Morgunblaðið - 05.11.2008, Page 13
Fréttir 13ALÞINGI
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 2008
Opinn fundur á vegum BSRB í dag kl. 16:30 - 18:00 í
BSRB - húsinu Grettisgötu 89.
Fjallað verður um skuldastöðu heimilanna og úrræði sem
ákveðið hefur verið að grípa til vegna hækkandi lána.
Framsögu hafa:
Ragnhildur Arnljótsdóttir, ráðuneytisstjóri félags- og
tryggingamálaráðuneytisins
Svanhildur Guðmundsdóttir, sviðsstjóri þjónustusviðs Íbúðalánasjóðs
Haukur Hafsteinsson, framkvæmdastjóri LSR
Ásta S. Helgadóttir, forstöðumaður Ráðgjafarstofu um fjármál
heimilanna
Fundarstjóri: Helga Jónsdóttir, framkvæmdastjóri BSRB
Að loknum stuttum framsögum
verður opnað fyrir spurningar úr sal.
Skuldirnar og heimilin
- Hvað er að gerast?
Vesturröst - Laugavegi 178 - S. 551 6770 - www.vesturrost.is
Byssutilboð
Remington 870 Express,
3" mag skiptanlegar þrengingar.
Verð kr. 44.900
Eftir Höllu Gunnarsdóttur
halla@mbl.is
EINN maður gæti öðlast yfirráð yfir næstum öll-
um fjölmiðlum landsins, að Ríkisútvarpinu und-
anskildu, og við blasir sú undarlega staðreynd að
ríkisbanki virðist hafa átt frumkvæði að þeim
gjörningi. Þetta kom fram í máli Þorgerðar Katr-
ínar Gunnarsdóttur menntamálaráðherra í utan-
dagskrárumræðum um fjölmiðla á Alþingi í gær
og vísaði hún til kaupa Rauðsólar ehf., félags í
eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, á fjölmiðlum
365, sem eru sögð hafa verið gerð með hjálp
Landsbankans.
Rauðsól er rosabaugur
Guðni Ágústsson, formaður Framsóknar og
málshefjandi, sagði talað um afskriftir upp á fimm
til sex milljarða og vildi skýr svör við því hvort
ríkisbanki ætti hlut að máli. Sagði hann suma
hluthafa í 365 vera ósátta við að verðmætustu
eignir félagsins væru seldar til stærsta hluthafans
áður en öðrum hluthöfum gæfist svigrúm til að at-
hafna sig. Mögulega hefðu aðrir viljað kaupa fé-
lagið án þess að þurfa að taka lán. Spurði Guðni
hvort ríkisbanki, sem bæri fólk út af heimilum sín-
um vegna vanskila, ætti að fjármagna einn at-
hafnamann með þessum hætti. Væru allir frjálsu
fjölmiðlarnir gjaldþrota hlyti að vera réttara fyrir
ríkisbankana að selja þá á frjálsum markaði. „Ég
fer fram á það að gjörningurinn verði stöðvaður,“
sagði Guðni og kallaði Rauðsól „rosabaug“.
Þorgerður Katrín lagði áherslu á gegnsæi við
allar ákvarðanir ríkisbankanna. „Það má ekki ger-
ast að spurningar vakni um það hvort verið sé að
hygla ákveðnum einstaklingum eða fyrirtækjum á
kostnað heildarhagsmuna,“ sagði Þorgerður og
kallaði eftir skýringum frá Landsbankanum.
Yrði af kaupunum væri staðan mjög alvarleg
fyrir fjölmiðla í landinu. „Það er með engu móti
hægt að færa rök fyrir því að slík samþjöppun sé
heilbrigð þegar litið er til lýðræðislegrar um-
ræðu,“ sagði Þorgerður og áréttaði að fjölmiðla-
lögin sem forseti Íslands neitaði að undirrita árið
2004 hefðu betur tekið gildi.
Viljum ekki eitt ríkisútvarp
Þá minnti Þorgerður á starfshóp sem mun fara
yfir umhverfi fjölmiðla og á að skoða hvort rétt sé
að takmarka umfang Ríkisútvarpsins á auglýs-
ingamarkaði, til lengri eða skemmri tíma. „Við
viljum ekki hafa hér eitt ríkisútvarp,“ sagði Þor-
gerður en taldi þó varhugavert að færa einum
manni allan auglýsingamarkaðinn á silfurfati.
Skoða þyrfti vel rekstrargrundvöll RÚV, enda
hlutverk þess mjög mikilvægt yrði samþjöppun
frjálsu fjölmiðlanna að veruleika.
