Skinfaxi - 01.10.1970, Blaðsíða 9
úr í unglinga- og sumarbúðastarfi ung-
mennafélaganna.“
Sigurður rakti þá könnun, sem hann
hefur unnið að undanfarið á því hvert
hepjiilegast sé að beina heimsókninni
næsta sumar. Eru ýmis tækifæri í þeim
efnum, en ekkert endanlega af ráðið. Og
í því sambandi mælti hann:
„Við skulum þó gera okkur það ljóst,
að UMFI getur ekki haldið áfram á þeirri
braut að vera aðeins þiggjandi í sam-
skiptum sínum við erlend æskulýðsfélög.
Fari UMFÍ þess á leit við erlend félög að
þau taki á móti íþróttafólki eða ungling-
um og veiti þeim fyrirgreiðslu á erlendri
grund, þá verður UMFÍ að geta veitt
sams konar fyrirgreiðslu hér, sé þess ósk-
að. Á þeim grundvelli einum sæmir
UMFÍ að hafa samskipti við nágranna-
löndin.“
Um þetta mál lagði Sigurður Guð-
mundsson fram svofellda tillögu frá
þriðja umræðuhópi:
„Sambandsráðsfundur UMFÍ felur
sambandsstjórn að undirbúa utanför
íþróttafólks á sumri komanda. Felur
fundurinn stjórninni að semja við vænt-
anlega gestgjafa okkar um íþróttagreinar
og fjölda þátttakenda. Ennfremur er
stjórn UMFI falið að athuga með skipti-
heimsóknir ungs fólks í nánum tengslum
við íþróttanámskeið héraðssambandanna
víðs vegar um landið. Stefnt verði að því,
að bæði erlendum gestum og íslenzkum
verði kynnt land og þjóð í sambandi við
hverja heimsókn. Kostnaður fyrir þátt-
takendur verði greiddur af heimaaðilum
fin fararstjórn og undirbúningur af
UMFÍ.“
HAFSTEINN í
æskulýðsráð ríkisins
í næsta blaði Skinfaxa mun Hafsteinn
Þorvaldsson, formaður UMFÍ, skýra frá
hinni nýju löggjöf um æskulýðsmál, sem
alþingi samþykkti í aprílmánuði s.l.
Samkvæmt lögum þessum skal stofna
Æskulýðsráð ríkisins, og er það skipað
fimm mönnum. Menntamálaráðherra
skipar formann ráðsins án tilnefningar.
Þrir menn skulu tilnefndir af aðildar-
samtökum Æskulýðssambands íslands og
„öðrum hliðstæðum æskulýðssambönd-
um“. Einn maður skal tilnefndur af
Samb. ísl. sveitarfélaga. Sömu reglur
gilda um varamann. Skipunartími er tvö
ár.
Kosning fulltrúa æskulýðsfélaganna fór
fram á fulltrúafundi þeirra hinn 9. nóv-
ember 1970 undir stjórn ráðuneytisfull-
trúa. Kosnir voru: Hafsteinn Þorvaldsson
með 14 atkvæðum, Skúli Möller með 8
atkv. og Bernharður Guðmundsson með
8 atkv.
SKINFAXI
9