Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.10.1970, Page 25

Skinfaxi - 01.10.1970, Page 25
Landsmótið á Sauðárkróki: LIÐ UMSK Skinfaxi mun nú og framvegis kynna þau knattleikjalið, sem í forkeppninni hafa unnið sér rétt til þátttöku i úrslitum á 14. landsmótinu að sumri. Það er ekki að ófyrirsynju að við kynn- um hér fyrst knattspyrnulið Ungmenna- félagsins Breiðabliks í Kópavogi. Umf. Breiðablik sigraði með glæsibrag i 2. deild Knattspyrnumóts íslands í sumar og er fyrsta ungmennafélagið, sem kepp- ir í 1. deild. Lið Breiðabliks keppti fyrir hönd Ung- mennasambands Kj alarnesþings í knatt- spyrnuforkeppni landsmótsins og vann alla leiki sína með yfirburðum. Meistara- flokkur Breiðabliks hefur átt mjög sigur- sælan feril á þessu ári. Hann hófst með afmælisleik við íslandsmeistara ÍBK í tilefni 20 ára afmælis Breiðabliks í febrú- armánuði s. 1. Breiðablik sigraði 3:2 í afar skemmtilegum leik og var sigurinn verðskuldaður. Þetta var upphafið að nær óslitinni sigurgöngu allt keppnistímabilið. í 2. deild hlaut UBK 25 stig af 28 mögu- legum og skoraði samtals 36 mörk gegn 6. i’remri röð frá vinstri: Heiðar Breiðfjörð, Guðmundur H. Jónsson, Trausti Hallsteinsson, Gissur Guðmundsson, Bjarni Bjarnason, Gísli Sigurðsson, Daði E. Jónsson. — Aftari röð: I*ór Hreiðarsson, Magnús Steinþórsson, Ríkarð Jónsson, Helgi Helgason, Einar Þórhalls- son, Guðmundur Þórðarson, Haraldur Erlendsson. SKINFAXI 25

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.