Skinfaxi - 01.07.1968, Blaðsíða 3
Landsmótið á Eiðum
Enn voru veðurguðirnir okkur hlið-
hollir. Við vöknuðum í björtu sólskini
eldsnemma laugardagsmorguninn 13.
júlí austur á Eiðum. Það var blásið í
lúðra og sveitir þátttakenda úr öllum
landshlutum fylktu liði á knattspyrnu-
vellinum við barnaskólann. — Þaðan
gengu allir þátttakendur undir fánum
til frjálsíþróttavallarins, þar sem sveit-
irnar stóðu í skipulegum fylkingum
meðan mótið var sett. Fremst í skrúð-
göngunni gekk stjórn Ungmennafélags
íslands og aðrir forystumenn íþrótta-
og æskulýðsmála. Sveit Héraðssam-
bandsins Skarphéðins gekk fyrst kepp-
endasveitanna, en HSK var gestgjaf-
inn á síðasta landsmóti. Síðan komu
þátttökusveitir hinna ýmsu héraðssam
banda og félaga og síðast gekk sveit
gestgjafanna 1968, Ungmenna- og í-
þróttasambands Austurlands.
Þetta var mikið lið og frítt. Aldrei
höfðu svona margir þátttakendur verið
á landsmóti UMFI. I einstaklingsgrein-
um voru á fimmta hundrað keppendur
skráðir til leiks, og auk þess voru hinar
fjölmennu sveitir hópíþrótta, knatt-
leikja og íþróttasýninga. Landsmót
UMFl eru langstærstu íþróttamót sem
haldin eru hér á landi og þetta var það
stærsta til þessa að því er varðar f jölda
keppenda.
Setning mótsins
Þorsteinn Einarsson íþróttafulltrúi var
mótsstjóri á landsmótinu nú eins og
undanfarið, og stjómaði hann skrúð-
göngu þátttakenda, sem var hin til-
komumesta. I fararbroddi fór Lúðra-
sveit Neskaupstaðar, sem lék göngu-
lög undir stjórn Haralds Guðmunds-
sonar. Fyrir göngunni báru tveir stjórn
armenn UMFÍ, þeir Hafsteinn Þor-
valdsson og Sigurður Guðmundsson,
íslenzka fánann og Hvítbláinn, en síðan
gekk fylkingin eins og áður er lýst. Þeg-
ar staðnæmst var á frjálsíþrótta-
Þorsteinn Einarsson, mótsstjóri og sveit Ey-
firðinga.
SKINFAXI
3