Skinfaxi - 01.10.1970, Qupperneq 14
GAMLA-GRIPIÐ, hið venjulega eða öðru
nafni kveðjugripið, er það grip, sem langflest-
ir af beztu borðtennisleikurum Evrópu nota.
Flestir hafa einn fingur inn á spaðann, en
all margir hafa tvo.
truflandi áhrif á leikmennina. Bezt er að
sami litur sé allsstaðar í bakgrunninum
og eru dökkir litir beztir. Þakhæð þarf að
vera um 3 metrar og við keppni þarf leik-
svæðið utan borðsins að vera 14x6 metr-
ar. Við æfingar er hægt að notast við
svæði 8x4 m. að stærð.
Borðin eru oft samsett úr tveim lilut-
um og eru þá tengd í miðju. Auðveldar
slíkt uppsetningu þeirra og tilfærslur
allar, einkanlega þar sem nú eru fram-
leidd borð með innbyggðum hjólum, sem
hægt er að rúlla þeim á.
Leikvellinum — borðfletinum — er
skipt í tvo jafn stóra fleti af netinu, sem
er strengt þvert yfir borðið samsíða enda-
línunum í 137 cm. fjarlægð frá hvorri.
Netið á að vera, með festingunum, 183
cm. langt. Efri brún þess á allsstaðar að
vera í 15,25 cm. hæð yfir borðinu en
neðri brúnin á að vera þétt við borðflöt-
inn. Netið á að vera spennt á þráð, sem
haldið er uppi af 15,25 cm. háum stólp-
um yzt, sem liggja með ytri brún 15,25
cm. utan brúnar borðsins. Bezt er að
netið sé dökkgrænt með hvítri rönd efst,
en möskvar þess eiga að vera minnst 7,5
mm en mest 12,05 mm á hvern veg.
Knötturinn á að vera úr celluloid, hvít-
ur með mattri áferð og vera fullkomlega
hnöttóttur. Hann má ekki vera minni í
ummál en 11,43 cm og ekki stærri en
12,06, auk þess sem hann verður að vega
milli 2,40 og 2,53 grömm.
Spaðinn rná vera af hvaða stærð, lögun
og þyngd sem er, en flötur hans verður
að vera með dökkum, möttum lit. Blaðið
verður að vera úr tré, en á það má líma
slétt gúmmí, takkað gúmmí með takkana
hvort heldur menn óska, út eða inn, eða
svampgúmmí með öðru gúmmíi utan á.
Þykkt þess, sem á spaðann er límt, má í
mesta lagi verða 4 mm — límið meðtalið.
Það er algerlega bannað að hafa svamp-
gúmmíið yzt laga.
Leikið er í lotum og vinnur sá lotuna,
sem fyrri er að fá 21 stig, en fyrir hvem
unninn knött fæst 1 st. Þó getur leikmað-
ur ekki unnið lotu á 21 — 20, því í lok
venjulegs leiks skal munurinn vera
minnst 2 stig milli leikmanna. Því er
leiknum haldið áfram þar til annar leik-
maðurinn hefur sigrað með 22 — 20,
23 — 21 eða líkri tölu. Ef lotu er ekki
lokið eftir 15 mín. leik (sbr. nýjustu al-
þjóðareglur), hefst svonefnd höggataln-
ing. Sá sem hefur leikinn má ekki slá
knöttinn oftar en 12 sinnum eftir upp-
gjöfina, og hafi hann ekki unnið knöttinn
áður, vinnur mótherjinn stigið. Þegar
höggatalning er byrjuð skiptast leik-
mennirnir á um uppgjöf knattarins eftir
hvert stig. Þegar þessi regla hefur komið
til framkvæmda í leik, skulu allar lotur,
14
SKINFAXI