Morgunblaðið - 05.11.2008, Page 17
Fréttir 17VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 2008
Bankastjórar og framkvæmdastjórar gamla Landsbank-
ans höfðu fengið 115 milljónir króna að láni hjá bank-
anum samkvæmt hálfs árs uppgjöri. Samkvæmt upplýs-
ingum Morgunblaðsins var stjórnendum bankans ekki
lánað til að kaupa hlutabréf í bankanum, ólíkt því sem
tíðkaðist bæði hjá Glitni og Kaupþingi.
Þegar Sigurjón Árnason, þá bankastjóri Landsbank-
ans, var spurður um lán til stjórnenda við kynningu á
uppgjöri fyrsta ársfjórðungs þessa árs í Iðnó 6. maí, sem
þá nam 158 milljónum króna, sagði hann þetta mest lán
til fasteignakaupa. Sáralítið af þessum lánum hefðu
hann og Halldór J. Kristjánsson, sem einnig gegndi
stöðu bankastjóra, tekið.
Enn óljóst með lán í Glitni
Ekki er enn búið að ákveða hvað gert verður við lán sem
stjórnendur Glitnis tóku til hlutabréfakaupa í bankanum
samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins.
Þegar sex mánaða uppgjör bankans er skoðað námu
skuldir forstjóra og helstu stjórnenda Glitnis rétt rúm-
lega níu milljörðum króna. Þessar skuldir jukust um 7,2
milljarða á fyrstu sex mánuðum þessa árs.
Á fundi með starfsmönnum Glitnis 29. september sl.
lét Lárus Welding forstjóri þau orð falla að hann myndi
„persónulega“ sjá til þess að „komið yrði til móts við“ þá
starfsmenn sem ættu hlutabréf í bankanum og stæðu illa
þegar til stóð að ríkisvæða bankann.
Skoða hvort rifta eigi ákvörðun
Samkvæmt yfirlýsingu frá stjórn Nýja Kaupþingi í gær
var persónuleg ábyrgð starfsmanna á lánunum til hluta-
bréfakaupa í bankanum takmörkuð þegar söluréttur á
bréfunum var felldur niður á árinu 2005. Persónuleg
ábyrgð starfsmanna var síðan alfarið felld niður í sept-
ember 2008. „Stjórn Nýja Kaupþings banka hf. hafði
frumkvæði að því að fá utanaðkomandi álit lögmanns á
því hvort ákvörðun frá því í september síðastliðnum væri
riftanleg,“ segir í yfirlýsingunni. Þegar slík álitsgerð
liggi fyrir muni stjórn bankans innheimta kröfurnar í
samræmi við gerða lánasamninga. bjorgvin@mbl.is
Landsbankinn sér á báti
Morgunblaðið/Sverrir
Stjórnendum var ekki lánað til að kaupa hlutabréf bankans
Ólíkur Ekki tíðkaðist í Landsbanka að lána stjórnendum til hlutabréfakaupa ólíkt því sem gilti í Kaupþingi og Glitni.
. /.01
/201
34.
.
/04
/.0
!" #
$#%&
131
3. /01
/02
'()*
+
32 3.4
/0
/0
2 .2
50
/20
!"
#
!""#
$%#&
'(# &#
+, #-.,
+ /01/ 23.,
0045/1/ 23.,
*67#.,
8,*7 #073,9:;# %#
<- %7/1/ 23.,
=23>7 : 0.,
/ .,
)?@$
)/2 2/A2// #'B /,C.,
D##2/.,
)(*(%+
## + 7-+7/!E#
+ 7-? / 2 ?F'
*70 07
'G/ E 0
$H. /B7.,
I7 #2#57 .,
$ (,( +-#.
J 2/E+2 7 2 J
81/ %7.,
8 37B .,
/
(
02
02
6
. 01
.0 4101
420 40 40 4..0 6
6
I7#0737
%:#7 #
(7C K 0%:#L
=23)
A
A
A
A
A
A
A
A
A
A
M
M
M
A
A
M
A
A
M A
A
M A
A
A
A
A
A
A
A
A
A
A
M
A
A
M
A
A
M A
A
'B5%7
47#073
A
A
A
A
A
A
A
A
A
A
A
:# 7 :
47#04 /#
A
+(
+(
+(
+(
+(
+(
+(
ÞETTA HELST ...
„ÞETTA er langtímafjárfesting,“
segir Guðmundur Örn Þórðarson, en
Birgir Bieltvedt og Guðmundur, sem
eiga saman BG Partners, leiða hóp
fjárfesta sem keypti 81% í Skeljungi
á dögunum. Guðmundur segir að
engin áform séu uppi um breytingar
á innviðum félagsins eða stjórnenda-
teymi þess.
Glitnir, sem á í dag 19% í Skelj-
ungi, hafði áður sölutryggt félagið en
það hafði verið í söluferli í tæpt ár
hjá fyrri eiganda, Fons eignarhalds-
félagi. Ekkert liggur fyrir um áform
Glitnis varðandi sinn eignarhlut.
