Morgunblaðið - 05.11.2008, Page 19
19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 2008
Í HNOTSKURN
»Gasvinnsla mun afla Norð-mönnum tekna langt fram
eftir öldinni og má nefna að
gasvinnslan á Tröllasvæðinu
mun að óbreyttu standa yfir
allt til ársins 2060, að mati
Hege Marie Norheim, aðstoð-
arforstjóra birgða- og við-
skiptaþróunar á norska land-
grunninu hjá StatoilHydro.
»Til að gasvinnsla muniborga sig á Drekasvæðinu
þarf gasmagnið í hverri lind
að vera mjög mikið.
„ÞAÐ er óhætt að álykta að hátt
olíuverð muni framlengja olíu-
vinnsluskeiðið í Noregi. Hátt verð
þýðir að meiri olíu verður dælt upp
en ella. Það er erfitt að segja til
um hversu lengi vinnslan mun
standa yfir. Ef olíuleitin gengur vel
er það hvati til frekari leitar og öf-
ugt,“ segir Øystein Michelsen, að-
stoðarforseti StatoilHydro, á sviði
olíuvinnslu í Norður-Noregi, um
horfurnar í iðnaðinum.
Líkt og greint var frá í Morgun-
blaðinu á sunnudag eru taldar góð-
ar líkur á að olíuvinnsla sé raun-
hæfur möguleiki á Drekasvæðinu,
norðaustur af Íslandi, og má því
segja að þróunin í norska olíu-
iðnaðinum, um fjórum áratugum
eftir upphaf olíuvinnslu á Norð-
ursjó, muni koma Íslendingum að
góðu gagni. Þegar sú vinnsla hefst
er nær öruggt að olíuverðið verði
hátt, þróun sem ýta mun undir
vinnsluna.
Fleiri þættir hafa áhrif
Inntur eftir því hver áhrif olíu-
verðsins hafi haft á norska olíu-
iðnaðinn upp á síðkastið bendir
Michelsen á fleiri áhrifaþætti.
Hátt olíuverð sé aðeins einn
margra þátta. Neikvæðar hliðar
mikilla olíuverðshækkana komi
fram í geysilegum verðhækkunum
á öllum aðföngum, búnaði og þjón-
ustu. Allir vilji hlut í gróðanum.
Engu að síður hafi hagnaður
StatoilHydro, sem er með yfir-
burðastöðu í norskum olíuiðnaði,
aukist verulega síðustu misseri,
auk þess sem mjög góðum árangri
hafi verið náð við olíuleit í ár.
„Það hefur verið stöðug þróun í
olíuleit og framleiðslu. Það hefur
verið stórkostlegt að fylgjast með
því hvað við höfum afrekað á þessu
sviði síðustu tíu til fimmtán árin,“
segir Michelsen og nefnir framfarir
við gerð tölvulíkana sem dæmi um
miklar framfarir í iðnaðinum. Þá
hafi orðið stórstígar framfarir við
olíuboranir.
Allt hafi þetta stórhækkað
vinnsluhlutfallið í einstökum lind-
um, ásamt því að auka líkur á olíu-
borun á erfiðum svæðum.
Hvað varði Jan Mayen-svæðið
hafi StatoilHydro skoðað fýsileika
vinnslu þar. Hann geti hins vegar
ekki tjáð sig frekar um málið. Þá
hafi fyrirtækið fylgst mjög vel með
þróuninni á norðurskautinu, en líkt
og með Jan Mayen, sé hann bund-
inn þagnareiði.
Enn á ekki komið á ratsjána
Norðmenn hafa úr mörgum
verkefnum að velja og enn sem
komið er er þeirri stefnu stjórn-
arinnar fylgt að leggja áherslu á ol-
íu- og gasvinnslu í Barentshafi og
Norðursjó áður en litið sé til ann-
arra svæða.
Þetta segir Gunnar Gjerde,
stjórnandi í olíu- og gasiðn-
aðardeild norska olíu- og orku-
málaráðuneytisins, sem tekur undir
með Michelsen að athugun á fýsi-
leika olíuvinnslu á Jan Mayen-
svæðinu sé skammt á veg komin.
Árið 2020 sé ráðgert að olíu-
vinnslan í Noregi verði á milli 1-1,5
milljón tunnur á dag, samanborið
við um 2,4 milljónir tunna í dag.
Samdrátturinn verði því hraður.
Miklar framfarir í olíutækni
Øystein Michelsen
Ljósmynd/Aker Drilling/Kim Laland
Gunnar Gjerde
Framþróun í norska olíuiðnaðinum hækkar vinnsluhlutfall einstakra linda
Á sama tíma hefur himinhátt olíuverð stóraukið kostnaðinn við olíuvinnsluna
Fari svo að olíuvinnsla
hefjist á Drekasvæðinu
síðar á öldinni munu Ís-
lendingar njóta góðs af
norskri tækniþróun.
Svokölluð halavinnslu-
fyrirtæki gætu þá orðið
á hvers manns vörum.
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„HALAVINNSLA kemur til sög-
unnar þegar bróðurparturinn af ol-
íunni er búinn, þá minnkar vinnslan
og það stefnir í lokun svæðisins,“
segir Jón Steinar Guðmundsson,
prófessor í olíuverkfræði við
Tækniháskólann í Þrándheimi
(NTNU), um þennan tiltölulega ný-
tilkomna iðnað í Noregi.
„Stóru olíufélögin þurfa mikla
vinnslu til að hún sé hagkvæm, það
kemur að þeim tímapunkti þegar
vinnslan er farin að minnka og það
borgar sig ekki lengur fyrir þau að
halda henni áfram.
