Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.07.1968, Page 7

Skinfaxi - 01.07.1968, Page 7
Stúlkurnar í þjóðbúningunum eru í þjóðdansahópnum frá Eskifirði, sem sýndi undir stjórn Elínar Óskarsdóttur. ritanna í Arnasafni. Bjarni er enginn þjóðmálaskúmur. Málflutningur hans er hógvær en mjög rökfastur, heiðar- legur og sannfærandi. Hann er víð- kunnur fyrirlesari á Norðurlöndum, og eftir að hafa hlýtt á Bjarna á Eiðum þarf engan að undra, þótt hann hafi með málflutningi sínum náð eyrum fólks. Ræða Bjarna var hin merkasta og fékk góðar undirtektir, og er hún birt hér á öðrum stað í blaðinu. Börn frá Eskifirði höfðu mjög skemmtilega þjóðdansasýningu undir stjórn frú Elínar Öskarsdóttur á Eski- firði, og piltar frá Reyðarfirði sýndu glímu undir stjórn hins gamalkunna glímumanns Aðalsteins Eiríkssonar. Þá fór fram söguleiksýning á nýjum leikþætti ,,Að Krakalæk“ eftir Kristján Ingólfsson skólastjóra á Eskifirði, for- mann ÚIA. Fór Kristján sjálfur með eitt aðalhlutverkið, en Leikfélag Nes- kaupstaðar hafði sýninguna með hönd um. Söguleikur þessi fjallar um við- nám Austfirðinga gegn yfirráðatilraun- um Haralds hárfagra og erindreka hans, Una hins danska. Leikendur voru allir í litklæðum á formannavísu, og vakti leikurinn verðuga athygli, enda skörulega saminn og hið bezta fluttur. Sögusviðið er auðvitað Austurland, og kom Uni ríðandi gráu hrossi til fund- arins. Hafði hann sneypuför mikla, sem vænta mátti. Síðasta sýningaratriðið var mikil fimleikasýning barna og unglinga á SKINFAXI 7

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.