Skinfaxi - 01.04.1970, Blaðsíða 25
ber vott um mikið og farsælt starf UMSS
á síðasta starfsári. Sérstaka athygli vekur
frammistaða Fljótamanna í skíðaiþróttinni,
en þeir unnu m.a. það frábæra afrek að
sigra í öllum göngukeppnum íslandsmeist-
aramótsins, og eignuðust þar 7 íslands-
meistaratitla. Var þeim sérstaklega þökkuð
framistaða á þinginu. Að öðru leyti snerust
umræður þingsins um íþrótta- og æskulýðs-
mál almennt, en sem fyi'r segir einkenndust
þingstörf nokkuð af Landsmótsundirbún-
ingnum, enda hefur nú þegar allmikið starf
vei-ið unnið í sambandi við það, og kom
greinilega fram á þinginu einlægur vilji
allra fullti'úa til þess að gera Landsmótið
sem glæsilegast. UMSS hefur nú ráðið sér
framkvæmdastjóra og er það Stefán Peter-
sen, Sauðárkróki, en hann er einnig for-
maður Landsmótsnefndar. í stjórn UMSS
voru kosnir: Guðjón Ingimundarson, for-
maður, Stefán Petersen, vai'aformaður,
Helgi Rafn Traustason, gjaldkeri, Árni M.
Jónsson, ritari, og meðstjórnandi Stefán
Guðnxundsson. Gestir þingsins voi'u Haf-
steinn Þorvaldsson, formaður UMFÍ, Sig-
urður Geirdal, framkvæmdastjóri UMFÍ, og
Sveinn Bjöi'nsson frá ÍSÍ.
U.SVH.
Héraðsþing USVH 1970 var
haldið í Ásbyi'gi laugardag-
inn 2. maí. Þingið sátu 12
fulltrúar fx'á 6 sanxbands-
félögum. Gestir þingsins
voru Gunnar Sveinsson,
gjaldkeri UMFÍ og Pálrni
Gíslason stjórnarm. UMFÍ.
í skýi'slu stjórnar sambandsins kom m.a.
fram að starfsemin hefur heldur farið vax-
andi á liðnu starfsári. Aðalþáttur starfsins
var nú sem fyrr íþróttirnar og voi’u þar
aðalverkefni héraðsmót í frjálsum íþrótt-
um, bæði unglinga og fullorðinna, keppni
við HSS í frjálsum íþi'óttum og knattspyrnu
og þriggja sambanda keppnin USVH. —
USAH — UMSS, er sambandið sá um að
þessu sinni. Auk þessa fóru íþróttamenn
frá sambandinu á ýmiss önnur íþi'óttamót,
og ýmis srnærri mót fóru fi’am innan hér-
aðs.
Spurningakeppni fór fi’am á liðnurn vetri
milli sambandsfélaganna og lauk henni með
sigri Umf. Korkmáks á Hvammstanga.
Keppni þessi fór mjög vel franx og voru
sanxkomurnar fjölsóttar. Hefur þessi starf-
semi oi’ðið allnxikill fjárhagslegur styrkur
Frá héraðsþingi
Ungmennasambands
Skagafjarðar að Ket-
ilási 1970.
(Ljósm.: S. Geirdal)
SKINFAXI
25