Skinfaxi - 01.07.1968, Qupperneq 4
Björn Magnússon dregur Hvítbláinn að húni.
Stefán Jasonarson horfir á.
vellinum, bauð Kristján Ingólfsson, for
maður UÍA, keppendur velkomna til
leiks og áhorfendur velkomna á stað-
inn. Að því búnu setti Eirikur J. Ei-
ríksson, formaður UMFl, mótið með
ávarpi, sem birt er á öðrum stað hér í
blaðinu.
Þá fór fram sérstæð og ánægjuleg at-
höfn, sem vonandi á eftir að verða að
erfðavenju á landsmótum UMFÍ. Stef-
án Jasonarson, formaður landsmóts-
nefndar 12. landsmótsins á Laugar-
vatni, afhenti Bimi Magnússyni, for-
manni landsmótsnefndar 13. lands-
mótsins, Hvítbláinn, tákn ungmenna-
félaganna, til varðveizlu. Fáninn er
vandaður og stór í sniðum, og er það
ætlun HSK, sem gefur landmótum
UMFl fánann, að hann verði afhentur
framkvæmdaaðila hvers landsmóts í
framtíðinni um leið og mótið hefst. —
Hvítbláinn var dreginn að húni á stórri
fánastöng á íþróttavellinum, og blakti
þar meðan mótið var háð.
Vorið, sem brást
I síðasta hefti Skinfaxa skýrði Björn
Magnússon, formaður landsmótsnefnd-
ar, frá því, hve miklir erfiðleikar hefðu
mætt UÍA-mönnum við undirbúning
mótsins, vegna hins fádæma kalda tíð-
arfars þar eystra í vor og í sumar allt
til móts. Gróðurlendi var meira og
minna kalið, hafísinn hafði lokað öllum
fjörðum Austanlands mánuðum sam-
an, allt atvinnulíf var lamað og þegar
slíkt ástand ríkir, er erfitt um allar
framkvæmdir. Iþróttavellimir á Eið-
um höfðu ekki farið varhluta af kal-
skemmdunum og hefði veður ekki hald-
izt þurrt allan mótstímann, hefði orðið
þungt undir fæti á íþróttavöllunum.
Það var mikið starfað á Eiðum fyrir
mótið, Austlendingar settu metnað
sinn í að ljúka öllum undirbúningi í
tæka tíð og lagði þá margur nótt við
dag til þess að allt mætti fara sem bezt
fram.
Þeir, sem svartsýnastir voru vegna
þess hve tíðarfarið hafði hamlað öllum
undirbúningi, voru léttbrýnir eins og
aðrir þennan sólglaða júlímorgun, þeg-
ar mótið hófst.
Sundlaugin plastklædda, sem fyrst
var notuð á Laugarvatnsmótinu, var
nú komin upp á Eiðum, en allt vatn í
hana varð að hita með kynditækjum.
Tókst ekki að ná þeim hita, sem venju-
lega er í sundlaugum, en sundfólkið lét
það ekki á sig fá. Allt íþróttafólk sýndi
4
SKINFAXI