Morgunblaðið - 05.11.2008, Side 34
34 MenningFRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 2008
ELLEFU rithöfundar hafa nú lýst
opinberlega yfir stuðningi sínum
við tékkneska höfundinn Milan
Kundera sem hefur setið undir
ásökunum um að hafa verið upp-
ljóstrari fyrir leynilögreglu komm-
únista.
Í breska blaðinu Independent var
birt brot úr yfirlýsingu rithöfund-
anna: „Orðspor eins besta núlifandi
skáldsagnahöfundar heims hefur
verið svert á vægast sagt hæpnum
forsendum. Við höfum vanþóknun á
þessari skipulögðu ófrægingar-
herferð og lýsum hér með yfir sam-
stöðu með Milan Kundera.“ Meðal
þeirra sem skrifuðu undir bréfið
voru Nóbelsverðlaunahafarnir J. M.
Coetzee, Gabriel Garcia Marquez,
Nadine Godimer og Orhan Pamuk.
Fyrir þremur vikum birti tékk-
neska vikublaðið Respekt grein þar
sem fullyrt var að sagnfræðingar
hefðu fundið gögn úr skjalasafni
leynilögreglunnar sem sönnuðu að
Kundera hefði árið 1950 bent á Mi-
roslav Dvoracek sem njósnara, en
hann sat í fangelsi fyrir það í fjór-
tán ár.
Kundera hefur neitað ásökunum
og hótað að fara í mál við tímaritið.
Hann var félagi í kommúnista-
flokknum sem ungur maður, en var
rekinn þaðan fyrir að gagnrýna
flokkinn sem einræðisafl.
Rithöfundar
styðja Milan
Kundera
Kundera Neitar allri sök.
Í FYRIRLESTRI Kristínar
Bragadóttur, Rósabekkir og
bókahnútar í prentverkum
fyrri alda, verður fjallað um
þær bækur íslenskar sem
mikill prentlistarlegur metn-
aður var lagður í á sínum
tíma.
Þetta er hluti af röð há-
degisfyrirlestra í tilefni af
aldarafmæli bókbandsstofu safnsins. Fyrirlest-
urinn verður haldinn í fyrirlestrasal Þjóð-
arbókhlöðu á morgun og hefst klukkan 12:05.
Í fyrirlestrinum verða m.a. sýndar titilsíður og
skreytingar á bókum sem prentaðar voru á Hól-
um, Núpufelli, Skálholti og í Viðey.
Fræði
Kristín kynnir ís-
lenskt prentverk
Í Þjóðarbókhlöðu
Í DAG heldur Sinfón-
íuhljómsveit Íslands í
tónleikaferð um Austur-
land. Tvennir tónleikar
verða haldnir, þeir fyrri í
Kirkju- og menningar-
miðstöð Fjarðabyggðar
á Eskifirði í kvöld og
þeir síðari í íþróttahús-
inu á Höfn í Hornafirði annað kvöld.
Tónleikarnir hefjast kl. 20 og aðgangur er
ókeypis meðan húsrúm leyfir.
Á efnisskránni verður m.a. hin sívinsæla
fimmta sinfónía Beethovens og verk eftir Dvorák,
Grieg, Árna Björnsson og Sibelius. Stjórnandi á
tónleikunum er Petri Sakari.
Tónlist
Sinfónían í tónleika-
ferð á Austfjörðum
Petri Sakari
Á LAUGARDAGINN
klukkan 16 verður
opnuð sýning í Nor-
ræna húsinu á sér-
hönnuðum prjóna-
fatnaði frá norska
hönnunarfyrirtækinu
DUODU í Þránd-
heimi. Fatahönnuðirnir Rita Nylander og Anne
Grut Sörum hafa rekið fyrirtækið saman frá árinu
1998.
Í sambandi við sýninguna mun Halldór Gísla-
son, arkitekt og deildarforseti hönnunardeildar
Kunsthögskolen í Osló, halda fyrirlestur um
norska hönnun kl. 15, áður en sýning DUODU
verður opnuð í sýningarsal í kjallara hússins.