Morgunblaðið/Kristinn
Fjölmiðlar Fjölmiðlalögin, sem forsetinn neitaði að undirrita árið 2004, hefðu betur tekið gildi, sagði Þorgerður Katrín á Alþingi í gær.
Einráður í fjölmiðlum
Rosabaugur segir Guðni Ágústsson um Rauðsól ehf. Menntamálaráðherra
kallar eftir skýringum frá Landsbanka um lánveitingu til Jóns Ásgeirs
Brennt þjóðfélag
Þingfundur hófst í gær með óund-
irbúnum fyrirspurnum til ráðherra.
Nóg var af spurningum sem brunnu
á þingmönnum
og beindu flestir
máli sínu til for-
sætisráðherra.
Í svari sínu til
Ögmundar Jón-
assonar sagði
Geir H. Haarde
nauðsynlegt að
koma í veg fyrir
að öfl sem ekki
hefðu hagsmuni
þjóðarbúsins að leiðarljósi misnot-
uðu evrópskar reglur. „Það er eitt
og annað í regluverki okkar sem
eftir á hyggja reyndist ekki vel og
krosseignarhald, eignarhald eign-
arhaldsfélaga á hlutabréfum í
bönkunum og fleira af því tagi eru
atriði sem við höfum brennt okkur
illilega á,“ sagði Geir.
Rannsaka sjálfa sig
Steingrímur J. Sigfússon, VG, vildi
vita hvað liði hvítbókum og öðrum
rannsóknum og þótti sem fram-
kvæmdavaldið og „þeir aðilar sem
komið hafa efna-
hag landsins í
kaldakol“ ætl-
uðu aðeins að
rannsaka sig
sjálfir.
Geir H. Haarde
sagðist þegar
hafa rætt við for-
seta Alþingis.
Eðlilegt væri að
þingið hefði
ákveðna forystu í þessum efnum.
Varanleg ráð bráðum
Guðni Ágústsson, Framsókn, kall-
aði eftir upplýsingum um hvenær
ný bankaráð tækju við stjórn-
artaumum í hinu nýja ríkisbanka-
kerfi, en einungis hefur verið skip-
að í ráðin til bráðabirgða. Geir
sagði ætlunina að ganga frá skip-
un varanlegra bankaráða á næstu
dögum og í samráði við stjórn-
arandstöðuna.
Dagskrá þingsins
Þingfundur hefst kl. 13.30 með
óundirbúnum fyrirspurnum og síð-
an eru fjórar fyrirspurnir á dag-
skrá.
ÞETTA HELST …
Ögmundur
Jónasson
Geir H. Haarde
LAUNÞEGI sem verður fyrir því
að starfshlutfall hans er skert
vegna samdráttar en missir síðar
vinnuna vegna gjaldþrots fyrir-
tækis síns mun fá tekjutengdar at-
vinnuleysisbætur sem miðast við
hans fyrra starfshlutfall. Frum-
varp þessa efnis var lagt fram á
Alþingi í gær en í því er einnig
kveðið á um að það tímabil sem
fólk á rétt á hluta tekjutengdra at-
vinnuleysisbóta verði lengt. Lækki
starfshlutafall launamanns í 75%
mun hann því eiga rétt á 25%
tekjutengdum atvinnuleysisbótum
í tólf mánuði.
Tilgangurinn með þessum breyt-
ingum er að koma til móts við
breyttar aðstæður á vinnumarkaði
en forysta atvinnulífsins hefur
hvatt til þess að fyrirtæki lækki
fremur starfshlutfall starfsmanna
sinna en að grípa til uppsagna.
halla@mbl.is
Bætur miðist við 100% starf
VALGERÐUR Bjarnadóttir sviðs-
stjóri tekur sæti Samfylkingarinnar
í bankaráði Seðlabankans í stað Sig-
ríðar Ingibjargar Ingadóttur, sem
sagði sig nýverið úr ráðinu.
Alþingi kaus einnig nefndarmenn í
þróunarsamvinnunefnd í gær. Í
henni sitja: Hjálmar Jónsson dóm-
kirkjuprestur, Haukur Már Har-
aldsson kennari, Drífa Hjartardóttir
framkvæmdastjóri, Guðrún Ög-
mundsdóttir, fyrrverandi alþingis-
maður, Sigfús Ólafsson viðskipta-
fræðingur, Katrín Ásgrímsdóttir
garðyrkjubóndi og Ásgerður Jóna
Flosadóttir stjórnmálafræðingur.
Valgerður í seðlabankaráð