Ásamt Birgi og Guðmundi sitja í
nýrri stjórn Ríkharður Ottó Rík-
harðsson, Eygló Björk Kjartans-
dóttir og Svanhildur Nanna Vigfús-
dóttir. Að beiðni fyrri eiganda, Fons
eignarhaldsfélags, er kaupverðið
trúnaðarmál. Fráfarandi stjórn hef-
ur þegar látið af störfum.
thorbjorn@mbl.is
Teymi fjárfesta
keypti Skeljung
● ÚRVALSVÍSITALAN í Kauphöllinni á
Íslandi lækkaði um 1,3% í gær sem
var mjög frábrugðið því sem gerðist í
öllum helstu kauphöllum í nágranna-
löndunum, en hækkanir voru miklar
víðast hvar.
Viðskipti með hlutabréf námu
samtals um 169 milljónum króna,
mest með hlutabréf Føroya banka,
eða fyrir um 117 milljónir, og hækk-
uðu bréf bankans um 3,1%.
Hlutabréf Atorku lækkuðu mest í
gær, 23%, en þau hækkuðu um 30%
í fyrradag. Þá lækkuðu bréf Bakka-
varar um 8,0%. gretar@mbl.is
Úrvalsvísitalan í
Kauphöllinni lækkaði
Langmest lánað til stjórnenda
Samkvæmt efnahagsreikningi
Kaupþings lánaði bankinn alls rúm-
lega 50 milljarða króna til starfs-
manna svo þeir gætu keypt hluti í fé-
laginu. Langstærsti hluti þessara
lánveitinga var til stjórnenda og val-
inna lykilstarfsmanna. Heimildir
Morgunblaðsins herma að stærstu
lánin hafi verið veitt til Hreiðars Más
og Sigurðar Einarssonar, fyrrver-
andi stjórnarformanns bankans.
Lánveitingar til fyrrverandi fram-
kvæmdastjóra bankans, sem margir
hverjir eru meðal helstu stjórnenda
Nýja Kaupþings í dag, vógu einnig
þungt. Auk þess fékk fjöldi almennra
starfsmanna lánaðar milljónir króna
hver til að kaupa hluti í Kaupþingi.
Veðköll voru í lánasamningum
Hluti þeirra starfsmanna sem
fengu lán settu fram viðbótartrygg-
ingar sem áttu að bera hluta af lán-
unum. Öllum lánasamningum fylgdu
veðköll sem gerðu Kaupþingi kleift
FRÉTTASKÝRING
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@mbl.is
YFIRLÝSINGUNA sem hópur
stjórnenda og lykilstarfsmanna
Kaupþings er með í höndunum um að
þeir þurfi ekki að greiða lán sem þeir
fengu til að kaupa hluti í félaginu gaf
Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi
forstjóri Kaupþings, og fyrri stjórn
bankans samþykkti hana. Hún var
gerð í lok september síðastliðins, rétt
áður en að Kaupþing féll, og fól í sér
að ekki yrði gengið á persónulegar
ábyrgðir hópsins. Einu tryggingarn-
ar sem bankinn hafði fyrir lánveiting-
unum til þessara starfsmanna voru
því veð í hlutum þeirra, sem í dag eru
verðlausir.
að kalla eftir auknum tryggingum ef
hlutir í bankanum færu að lækka í
verði. Þeim var aldrei beitt þrátt fyrir
að gengi bréfanna hefði fallið mikið á
liðnu ári. Þess í stað hvöttu stjórn og
stjórnendur Kaupþings starfsmenn
sína til að selja ekki bréfin sín til að
veikja ekki tiltrú markaðarins.
Samþykkt að breyta skuldum
Fjölmiðlar hafa sagt frá því á und-
anförnum dögum að sumir starfs-
menn Kaupþings hafi fært eignar-
hluti sína í bankanum yfir í
einkahlutafélög skömmu áður en að
hann var þjóðnýttur. Við slíkar til-
færslur minnka persónulegar
ábyrgðir þeirra á lánunum. Þegar
flestir starfsmannanna hófu að kaupa
hluti í bankanum mátti slíkt hins veg-
ar ekki vegna tilskipunar frá Evrópu-
sambandinu (ESB) um gagnsæi í
eignarhaldi. Þeim reglum var síðar
breytt.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins eru dæmin um færslur af
þessu tagi þónokkur. Til þess að
hægt sé að færa skuldir einstaklinga
yfir í félög þarf að framkvæma skil-
málabreytingu á upphaflegu láni til
þeirra. Slíkar breytingar þarf stjórn-
andi í bankanum að heimila. Því er
ljóst að stjórnendum bankans var það
fullljóst að tilfærslurnar áttu sér stað.
Heimildir Morgunblaðsins herma að
nú standi yfir athugun á því hjá innri
endurskoðun Kaupþings hvernig á
þessu standi og hver hafi heimilað til-
færslurnar.
