Morgunblaðið - 05.11.2008, Síða 14
FRÉTTASKÝRING
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
INNLENDIR framleiðendur á mat-
vöru margs konar, hreinlætisvörum
og pappír, sem Morgunblaðið ræddi
við, segjast flestir hafa nægt hráefni
til að vinna úr en fari gjaldeyr-
isviðskipti ekki að komast í samt lag
gætu einhverjir lent í vandræðum
strax í næsta mánuði. Þó að búast
megi við samdrætti í jólaversluninni
eru framundan mikilvægir mánuðir í
rekstri fyrirtækja sem framleiða
vöru sína fyrst og fremst fyrir inn-
anlandsmarkað. Vegna hækkunar á
innfluttum vörum og tafa á innflutn-
ingi á þeim hefur sala á íslenskum
vörum aukist töluvert, eins og fram
kom í Morgunblaðinu í gær, og nem-
ur aukningin í mörgum tilvikum
nokkrum tugum prósenta á síðustu
vikum.
Birgjar verið erfiðir
Íslensk-ameríska er stór aðili á
markaðnum. Það á og rekur Myll-
una, Ora, Frón og Kexsmiðjuna, auk
fleiri fyrirtækja, með alls um 350
manns í vinnu. Egill Ágústsson,
framkvæmdastjóri Íslensk-
ameríska, segir að í meginatriðum
hafi gengið vel að afla hráefnis fyrir
framleiðslufyrirtækin „Að vísu hafa
nokkrir birgjar verið okkur erfiðir
og beðið um fyrirframgreiðslu en
sem betur fer eru þeir fáir og yf-
irgnæfandi meirihluti hefur sýnt
stöðu okkar skilning,“ segir Egill.
Um sölu á vörunum segir hann
hana hafa tekið mikinn kipp, Íslend-
ingar séu greinilega fljótir að átta
sig á að miklu máli skipti að styðja
við bakið á íslenskum iðnaði. „Ef við
flyttum þessar sömu vörur inn vær-
um við með brot af þessum fjölda í
vinnu og notuðum mun meiri gjald-
eyri,“ segir Egill.
Talsmenn þeirra iðnfyrirtækja
sem rætt var við höfðu svipaða sögu
að segja. Þórður Kárason, fram-
kvæmdastjóri Papco, segir fyr-
irtækið hafa sérkjör hjá Seðlabank-
anum um að fá gjaldeyri fyrir
hráefni en Papco framleiðir m.a. sal-
ernispappír og eldhúsrúllur. Við-
skiptin taki langan tíma en mestur
vandinn sé sá að greiðslufrestur fyr-
irtækja erlendis sé enginn, ekkert
fáist nema gegn staðgreiðslu. Von-
andi opnist fyrir ábyrgðir á íslensk
fyrirtæki í desember en takist það
ekki gæti framleiðslan komist í upp-
nám. Papco hefur náð að bregðast
við aukinni eftirspurn með því að
setja á tvöfaldar vaktir en hjá fyr-
irtækinu starfa um 25 manns. Hefur
framleiðslan aukist um 40-50% síð-
ustu mánuði.
Mjöll-Frigg framleiðir margs kon-
ar hreinlætisvörur, er með verk-
smiðju á Akureyri en höfuðstöðvar í
Kópavogi. Kristján Grétarsson
framkvæmdastjóri segir fyrirtækið
enn hafa nægt hráefni síðan í stórum
innkaupum í sumar. En hvað úr
hverju fer fyrirtækið að lenda í
vandræðum ef allar umsóknir um
gjaldeyri fást ekki afgreiddar. Hið
jákvæða við kreppuna segir Kristján
vera að salan hafi aukist verulega.