Hönnun
Ný norsk hönnun
í Norræna húsinu
Norræna húsið
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
LEIKFÉLAG Kópavogs hefur tekið
nýtt leikhús í notkun sem er fyrst og
fremst ætlað til leiksýninga og leik-
listariðkunar almennt.
„Við vorum með aðsetur í Félags-
heimili Kópavogs. Bæjarskrifstof-
urnar eru þar til húsa og það var ljóst
fyrir nokkru að þær þyrftu að leggja
allt húsið undir sig. Við fengum vilyrði
frá bænum um að þeir myndu hjálpa
okkur að koma okkur fyrir á nýjum
stað,“ segir Hörður Sigurðarson, for-
maður Leikfélags Kópavogs.
„Bærinn kaupir húsið en við höfum
þar öll yfirráð gegn því að við upp-
fyllum og sinnum ákveðnum sam-
starfssamningi sem m.a. kveður á um
unglinga- og barnastarf.“
Aðrir leikhópar vilja inn
Hörður segir það gjörbreyta starf-
semi leikfélagsins að vera komið í eig-
ið húsnæði. „Þetta þýðir að við getum
verið með meiri og fjölbreyttari starf-
semi og höfum frjálsari hendur um
það sem við gerum.“ Húsið sem hefur
hlotið nafnið Leikhúsið var vígt um
miðjan október með frumsýningu á
nútímalegri uppfærslu á Skugga-
Sveini í leikstjórn Ágústu Skúladótt-
ur. „Það er mikil starfsemi fyrirhuguð
á þessu leikári sem væri ekki mögu-
leg nema vegna nýja húsnæðisins. Í
vetur munum við einnig setja upp
barnasýningu, unglingadeildin verður
með sýningu og með vorinu stefnum
við á að vera með gamanleikrit.
Næsta sumar höfum við í huga að
vera með tómstundastarf fyrir börn á
leiklistarsviðinu.“
Aðspurður segir Hörður að þegar
sé mikil eftirspurn eftir að komast í
húsið hjá öðrum leikhópum og allt líti
út fyrir að það verði fullnýtt þegar
fram í sækir. „Draumasmiðjan er
þegar farin að æfa hjá okkur og frum-
sýnir um miðjan mánuðinn. Það er
engin spurning að það er mikil þörf
fyrir húsnæði fyrir áhuga- og at-
vinnuleikhópa. Það er nóg af húsum
út um allt en fæst þeirra eru hugsuð
sem leikhús en þetta er hannað og
smíðað eins og best verður á kosið
fyrir leiklistarstarfsemi,“ segir Hörð-
ur en Leikhúsið tekur um sjötíu
manns í sæti.
Mikil þörf á sérhæfðu húsnæði fyrir starfsemi áhuga- og atvinnuleikhópa
Þýðir fjölbreytt-
ari starfsemi
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Í nýja húsnæðinu „Það er mikil starfsemi fyrirhuguð á þessu leikári sem
væri ekki möguleg nema vegna nýja húsnæðisins,“ segir formaðurinn.
Í HNOTSKURN
» Leikfélag Kópavogs varstofnað 5. janúar 1957 og hóf
sína starfsemi í barnaskóla bæj-
arins. Árið 1959 fékk það inni í
félagsheimili Kópavogs og var
þar fram til október 2008.
» Leikhúsið er í gömlu versl-unarhúsnæði í Funalind 2.
» Heimasíða Leikfélags Kópa-vogs er: www.kopleik.is.
Eftir Gunnhildi Finnsdóttur
gunnhildur@mbl.is
PÓLSKI fiðluleikarinn Szymon Kuran setti mikinn svip á ís-
lenskt tónlistarlíf, allt frá því að hann fluttist hingað til lands
um miðjan níunda áratuginn og þar til hann lést fyrir þremur
árum. Hann var annar konsertmeistari hjá Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands um árabil, auk þess sem hann samdi eigin tón-
verk, spilaði í djasshljómsveitum og lék kvikmyndatónlist.