Forstjóri fríaði starfsmenn ábyrgð
Hreiðar Már gaf yfirlýsingu um takmarkaða ábyrgð á hlutum í septemberlok Stjórn Kaupþings
samþykkti hana Rúmlega 50 milljarðar lánaðir til starfsmanna til að kaupa í bankanum
Sala hluta-
bréfa
rannsökuð
Sænsk lögreglu-
yfirvöld rannsaka sölu
Moderna í Carnegie
LÖGREGLUYFIRVÖLD og fjár-
málaeftirlitið í Svíþjóð hafa tekið
sölu Moderna Finance á 7,5% hlut í
sænska fjárfestingabankanum
Carnegie í síðasta mánuði til rann-
sóknar. Moderna Finance er dóttur-
félag íslenska fjárfestingafélagsins
Milestone sem er í eigu Karls Wer-
nerssonar og fjölskyldu.
Moderna Finance greindi frá því
hinn 8. október síðastliðinn að félag-
ið hefði minnkað hlut sinn í Carnegie
úr 17,6% í 10,1%. Í frétt á fréttavef
sænska blaðsins Dagens Industri
(DI) segir að um tveimur vikum síð-
ar hafi Carnegie birt mjög slæmt
þriggja mánaða uppgjör. Sænski
seðlabankinn veitti Carnegie neyð-
arlán upp á 5 milljarða sænskra
króna vegna slæmrar stöðu bankans.
Í kjölfarið lækkaði gengi hlutabréfa
Carnegie mikið, eða um liðlega 60%
á einum degi, eftir að greint hafði
verið frá neyðarláninu.
Mál þetta er tilkomið vegna þess
að Anders Fällman, aðstoðarfor-
stjóri Moderna, sem á einnig sæti í
stjórn Carnegie, flokkast sem inn-
herji og má því ekki eiga aðild að
sölu hlutabréfa í félagi í minnst 30
daga áður en uppgjör er birt.
gretar@mbl.is
FLUGFÉLÖGIN Air
Berlin og Norwegian
og ónefnt arabískt
flugfélag eru sögð
hafa áhuga á að kaupa
að minnsta kosti hluta
af danska lággjaldaflugfélaginu Sterl-
ing. Segir í frétt Jótlandspóstsins að
hugsanlega muni takast að ganga frá
samningum fyrir vikulokin. Fons, fé-
lag í eigu Pálma Haraldssonar og Jó-
hannesar Kristinssonar, fór í síðustu
viku fram á gjaldþrotaskipti Sterling.
gretar@mbl.is
Tilboð í þrota-
bú Sterling
● ÚTGEFENDUR skuldatrygginga á
skuldabréf Landsbankans munu
greiða meira en 1,3 milljarða evra til
þess að jafna afleiðusamninga sem
urðu virkir þegar íslenska ríkið tók yf-
ir stjórn bankans í síðasta mánuði,
að því er fram kemur á vef Bloom-
berg. Á uppboði með skuldatrygg-
ingar á skuldabréf bankans í gær
seldust tryggingarnar fyrir 3,375
sent á móti evru. Verðið þýðir að út-
gefendur skuldatrygginga munu
þurfa að greiða kaupendum skulda-
bréfa rúmlega 96,6% af kaupverð-
inu. Uppboðið í gær var fyrsta upp-
boðið af þremur í þessari viku á
skuldatryggingum á skuldabréf ís-
lensku bankanna.
thorbjorn@mbl.is
Tryggingar fóru fyrir
3,4% af verði bréfa
Hjá Kaupþingi var mjög ríkt að
starfsmenn samsömuðu sig með
bankanum og lagt mikið upp úr því
að árangur lykilstarfsmanna
tengdist heildarárangri bankans.
Slíkt var tryggt með kaupréttar-
samningum sem gerðu þessum
hópi kleift að fá lánað hjá bank-
anum fyrir hlutum í honum og
setja hlutina sjálfa sem veð fyrir
láninu. Því ríkara sem Kaupþing
varð, þeim mun ríkari urðu starfs-
mennirnir. Stærsti hluti þessa
hóps starfaði enn hjá Kaupþingi
þegar bankinn féll og hafði aldrei
selt sína hluti. Þegar halla fór und-
an fæti hjá bankanum seinni hluta
ársins 2007 fór að bera á því að
starfsmennirnir hefðu áhyggjur af
stöðunni þar sem veðið, bréfin
sjálf, fóru hríðlækkandi í verði.
Stjórn og stjórnendur Kaupþings
þrýstu þá mjög á starfsfólkið að
selja ekki bréfin sín vegna þess að
það hefði veikt tiltrú markaðarins
á bankanum ef stjórnendur og lyk-
ilstarfsmenn færu að selja. Þess í
stað voru þeir fullvissaðir um að
ekki yrði gengið á persónulegar
ábyrgðir.
Einn fyrir alla og allir fyrir Kaupþing banka