En litlu olíufélögin hafa ekki eins
mikla yfirbyggingu og geta því
haldið hagkvæmri vinnslu í gangi í
mörg ár á svæðum sem eru ekki
lengur hagkvæm fyrir þau stóru.
Det norske, olíufélag hér í Þránd-
heimi, er eitt af þeim fyrstu í Nor-
egi sem sér-
hæfa sig í
halavinnslu. Fé-
lagið keypti
svæði af Norsk-
Hydro fyrir eina
krónu, og hefur
nú unnið þar í
6-8 ár, ef ég
man rétt. Kan-
adískt fyrir-
tæki, Talisman
Energy, er stærst á þessu sviði.
Fyrirtækið, sem starfar í Noregi,
stundar ekki rannsóknir eða olíu-
leit. Yfirbyggingin er lítil og þess
vegna getur það keypt gömul
svæði og unnið olíu og gas úr þeim
á hagkvæman hátt, en olíuleit er
kannski stærsti kostnaðarliðurinn í
olíuvinnslunni sem er undanskilinn
í starfsemi halavinnslufélaganna.“
Sporgöngumenn þeirra stóru
Jón Steinar
Guðmundsson
OLÍUVINNSLA í Noregi hefur þeg-
ar náð hámarki og munu nýir olíu-
fundir á næstu áratugum fram-
lengja vinnsluna fram eftir öldinni,
þegar vægi jarðgassins tekur að
aukast. Hátt olíuverð og bætt
vinnslutækni gerir kleift að vinna
meiri olíu úr lindum en ella, þar
með talið á svæðum sem stóru olíu-
félögin hafa yfirgefið.
Svona dregur Torgeir Anda, tals-
maður olíufyrirtækisins Det
norske, saman sýn fyrirtækis, sem
sér mikil sóknarfæri í vinnslu á yf-
irgefnum svæðum, á borð við Frey,
þar sem vinnslu lauk 2001 (sjá
ramma um viðskiptalíkan hala-
vinnslunnar).
Sérfræðingar Det norske hafi
fundið út að enn var töluvert eftir í
lindunum, það er olía fyrir 30 millj-
arða norskra króna eða fyrir sem
svarar 575 milljörðum íslenskra
króna, út frá
þeirri forsendu
að tunnan kosti
100 dali.
Óhætt er að
fullyrða að þess-
ar framfarir í ol-
íuvinnslutækni
muni síðar á öld-
inni gagnast Ís-
lendingum, að
því gefnu að olíuvinnsla hefjist á
Drekasvæðinu, jafnvel þegar eftir
tíu ár, eins og Terje Hagevang, ol-
íuverkfræðingur hjá Sagex Petro-
leum ráðgerir, gangi allt að óskum.
Áhersla á opnun nýrra linda
Inntur eftir því hvaða hlutverki
ný olíusvæði á norðurslóðum muni
gegna á næstu áratugum segir
Anda að aukinn áhersla verði lögð
á að hefja vinnslu úr nýjum lindum.
Á sama tíma telji Norðmenn
brýnt að hefja olíuvinnslu á nýjum
svæðum í Barentshafinu, sem séu
frá sjónarhóli umhverfisins síður
umdeild en vinnsla úr nýjum lind-
um annars staðar á landgrunninu.
Anda setur olíuvinnsluna á norð-
urslóðum nú um stundir í sögulegt
samhengi og bendir á að talið sé að
heimsvinnslan muni senn staðna í
100 milljónum tunna á dag og því
ekki fara í 120 milljón tunnur 2030,
líkt og Alþjóðaorkustofnunin hafi
spáð, en svo dregið til baka.
Með hliðsjón af vaxandi olíuþörf í
heiminum, sem er nú hátt í 90 millj-
ón tunnur á dag, muni vægi olíu frá
landgrunninu á norðurslóðum því
fara vaxandi í framtíðinni. Af þeim
sökum telur Anda að markaðs-
aðstæður muni skapa viðvarandi
þrýsting á að halda olíuverðinu háu
næstu áratugi.
Röðin komin að norðrinu
Torgeir Anda
38.000
milljarðar íslenskra króna.
Verðmæti norska olíusjóðsins í
júnímánuði 2008.
2.808
milljarðar íslenskra króna.
Hagnaður StatoilHydro árið
2007 fyrir skatta.
7,7
milljarðar íslenskra króna.
Hagnaður StatoilHydro árið
2007 fyrir skatta á dag.
93.000
milljarðar íslenskra króna.
Áætlað verðmæti olíunnar á
Drekasvæðinu í dag.
1905 Norsk Hydro er stofnað
um framleiðslu áburðar úr
köfnunarefni. Orka úr
vatnsaflsvirkjunum er nýtt til
vinnslunnar. Einar Benedikts-
son skáld hreifst af hinum
nýja iðnaði, mörgum áratug-
um fyrir stofnun Áburðar-
verksmiðjunnar á Íslandi.
1972 Norska olíufyrirtækið
Statoil er stofnað. Tveimur ár-
um síðar finnst mikið magn ol-
íu á Statfjordsvæðinu. Vinnsl-
an hófst svo árið 1979 og er
ráðgert að hún standi yfir allt
til ársins 2019. Aðkoma hala-
vinnslufyrirtækja gæti orðið
til að lengja vinnslutímann.
2007 Sameining Norsk Hydro
og Statoil verður að veruleika.
Úr verður orkurisinn Statoil-
Hydro, sem, eins og sýnt er
hér til hliðar, gegnir gífurlega
mikilvægu hlutverki í norska
þjóðarbúskapnum. Samein-
ingin þótti efla sóknarfæri
fyrirtækjanna utan landsins.
StatoilHydro
Ljósmynd/Statoil/Øyvind Hagen Ljósmynd/Statoil
Ný staða í norðri