Skinfaxi - 01.07.1968, Page 8
aldrinum 11-16 ára. Munu um 100
unglingar hafa tekið þátt í sýningunni
sem var á frjálsíþróttavellinum. — 1-
þróttakennararnir Þorvaldur Jóhanns-
son á Seyðisfirði og Þórir Sigurbjörns-
son í Neskaupstað höfðu æft bömin og
stjórnuðu sýningunni. Var þetta hin
glæsilegasta sýning og mjög ánægju-
legt að sjá þetta unga fólk í slíkum
f j öldasýningum.
Ekki verður annað sagt en að fram-
kvæmd mótsins í heild hafi tekizt mjög
vel. Landsmótsnefndin vann skipulag
sitt og undirbúningsstörf við erfiðar
aðstæður og það tókst að halda þeim
myndarbrag og menningarblæ á mót-
inu, sem er einkenni þessara stóru há-
tíða Ungmennafélags Islands.
Mikið hefur verið um mótið ritað og
rætt í blöðum og útvarpi. Landsmót
UMFf vekja jafnan þjóðarathygli og
allir ljúka upp einum munni þeim til
lofs. Hvað er það þá, sem vekur slíka
hrifningu þeirra, sem heimsækja lands-
mótin? Svarið liggur í augum uppi,
þótt ástæðurnar séu margar og sam-
ofnar. Þama sameinast fjölbreytar í-
þróttir og mörg önnur menningaratriði
með slíkri fjöldaþátttöku og reisn, og
að öllu er staðið með slíkri óeigingimi
og krafti, að allir hljóta að hrífast með.
Fólk skemmtir sér ekki aðeins prýði-
lega, heldur fær það nýjan þrótt og trú
á landið og þjóðina, þegar það sér,
hvernig æskan starfar og skemmtir sér
á heilbrigðan hátt.
Merki íþróttanna er aldrei haldið
jafn hátt á lofti hér á landi og á lands-
mótum UMFÍ. Hinn sanni íþróttaandi
kemur hvergi eins áþreifanlega í ljós.
Þetta eru ekki mót fyrir fáeina útvalda
heldur keppir fólk fyrst og fremst til
að vera með í góðri keppni og glöðum
leik. Hin mikla þátttaka í keppni og
sýningum dregur að sér mikinn áhorf-
endafjölda.
Landsmótsnefndina skipuðu þessir
UÍA-félagar: Bjöm Magnússon formað
ur, Magnús Stefánsson, Elma Guð-
mundsdóttir, Sigurður Blöndal, Sveinn
Guðmundsson, Jón Ólafsson og auk
þess Hafsteinn Þorvaldsson, tilnefndur
af UMFÍ. Austfirðingar fengu fleiri stig
í sinn hlut en á undanfömum mótum
og náðu 5. sæti í stigakeppni. Mótið
hefur orðið lyftistöng íþróttalifinu þar
eystra, og vonandi býr UÍA að því á-
fram. Það er ástæða til að óska Aust-
firðingum og UÍA sérstaklega til ham-
ingju.
KRISTJÁN INGÓLFSSON:
„Það tókst”
— Þetta tókst betur en ég þorði að
láta mig dreyma um eftir vorharðind-
in og erfiðleikana, sem við blöstu, sagði
Kristján Ingólfsson formaður UlA, er
við spurðum hann um álit hans á Eið-
armótinu.
— Ég tel, að við höfum náð því
markmiði, sem við settum okkur með
mótinu, þ. e. að veita mótsgestum
ánægju og skemmtun og að efla sam-
tök okkar heima fyrir. Ég vil nota
tækifærið til að þakka öllum þátttak-
endum í mótinu fyrir þeirra góða hlut,
og ég vil þakka öllum þeim mörgu, sem
störfuðu við undirbúning og fram-
kvæmd mótsins, bæði heimamönnum
og öðrum. Sérstaklega vil ég þakka
Þorsteini Einarssyni íþróttafulltrúa
fyrir góða samvinnu og gott starf.
8
SKINFAXI