Á morgun verður dagskrá í versluninni 12 Tónum um
þennan merka tónlistarmann. „Þetta var einn af okkar allra
bestu fiðluleikurum, hann gat spilað hvað sem var og spunnið
hvað sem var,“ segir Ragnhildur Þórarinsdóttir sem stendur
að kynningunni ásamt Jóhönnu Margréti Thorlacius.
Ragnhildur hefur unnið að því að halda nafni Szymons á
lofti, meðal annars með útgáfu á verkum hans og tónleika-
haldi. „Hann gerði mjög margt fyrir íslenskt tónlistarlíf, ég
get tekið hljómsveitina Súld sem dæmi. Hún flutti fram-
úrstefnutónlist sem vakti athygli í Norður-Ameríku og hér
heima. En mörg verka hans eru klassísk“
Dagskráin fer fram á milli klukkan 17 og 18 og eru allir vel-
komnir. Verk Szymons sem til eru á geisladiskum verða
kynnt og vinir hans og samstarfsfólk fjalla um feril hans bæði
í tali og tónum. Meðal þeirra eru Vilborg Dagbjartsdóttir
sem les ljóð, Hilmar Örn Hilmarsson sem kynnir kvikmynda-
tónlist og Ólafur Þórðarson mun fjalla um djass og jað-
artónlist.
Farið yfir feril tónlistarmannsins Szymons Kurans
Spilaði og spann hvað sem er
Morgunblaðið/Ásdís
Við píanóið Szymon Kuran gerði margskonar tónlist.
JÓN Karl Helgason
bókmenntafræð-
ingur vinnur nú að
bók um Ragnar
Jónsson, sem yfir-
leitt var kenndur
við smjörlíkisgerð-
ina Smára.
„Það kemur fyr-
ir að maður les
ævisögur þar sem
er rakið nákvæmlega hvað viðfangs-
efnið hefur fengist við frá einu ári til
annars, en manni finnst maður ekki
þekkja manneskjuna neitt sérstakleg
vel. Ég hef stundum sagt að mig lang-
aði að skrifa bók þar sem fólk finnur
lyktina af Ragnari í Smára.“
Ragnar í Smára hafði mikil umsvif
í iðnaði, en hann hafði ekki síður ítök
í menningarlífinu þar sem hann var
forleggjari bókaútgáfunnar Helga-
fells, formaður Tónlistarfélagsins í
Reykjavík og öflugur listaverka-
safnari.
Bókin kemur út á næsta ári, en
Jón Karl heldur í dag hádegisfyrir-
lestur um aðferðir sínar við skrift-
irnar. „Í stað þess að skrifa svona
hefðbundinn ævisagna-annál, sem
hefst á því að rekja ættir hans og
segja frá æskunni, langar mig að
leiða augum þrjá daga í lífi hans,“
segir Jón Karl. Þetta þriggja daga
tímabil ber upp á umbrotatíma í lífi
Ragnars, án þess að Jón Karl vilji
gefa meira upp.
Fyrirlesturinn hefst klukkan
12.05 í dag í Reykjavíkurakademí-
unni. Annað kvöld klukkan 20 fjallar
Jón Karl um svipað efni í Safnahús-
inu á Húsavík.
Að finna lyktina af
Ragnari í Smára
Jón Karl Helgason ræðir aðferðir
í ævisagnaritun í hádeginu í dag
Jón Karl Helgason
Nú hefur Bond
svarað kalli tímans,
er orðinn metrósexúal og
meiri tilfinningavera... 41
»
Leiðrétting
ÞAU leiðu mistök urðu við vinnslu
fréttar af tónleikum Snorra Sigfúsar
Birgissonar í blaðinu í gær að nafn
Þorkels Sigurbjörnssonar var mis-
ritað. Snorri Sigfús og lesendur
blaðsins eru beðnir velvirðingar.