Skinfaxi - 01.04.1970, Blaðsíða 7
ÆSÍ ÚR WAY
28. febrúar var haldið aukaþing Æsku-
lýðssambands íslands, og var þar sam-
þvkkt, að ÆSÍ segði sig úr alþjóðasam-
tökunum World Assembly of Youth
(WAY).
Óánægja hefur ríkt með aðild ÆSÍ að
WAY, einkum eftir að uppvíst varð, að
samtökin hefðu þegið peninga af banda-
r>sku leyniþjónustunni, CIA.
Fulltrúar UMFÍ á aukaþinginu voru:
Sigurður Geirdal (UMSK), Fjóla Valdi-
oiarsdóttir (Umf. Víkverja), Níels A.
Lund (UNÞ), Þórólfur Þórlindsson (UÍA)
°g Unnar Þór Böðvarsson (Umf. Barð-
strendinga). Fulltrúar UMFÍ voru ein-
kuga um það, að óbreytt aðild að WAY
v;£ri óviðunandi og vildu annað hvort
algera úrsögn úr WAY eða mjög óform-
lega aukaaðild.
Fvrir þinginu lá tillaga frá formanni
ÆSÍ, Ólafi Einarssyni, um að það yrði
ekki bundið í lögum ÆSÍ að samtökin
skyldu vera aðili að einhverjum alþjóða-
samtökum. Jafnframt þessari tillögu lá
ýVrir þinginu sérstök tillaga frá stjóm
^LSf um erlend samskipti ÆSÍ og gerir
tillagan ráð fvrir eftirfarandi fimm meg-
inatriðum:
1. aukið samstarf við æskulýðssamtökin
á Norðurlöndum. Fulltrúum fslands á
samstarfsfundi æskulýðssambandanna á
Norðurlöndum falið að bera fram hug-
mvnd um NOBDUNG, æskulýðssam-
band Norðurlanda.
2. Haldið áfram þátttöku í starfi
CENYC — Æskulýðsráðs Evrópu.
3. Kosin skvldi 5 manna milliþinga-
nefnd til þess að fjalla um aðild ÆSÍ
að Heimsþingi æskunnar. A meðan sú
athugun er í gangi skal stjórn ÆSÍ ekki
auka samskipti sín við WAY.
4. Aukið samstarf við æskulýðssam-
bönd þróunarlandanna.
5. Auka samskipti við æskulýðssam-
bönd einstakra ríkja á gagnkvæmnis-
grundvelli.
Auk tillagnanna lágu fyrir þinginu um-
fangsmiklar greinargerðir um alþjóðlegt
starf Æskulýðssambands íslands.
Tillögu formanns um lagabreytingar
var vísað til laganefndar að lokinni fvrri
umræðu á þingi. Skilaði laganefnd síð-
SRIN FAXI
7