Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.10.1970, Síða 12

Skinfaxi - 01.10.1970, Síða 12
Hlutur knattleikja á landsmótum UMFÍ hefur stöðugt vaxið undanfarin ár. Myndin er tekin í fyrstu körfu- knattleikskeppninni, sem háð var á lands- móti, en það var á Laugarvatnsmótinu 1965. 4 Knattlið á landsmótunum Á sambandsráðsfundinum kom fram tillaga um að hafa fjögur lið í úrslitum knattleikja á landsmótinu. Fundarmenn voru á einu máli um að slík breyting væri til bóta, en töldu ekki fært að breyta þessu nú fyrir 14. landsmótið, þar sem forkeppninni væri lokið og hún miðuð við annað fvrirkomulag, þ. e. þriggja liða úrslit. Vildu fundarmenn að þessi breyt- ing næði fram að ganga að loknu 14. landsmótinu. Var samþykkt tillaga um að kjósa þriggja manna nefnd til að endur- skoða landsmótareglugerðina með þetta í huga, og skal nefndin skila tillögum sínum til stjórnar UMFI þremur mánuð- um fyrir næsta sambandsþing UMFI. I nefndina voru kosnir: Pálmi Gíslason, Sigurður Helgason og Guðmundur Snorrason. Miklar umræður urðu um 14. lands- mótið og hina ýmsu þætti þess. M. a. ræddi Guðmundur Snorrason um nauð- syn þess, að hópganga íþróttafólksins inn á íþróttasvæðið yrði sem glæsilegust. Einnig taldi hann æskilegt að UMFÍ léti semja sérstakt lag eða göngumars til að leika við þetta tækifæri. Nýtt íþróttablað Nýlega hóf göngu sina nýtt islenzkt íþróttablað, og ber það titilinn „íþróttir fyrir alla“. Ritstjóri og ábyrgðarmaður blaðsins er Ágúst Birgir Karlsson. í blað- inu eru greinar um hinar margvislegustu greinar íþrótta og útilífs, t. d. um hesta- mennsku, kappakstur og veiðiskap auk hinna sígildu íþróttagreina. 12 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.