Skinfaxi - 01.04.1970, Qupperneq 26
fyrir sambandið, auk hins félagslega ávinn-
ings.
Sambandið er einnig aðili að ritun
Byggðasögu Húnvetninga og er nú unnið
að því verki.
Það sem er framundan hjá sambandinu í
sumar er einkum alhliða efling íþróttanna,
og er þá m.a. farið að hugsa fyrir undirbún-
ingi þátttöku í næsta landsmóti UMFÍ.
Nokkrar breytingar urðu á stjórn sam-
bandsins, en Ólafur B. Óskarsson formaður
og Heimir Ágústsson, gjaldkeri, gáfu ekki
kost á sér til endurkjörs sökum anna heima
fyrir.
Formaður Ungmennasambands Vestur-
Húnavatnssýslu var kosinn Sigurður Björns-
son, verzlunarmaður Hvammstanga. Aðrir í
stjórn eru: Gunnar Sæmundsson, gjaldkeri,
Þórður Hannesson, ritari, Böðvar Sigvalda-
son, varaformaður og Sigvaldi Sigurjóns-
son, meðstjórnandi.
Héraðsþing USAH var haldið þann 3. maí
sl. á Blónduósi. Formaður USAH, Magnús
Ólafsson, lagði fram ársskýrslu samtakanna
og ber hún vott um ágætt starf USAH á
liðnu starfsári. Umræður voru fjörugar á
þinginu og kom fram mikill áhugi fulltrú-
anna á aukinni starfsemi USAH á næsta
starfsári, einkum hvað snertir starfsíþróttir
og íþróttamál. Mikill hugur var í mönnum
að gera hlut USAH sem stærstan á næsta
Landsmóti. Stjórnarkjör fór sem hér segir:
Formaður: Magnús Ólafsson, Sveinsstöðum,
varaformaður: Jón Ingi Ingvarsson, Höfða-
kaupstað, gjaldkeri: Ottó Finnsson, Blöndu-
ósi, ritari: Jóhann Guðmundsson, Svínadal,
og meðstjórnandi Valur Snorrason, Blöndu-
ósi. Gestir þingsins voru þeir Gunnar
Sveinsson og Pálmi Gíslason frá UMFÍ.
Umf. Selfoss efndi til skíðagöngu á Sel-
fossi í byrjun marzmánaðar undir kjörorð-
inu „íþróttir fyrir alla“. Þetta var skemmti-
leg og góð nýbreytni í íþróttastarfinu.
Margir notuðu tækifærið og brugðu sér á
skíði og tóku þátt í göngunni. Undanfarar
voru þeir Brynleifur H. Steingrímsson
læknir og Helgi Björgvinsson, og lögðu þeir
brautina þannig, að allir gátu komizt leið-
ar sinanr í göngunni. Tvær leiðir var hægt
að velja; var sú lengri um 2500 metrar en
hin styttri um 1200 metrar. Alls gengu 31
og þar af voru nokkrar konur.
Hér á landi hefur verið allt of lítið af
slíkum íþróttamótum, þar sem keppikeflið
er fyrst og fremst að vera með í keppninni
og leysa þrautina. Það er vel að ungmenna-
félögin efli slíka starfsemi og veiti hsnni
forgöngu.
Daginn eftir skíðagönguna var svo þriðja
Grýlupottahlaupið á vetrinum, sem Umf.
Selfoss gengst fyrir, en í því keppa ungl-
ingar á aldrinum 8—14 ára í aldursflokk-
um. Að þessu sinni tóku 63 piltar og stúlk-
ur þátt í hlaupinu, og luku með sóma
„Grýluhringnum", þrátt fyrir þunga og erf-
iða færð í snjó og hálku. Seinna um daginn
var svo haldinn fjölmennur félagsfundur
þar sem fór fram hugvekja um íþróttir og
félagsmál og sýnd var landmótsmyndin í
litum frá Eiðum árið 1968, og að lokum var
öllum þeim er þátt tóku í hlaupinu og á
skíðunum veitt viðurkenning fyrir framlag
sitt. Á fundi þessum gengu 21 nýir félagar
í félagið.
26
SKIKFAXI