Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.04.1970, Blaðsíða 22

Skinfaxi - 01.04.1970, Blaðsíða 22
sinni atriði og vandamál íslenzkrar æsku og íslenzks þjóðfélags. Þau geta verið hugsjónafélög og barist fyrir málefnum, án þess að eiga það á hættu að fá á sig stimpil stjórnmálanna, eftir honum eig- um við ekki að sækjast. En undirstaða slíks hugsjónafélags er umræða um mál- efnin, því af umræðunni skapast hug- myndir og ályktanir. Hana er hægt að framkalla, heilbrigða og hispurslausa, án þess að draga nokkurn taum neinnar stjórnmálastefnu. Það hefur sýnt sig, og skemmst er að minnast félagsmálanám- skeiðsins, er haldið var á vegum ung- mennafélagssamtakanna í Eyjafirði fvrir tæpu ári. Vandamál þjóðfélags vors eru mörg og það er okkar unga fólksins að taka af- stöðu til þeirra og berjast fyrir þeim og bættri menningu. Aldrei hefur heimur- inn verið í meiri þörf fyrir slíkt. Og þótt við séum lítils megnug, sýnir viðleitnin hugarfarið. Menning, menntun og siðgæði eru hyrningasteinar að heill og gæfu, að framförum og þroska þjóðar vorrar. Þessi orð eiga ekki síður erindi til okkar nú í dag, en þegar þau voru sögð fyrir tæpri öld síðan. Ungt fólk má ekki glata hug- sjóninni og félagsskapurinn má ekki verða svo ástfanginn af sjálfum sér, að hann hætti að veita umhverfinu athygli, þykist ekki eiga neinn keppinaut. Þórður Ingimarsson, Ásláksstöðum, Eyjaf. Okkur varð heldur betur á í messunni, er við birtum mynd frá Svínafelli í Öræfum í staS Skaftafells í síðasta blaði. Um leið og vi5 biðjum afsökunar, birtum við liér mynd af Skaftafelli. Myndin er tekin langt niðri á söndunum. 22 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.