Guðrún Á. Jóhannsdóttir, rekstr-
ar- og fjármálastjóri Kötlu, segir
fyrirtækið hafa náð að afla sér nægj-
anlegs hráefnis til framleiðslunnar
en Katla flytur inn, pakkar og fram-
leiðir ýmsar neytendavörur, m.a.
bökunarvörur sem nú eru eftirsóttar
fyrir jólin. Enda segist Guðrún hafa
orðið vör við stóraukna sölu á Kötlu-
vörunum. „Við höfum orðið að for-
gangsraða í okkar pöntunum og náð
að bjarga okkur hingað til. Gjaldeyr-
iskaup sem áður tóku tvær mínútur
geta núna tekið upp undir viku,“
segir Guðrún.
Gætu lent í vanda
Morgunblaðið/Golli
Íslenskt Myllan er meðal þeirra íslensku framleiðslufyrirtækja sem eru töluvert háð innflutningi á hráefni.
Innlendir framleiðendur hafa náð að bjarga sér um gjaldeyri
en rætist ekki úr gæti framleiðslan raskast í næsta mánuði
Í HNOTSKURN
»Mjólkursamsalan hefurnáð að útvega allar um-
búðir fyrir mjólkurvörurnar.
Magnús Ólafsson forstjóri tel-
ur fyrirtækið vera framarlega
á lista Seðlabankans.
» Í auknum mæli hafa ís-lensk fyrirtæki náð að
flytja inn vörur með við-
skiptum um erlenda banka-
reikninga sem þau hafa fengið
aðgang að.
14 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 2008
Skipulagsauglýsing
Breyting á deiliskipulagi í landi Húsafells III:
Í samræmi við 26. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 hefur
sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkt að auglýsa breytingu á deiliskipulagi
í landi Húsafells III.
Um er að ræða deiliskipulag vatnsaflsvirkjunar og flugbrautar.
Megin breyting á skipulaginu er að hætt er við færslu farvegar Kaldár
yfir í Kiðá ofan við flugbraut.
Tillagan verður til sýnis frá og með 5. nóvember til 10. desember. Þeir sem
telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn frestur til að skila inn skriflegum
athugasemdum til 10. desember.
Athugasemdum skal skila til verkefnastjóra skipulagsmála í ráðhús
Borgarbyggðar að Borgarbraut 14 Borgarnesi.
Þeir sem ekki gera athugasemdir við tillöguna teljast henni samþykkir.
Framkvæmdasvið Borgarbyggðar.
VEXTIR á lánum lífeyrissjóðsins
Stapa lækka 1. desember úr 5,7% í
5,2%.
Kári Arnór Kárason fram-
kvæmdastjóri segir að háir vextir
skili ekki endilega hærri vaxta-
tekjum þar sem há greiðslubyrði
auki líkur á útlánatöpum.
„Við teljum því rétt að lækka
vexti fremur en hækka við þessar
aðstæður,“ segir Kári á heimasíðu
Stapa.
Stapi lækkar vexti
af lánum sjóðsins
SKRIFAÐ hefur verið undir sam-
starfssamning milli Ungmenna-
félags Íslands, Bændasamtaka Ís-
lands og Kvenfélagasambands
Íslands um félagsmálafræðslu um
land allt í vetur undir yfirskriftinni
,,Sýndu hvað í þér býr“. Nokkur
námskeið hafa þegar verið haldin
en hlutverk þeirra er að sjá fé-
lagsmönnum fyrir fræðslu í ræðu-
mennsku og fundarsköpum. Þátt-
takendur fá æfingu í framkomu,
framsögn og þjálfun í fund-
arsköpum.
Helga Guðrún Guðjónsdóttir, for-
maður UMFÍ, sagðist eftir undir-
skriftina vonast eftir því að nám-
skeiðin yrðu þátttakendum til
skemmtunar og umfram allt gagn-
leg. Haraldur Benediktsson, for-
maður Bændasamtaka Íslands, tók
undir orð formanns UMFÍ og sagði
tímasetningu námskeiðanna góða í
þeim erfiðleikum sem samfélagið
væri að fara í gegnum um þessar
mundir. Sigurlaug Viborg, forseti
Kvenfélagasambands Íslands, lýsti
ánægju með samstarfið sem væri
Kvenfélagasambandinu ómet-
anlegt. Hún vonaðist eftir að konur
yrðu duglegar við að taka þátt í
námskeiðunum.
