrir utan óveðsett bréf í Landsbanka, væri fjarri því að félagið gæti staðið í fullum skilum við lán- ardrottna sína. Ásgeir Friðgeirsson, talsmaður Björgólfsfeðga sem eiga Samson, segir að félagið hafi ekki átt aðrar eignir en Landsbankann að heitið gat. „Þannig að þau lán sem hvíldu á Samson voru í uppnámi við setningu neyðarlaganna.“ Því hefði verið óskað greiðslustöðvunar og svo framleng- ingar á henni sem ekki fékkst. „Frá okkar bæjardyrum séð þýðir úr- skurðurinn að nú sé í hendi kröfuhafa að fara fram á gjaldþrotaskipti fé- lagsins.“ Hann gefur ekki upp hverjir helstu kröfuhafarnir eru en það sé ekki Commerzbank. „Þetta er fyrst og fremst afleiðing neyðarlaganna. Þar sem Samson var fyrst og fremst eignarhaldsfélag um hlut í Lands- bankanum hefur úrskurðurinn ekki bein áhrif á önnur félög í eigu Björg- ólfs Thors Björgólfssonar og Björg- ólfs Guðmundssonar.“ Hlutabréfin í Landsbankanum hafi verið metin á um 90 milljarða króna fyrir yfirtök- una 6. október. Ólíklegt sé að lán- ardrottnar fái eitthvað upp í kröfur sínar. Þorgerður Erlendsdóttir kvað upp úrskurðinn. Þar stendur að þar sem stærsti hluti félagsins hafi verið 41,85% hlutur í Landsbanka Íslands hf. sé ekkert tilefni til að telja greiðsluörðugleika hans aðeins tíma- bundna. Því sé óþarfi að framlengja greiðslustöðvunina.  Eignarhaldsfélagið Samson, stærsti eigandi gamla Landsbankans, fær ekki lengri greiðslustöðvun  Eigendur ætla að bíða þar til lánardrottnar óska eftir gjaldþrotaskiptum  Kröfur fást ekki greiddar Samson skal fara í gjaldþrot Morgunblaðið/Golli Björgólfur eldri Björgólfsfeðgar áttu tæp 42% í Landsbankanum. ÓLÍKLEGT er að Íslendingar komi að stjórnun makrílveiða á næsta ári. Á fundi í London í síðustu viku var fjallað um þessar veiðar og var Ís- lendingum í fyrsta skipti boðið að senda áheyrnarfulltrúa á fund sem þennan. Stefán Ásmundsson, skrif- stofustjóri í sjávarútvegsráðuneytinu, segist gera sér vonir um að Ísland komi að stjórnun makrílveiða árið 2010. Á fundinum í London hafi þátttaka Íslands í málinu ekki verið mikið rædd, þar sem ESB og Noregur og Færeyjar hafi átt eftir að ganga frá ýmsum málum í veiðistjórnuninni. „Það er hins vegar alveg augljóst að við höfum rétt til að nýta auðlindir innan okkar lögsögu,“ sagði Stefán. „Boð um þátttöku á fundinum þýðir í mínum huga að við munum koma að stjórnun veiðanna sem strandríki þótt það verði væntanlega ekki á næsta ári úr því sem komið er,“ sagði Stefán. Aðspurður um stjórnun á veiðum á kolmunna og norsk-íslensku síldinni sagðist hann vonast til að gengið yrði frá þeim málum í tengslum við árs- fund NEAFC í næstu viku. aij@mbl.is Ísland ekki að stjórninni Gæti komið að stjórn makrílveiða 2010 GÍSLI Norð- dahl, bygging- arfulltrúi í Kópavogi, mun kynna sér hvað fór úrskeiðis er glerklæðning féll af þriðju hæð turnsins við Smáratorg í Kópavogi. Litlu mátti muna að alvarlegt slys yrði, en níu ára dreng- ur skarst lítillega er glerbrotum rigndi yfir hann. Gísli Norðdahl sagði að embættið hefði ekkert formlega með þetta óhapp að gera þar sem húsið væri fullbúið og starfsemi hafin þar. „Hins vegar hljóta allir aðilar sem tengjast þessari byggingu að kanna hvað fór úrskeiðis og við munum kanna málið,“ sagði Gísli Norðdahl. Steinar Harðarson hjá Vinnueft- irliti ríkisins sagði að starfsmenn embættisins hefðu frétt af þessum atburði í Morgunblaðinu í gær. „Þar sem ekki er um vinnustað á bygging- arstigi að ræða heldur fullbúið hús heyrir atvik sem þetta ekki undir Vinnueftirlitið,“ sagði Steinar. aij@mbl.is Skoða að- stæður í Turninum Glerklæðning féll af þriðju hæð hússins Eftir Helga Ólafsson Ólafsvík|Veturinn er genginn í garð og jörð er hvít frá fjöru til fjalls. Vegna hrakviðris að undanförnu eru kindur komnar að húsi. Bekr- arnir kumra í sinni kró. Hrafnarnir eru komnir aftur og kroppa bein og skrápa samkvæmt gömlum afleiðusamningi. Smáfuglar róta í moði. Og mýsnar sjást líka í fjárhús- unum. Þær hafa löngum þótt leiðir gestir og margt verið gert þeim til ömunar. En nú hefur ýmislegt breyst. Þær eru látnar í friði. Þeim er bara gefið hornauga þegar þær eru að skjótast. Nú er kominn skilningur á að músaherinn sé samfélag í vanda statt og þurfi því að hafa úti allar klær til að þreyja veturinn. Er því í gildi þegjandi samkomulag við mýsnar um að reyna að þrauka þetta saman. Músaherinn í vanda staddurBOGI Nilsson, fyrrverandi ríkis- saksóknari, hyggst ekki stýra því verkefni að vinna skýrslu um starfsemi Glitnis, Landsbankans og Kaupþings, þar sem honum finnst hann ekki lengur njóta nægilegs almenns trausts til að sinna því. Þetta kemur fram í til- kynningu sem Bogi sendi fjölmiðlum í gær. Valtýr Sigurðsson ríkissaksóknari fór þess á leit við Boga um miðjan síðasta mánuð að hann stýrði gerð slíkrar skýrslu og féllst Bogi á það. Var markmiðið einkum að skoða starfsemi viðskiptabankanna þriggja síðustu mánuði áður en bankarnir sigldu í þrot og kanna hvort eitthvað í starfsemi bankanna gefi tilefni til lögreglurannsóknar. Yfirlýsingu Boga má lesa í heild sinni á www. mbl.is Bogi Nilsson hyggst hætta Bogi Nilsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.