Skinfaxi - 01.12.1971, Blaðsíða 3
SKINFAXI
Timarit Ungmennafélags íslands — LXII. árgangur — 6. hefti 1971 — Ritstjórl Eysteinn
Þorvaldsson — Út koma 6 hefti á ári hverju.
I-Ml im, |—. ■—i -----------
FÉLAGSMÁLAFRÆÐSLA
Stundum, þegar við, sem störfum að félags-
málum ungmennafélaganna í landinu, leyfum
okkur að staldra við og hugleiða hvar við
stöndum, hvernig gengið hafi .hingað til og
hvernig horfi fram á við, finnst okkur eins
og við stöndum í stað. Við rekum okkur stöð-
ugt á það geigvænlega vandamál, að -fslags-
legt uppeldi í londinu er svo vanrækt í fé-
lögum og skólum, að í verulegt óefni er
komið. Hér verður að spyrna við fótum og gera
róttækar breytingar á.
Varðandi skólana, þá þarf að halda nám-
skeið í félagsmálafræðslu fyrir starfandi kenn-
ara, koma inn á námsskrá kennaraskólanna
fræöslu um félagsmál og gefa út handbækur
fyrir kennara og námsbækur ásamt vinnubók-
um fyrir hin ýmsu stig skólakerfisins.
Rátt er að undirstrika það, að fjöjmargir
Þættir félagsmálafræðslu eru skyldunám í skól-
um samkvæmt námsskrá svo sem framsögn,
leiklist, söngur og dans, og klúbbstarfi, kvöld-
vökum og samkomuhaldi þarf að koma inn
sem föstum lið í skólastarfið.
En skólarnir eru þess alls vanmegnugir að
framkvæma þetta starf vegna fjárskorts, þekk-
ingarskorts kennara og vöntunar á handbókum
og kennslubókum.
Ungmennafélögin í landinu standa frammi
fyrir þeim vanda að taka við unglingunum frá
skólunum og gera þá að nýtum félögum. Þau
hafa rekið sig á að hér er erfitt verk að vinna,
þar sem undirstöðufræðsla er mjög af skorn-
um skammti og staðbundin.
Það var einmitt vegna þessara erfiðleika að
stjórn UMFÍ beitti sér fyrir stofnun Félags-
málaskóla UMFÍ, en hann hefur nú starfað í
tvö ár. Nú nýverið hefur stjórnin tekið mál
skólans mjög rækilega til meðferðar með það
fyrir augum að hann nái að virka til allra
ungmennafélga í landinu og þá sem miklu
hnitmiðaðri og víðtækari fræðslustofnun um
félagsmál en hingað til. Mjög gott samstarf
hefur verið við æskulýðsfulltrúa ríkisins um
þetta mál.
Það er stefna stjórnar UMFÍ að skólinn, með
þessu nýja námsefni, geti tekið að sér nám-
skeið víðs vegar um landið og með þvi hlúð
að og aukið félagsstarf, aukið fjölda félags-
leiðtoga og komið þannig til mós við hina
brýnu þörf, sem íslenzku þjóðinni er á að
þessu máli verði vel fylgt eftir.
Ég leyfi mér að skora á alla ungmennafé-
laga í landinu að standa saman um vöxt og
viðgang skólans, styðja hann og styrkja á
allan hátt, sækja hann eða senda aðra á nám-
skeið hans svo að sjá megi að ungmennafé-
lagar standi við kjörorð sín — ræktun lýðs og
lands — íslandi allt. Sig. R. Guðm.
SKINFAXI
3