Sigurður Guðmundsson hefur
verið ráðinn til að stjórna félags-
málafræðslunni en hann er íþrótta-
fræðingur að mennt.
Samið Haraldur Benediktsson frá BÍ, Helga Guðrún Guðjónsdóttir frá
UMFÍ og Sigurlaug Viborg frá Kvenfélagasambandinu eru samtaka.
Samið um félagsmálafræðsl-
una „Sýndu hvað í þér býr“
ÞANN 1. október sl. tóku gildi
breytingar á umferðarlögum sem
miða að því að fækka óskoðuðum
ökutækjum í umferð. Að jafnaði eru
um 20.000 ökutæki í notkun sem
ekki hafa verið færð til skoðunar,
sum þeirra jafnvel stórhættuleg
vegna ástands þeirra.
Samkvæmt lagabreytingunni
skal setja 15.000 króna gjald sem
eigandi eða umráðamaður ökutæk-
is skal greiða við almenna skoðun
og endurskoðun hafi ökutækið ekki
verið fært til skoðunar á réttum
tíma. Heimilt er að lækka gjaldið
um allt að 50% verði það greitt inn-
an tiltekins frests eftir að það er
lagt á. Einnig má hækka gjaldið um
allt að 100% verði það ekki greitt
við almenna skoðun sé þess krafist.
Eins og fram kemur að ofan tóku
lögin gildi í október sl. en áhrifa
þeirra mun ekki gæta fyrr en 1. jan-
úar nk. Þá munu eigendur og for-
ráðamenn ökutækja sem ekki hafa
verið færð til skoðunar þurfa að
greiða fyrrnefnt gjald.
Morgunblaðið/Golli
Skoðun Stefnt er að því að sekta þá
sem trassa skoðunarskylduna.
Bílaskoðun
eða sekt
Á laugardag nk. kl. 10.30-14.00 stendur SAFT, vakningarverkefni
Heimilis og skóla, fyrir málþingi á Háskólatorgi um netnotkun barna
og unglinga. Það er nauðsynlegt að foreldrar geri börnum sínum grein
fyrir þeirri ábyrgð sem því fylgir að vera í netsambandi við aðra ein-
staklinga.
SAFT ásamt lögreglunni, Microsoft á Íslandi og Landssamtökum um
örugga netnotkun barna og unglinga á Íslandi vill í ljósi frétta um að
börn setji klámmyndir inn á netið til að áreita og leggja önnur börn í
einelti vekja athygli á því að hægt er með auðveldum hætti að rekja
slóð fólks á netinu. Gildir þá einu hvort um sé að ræða skilaboð sem
send eru á félagsnetsíðum eins og Myspace og Facebook og samskipta-
forritun á borð við msn eða þegar einstaklingar hakka sig ólöglega inn
á netsvæði annarra. Sömuleiðis er mikilvægt að muna að allt efni sem
sett er á netið er öllum opið og aðgengilegt.
Ótrúlega auðvelt er að rekja
slóð fólks á netinu
STJÓRN Sambands íslenskra aug-
lýsingastofa (SÍA) segir, í tilefni af
umræðu um auglýsingar í sjón-
varpi, að stuðla þurfi að eðlilegri
samkeppni á íslenskum auglýs-
ingamarkaði.
Telur SÍA hæpið að RÚV hverfi
alfarið af auglýsingamarkaði miðað
við óbreytt ástand og umhverfi á
auglýsingamarkaði.
Um leið vill stjórn SÍA hvetja til
þess að ákvarðanir um aðkomu
RÚV á auglýsingamarkaði séu
teknar með langtímasjónarmið í
huga og jafnvel sé horft til ná-
grannalanda í þeim efnum.
SÍA er reiðubúið til að taka þátt í
þeirri umræðu enda hagsmunir um-
bjóðenda sambandsaðila ríkir hvað
þetta varðar, segir í ályktun sem
stjórn SÍA sendi fjölmiðlum í gær-
dag.
Vilja ekki að RÚV
hverfi af auglýs-
ingamarkaði
STUTT