Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.04.1970, Page 8

Skinfaxi - 01.04.1970, Page 8
an samhljóða áliti. Var tillaga laganefnd- ar samþykkt að viðhöfðu nafnakalli með 35 atkvæðum gegn 12 en með sam- þykktinni var þinginu eftirlátið að taka afstöðu til aðildar ÆSÍ að WAY og öðr- um samtökum. Er lagagreinin hafði verið afgreidd gerði foiTnaður ÆSI grein fyrir tillögu stjórnarinnar, en síðan flutti Geir Gunn- laugsson, fulltrúi Samtaka íslenzkra námsmanna erlendis, tillögu, sem gerði ráð fyrir úrsögn ÆSÍ úr WAY. Urðu mjög harðar umræður um tillöguna og var hún að loknum umræðum samþykkt með 28 atkvæðum gegn 14. Var viðhaft nafnakall. Það álit kom fram í ræðum margra þingfulltrúa, að íslenzk æska ætti að forðast þátttiiku í alþjóðasamtökunum WAY og WFDY, þar sem þau væru af- sprengi kalda stríðsins. Island ætti að sýna víðsýni, taka ekki þátt í togstreitu stórveldanna en hafa vinsamleg sam- skipti við erlend æskulýðssamtök á óháð- um jafnréttisgrundvelli. Bent var á í þessu sambandi, að í sumar verður hald- ið æskulýðsþing á vegum Sameinuðu þjóðanna og væri þar hægt að vinna já- kvætt að alþjóðamálum æskunnar. Jafn- framt kom fram á þinginu mikill áhugi fyrir að efla norrænt æskulýðssamstarf, eins og áður er getið. Fulltrúar UMFÍ töidu að hin ópóli- tísku æskulýðssamtök eigi vaxandi hlut- verki að gegna innan ÆSI, ekki aðeins hlutlausu sáttasemjarahlutverki heldur beinu forystuhlutverki. Getur það e.t.v. reynzt eina færa leiðin til þess að halda félagslegri einingu ÆSI á næstu árum. Sveinn Björnsson íþrótta- hátíð ÍSÍ í sumar í tilefni 50. íþróttaþings síns gegnst ÍSÍ fyrir fjölbreyttri íþráttahátíð í Reykjavík dagana 5.—11. júlí í sumar. Formaður framkvæmdanefndar hátíð- arinnar er Sveinn Björnsson en fram- kvæmdastjóri er Björn Vilmundarson. A hátíðinni verða bæði íþróttasýning- ar og íþróttakeppni. M.a. er íslandsmót- ið í judo svo og Íslandsglíman innlimað í hátíðina. Þá fer fram landskeppni í sundi við Irland og einn riðill bikar- keppni Evrópubikarkeppninnar í frjáls- íþróttum. Keppa þar Finnar, Belgíu- menn, Danir, írar og Islendingar. Gestir hátíðarinnar geta fengið að sjá flestar greinar íþrótta, ýmist í sýningum eða keppni. Utanhússmótið í handknatt- leik hefst 5. júlí og einnig sundknatt- leiksmeistaramótið og bikarkeppni KKÍ. I knattspyrnunni ber hæst landskeppni við Dani. Þá er gert ráð fyrir landskeppni í handknattleik við Færeyinga og í körfu- knattleik við Skota. Það verður því margt á dagskrá fyrir íþróttafólk og íþróttaunnendur, og von. andi geta sem flestir komið því við að njóta þess, sem íþróttahátíðin hefur að bjóða vikuna 5.—11. júlí. 8 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.