Skinfaxi - 01.10.1970, Blaðsíða 7
Síðar á fundinum skiluðu umræðu-
hópamir álitum um hin ýmsu mál og
urðu umræður miklar og líflegar. Yrði of
langt mál að rekja það allt hér, en helztu
ályktanir og niðurstöður fundarins eru
birtar hér í blaðinu.
Fundarfulltrúar þágu tvfvegis ágætar
kaffiveitingar UMFN og snæddu hádeg-
isverð í boði hreppsnefndar Njarðvíkur-
hrepps, sem sýndi samtökunum þann
sóma að koma öll ásamt sveitarstjóranum
tii málsverðarins. Undir borðum hlýddu
fundamienn á frásögn sveitarstjóra um
byggðarlagið og framkvæmdir þar. Síðan
voru skoðuð íþróttamannvirki og félags-
aðstaða í hreppnum, en hvort tveggja er
til fvrirmvndar í þessu sveitarfélagi.
Kvöldverð snæddu fulltrúar svo í boði
bæjarstjórnar nágrannabæjarins, Kefla-
víkur.
Fundinum lauk ekki fyrr en síðla
kvölds. Flutti formaður UMFÍ þá stutta
hvatningarræðu, þakkaði fundannönnum
ágætt starf og Ungmennafélagi Njarð-
víkur framúrskarandi góða fyrirgreiðslu
og móttökur.
Frjálsíþróttamenn, athugið!
í næsta hefti Skinfaxa verður birtur
fyrsti þátturinn í æfingaáætlun fyrir
frjálsíþróttamenn. Hér gefst einstaklega
gott tækifæri til markvissrar þjálfunar
fyrir þá, sem vilja æfa af kappi fyrir
landsmótið næsta sumar.
Guðmundur Þórarinsson hefur samið
þetta æfingakerfi, sem mun verða frjáls-
iþróttamönnum kærkomið, ekki sízt í
dreifþýlinu, þar sem erfitt er að koma
við skipulegri þjálfun hjá félögunum.
Komið, og undirbúið
þátttökuna vel!
í lok umræðna um landsmótið á sam-
bandsráðsfundinum bar Hafsteinn Þor-
valdsson fram tillögu, sem samþykkt var
samhljóða og er á þessa leið:
„17. sambandsráðsfundur UMFÍ hvet-
ur sambandsfélög UMFÍ til öflugrar
þátttöku í 14. landsmótinu á Sauðárkróki
sumarið 1971.
Sambandsaðilar leggi m. a. sérstaka
áherzlu á þessi atriði:
a. Þjálfun íþróttafólks með þátttöku í
landsmótinu í huga.
b. Unnið verði í tæka tíð að útvegun
samstæðra íþróttabúninga íþróttafólks
hvers aðila, svo og félagsmerkja og
burðarfána og reynt á allan hátt að
vanda sem bezt framkomu þátttöku-
aðila á mótinu.
c. Sambandsaðilar bregðist vel við til-
mælum um útvegun starfsmanna til
að starfa að framkvæmd íþróttakeppn-
innar á landsmótinu.
d. Sambandsfélagar geri sitt bezta til að
auglýsa landsmótið á sínu sambands-
svæði og skipuleggi hópferðir ung-
mennafélaga til mótsins, ef aðstæður
leyfa. Slíkar hópferðir verði undir ör-
ugri fararstjórn og á ábyrgð viðkom-
andi sambandsaðila.“
skinfaxi
7