Morgunblaðið - 05.11.2008, Page 40
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 2008
Eftir Ásgeir Ingvarsson
asgeiri@mbl.is
TÍMI er kominn til að taka það til
skoðunar hvort kvikmyndin sé besti
miðillinn þegar kemur að hryllings-
sögum.
Það eru nefnilega engar ýkjur að
tölvuleikurinn Dead Space markar
viss tímamót í hryllingi og kemur
ekki á óvart að leikurinn fær glimr-
andi dóma hjá öllum gagnrýn-
endum.
Sá sem þetta skrifar prísar sig
sælan að hafa purfukeyrt leikinn á
litlu og lélegu sjónvarpi með ósköp
venjulegu hljóðkerfi. Ef leikurinn
hefði fengið að njóta sín til fulls á
stóru háskerputæki og hljóðið hefði
verið alltumlykjandi er alls óvíst að
taugarnar hefðu þolað álagið.
Klassík í stað klisju
Dead Space fæst við gamalkunn-
ugt þema: drungaleg geimstöð þar
sem ógurleg skrímsli ganga laus og
stökkva þegar síst væntir fram úr
myrkum skúmaskotum. En í stað
þess að búa til klisju hafa smiðir
leiksins náð að skapa klassík og
leggst þar allt á eitt að skapa rétta
andrúmsloftið: skrímslin, umhverfið
og söguþráðurinn.
Í tölvuleik öðlast hryllingurinn
dýpt sem ekki er hægt að ná í gegn-
um kvikmynd. Maður þarf nefnilega
sjálfur að taka ákvörðun um að halda
áfram niður dimma ganginn (og er
oft skapi næst að segja þetta gott og
slökkva á tölvunni!). Ekki dugar
heldur að skjóta bara og skjóta held-
ur þarf að halda sönsum og nýta sér
veikleika skrímslanna ef maður vill
eiga einhverja von um að komast
óétinn af geimskipinu ógurlega.
Limlestingar í þyngdarleysi
Drungi geimsins er nýttur til hins
ýtrasta, flöktandi ljós í rangölum
skipsins veita sáralítinn fyrirvara um
að blóðþyrstir og afskræmdir upp-
vakningar séu að koma til að finna
eitthvað gott að narta. Fjölbreytnin
er líka til staðar og í sumum köflum
þessarar 15 klst. löngu hryllingssögu
eru spilendur minntir á að í þyngd-
arleysi geta óvinirnir komið úr öllum
áttum, og að í lofttæmi heyrðirðu
ekki í þeim urrið og korrið heldur
bara eigin andardrátt, hjartslátt og
sársaukaöskur þegar óvættirnar
læsa í þig klónum.
TÖLVULEIKIR» DEAD SPACE
Með hjartað í buxunum
Dead Space minnir á að í þyngdarleysi
geta hætturnar komið úr öllum áttum
Gettu hver! Gaman er að segja frá því að í nýjustu auglýsingunni fyrir Dead Space er Sigur Rósar-lag látið skapa
stemninguna, og á furðu vel við líkamsleifar og blóðslettur svífandi um í myrkri og þyngdarleysi. Hér má sjá hvar
söguhetja leiksins er í þann mund að fá óvænt faðmlag.
Erlendir dómar
GameSpy: 100/100
Game Informer: 93/100
GameShark: 91/100
GameSpot: 90/100
/ ÁLFABAKKA / KRINGLUNNI
HIGH SCHOOL MUSICAL 3 kl. 6D - 7:30 - 8:30D - 10:10 B.i. 12 ára DIGITAL
HIGH SCHOOL MUSICAL 3 kl. 5:30 LÚXUS VIP
EAGLE EYE kl. 5:40 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára
EAGLE EYE kl. 8 - 10:30 LÚXUS VIP
SEX DRIVE kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 12 ára
NIGHTS IN RODANTHE kl. 8 LEYFÐ
THE DARK KNIGHT kl. 10:10 B.i. 12 ára
DARK KNIGHT SÝND Í TAKMARKAÐAN TÍMA V/ FJÖLDA ÁSKORANA
GEIMAPARNIR m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
ZACH EFFRON
OG VANESSA HUDGENS
GERA ALLT VITLAUST Í
HIGH SCHOOL MUSICAL 3!
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELDOSSI SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG SELFOSSI
TOPP GRÍNMYND
SEX DRIVE FER FRAM ÚR AMERICAN PIE
Á 100 KM HRAÐA!
„VIÐBJÓÐSLEGA FYNDIN OG SKEMMTILEG GRÍNMYND.
KLÁRLEGA EIN AF ÓVÆNTARI RÆMUM ÁRSINS.
TÉKKIÐ Á HENNI!”
-TOMMI, KVIKMYNDIR.IS
HIGH SCHOOL MUSICAL 3 kl. 5:40D - 8D - 10:30D LEYFÐ DIGITAL
EAGLE EYE kl. 8D - 10:30D B.i. 12 ára DIGITAL
SEX DRIVE kl. 8:20 - 10:30 B.i. 12 ára
JOURNEY TO THE CENTER ... kl. 5:503D LEYFÐ 3D - DIGITAL
WILD CHILD kl. 5:50 LEYFÐ
„STÆRSTA OPNUN
Á DANS & SÖNGVAMYND
ALLRA TÍMA Í U.S.A“
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
Þetta er handbókin í ár fyrir stjórnendur sem eiga eftir að ákveða hvað
fyrirtækið ætlar að gefa samstarfsaðilum, viðskiptavinum og eigin
starfsfólki í jólagjöf.
Glæsilegur blaðauki um allt sem snýr að jólagjöfum frá
fyrirtækjum til starfsfólks og viðskiptavina fylgir
Viðskiptablaði Morgunblaðsins 13. nóvember.
Allar nánari upplýsingar veitir Sigríður Hvönn Karlsdóttir
í síma 569 1134 og 692 1010 eða sigridurh@mbl.is
Auglýsendur!
Pantið fyrir kl. 16 mánudaginn 10. nóvember.
Jólagjafir frá fyrirtækjum