Skinfaxi - 01.12.1971, Blaðsíða 22
ijiiimimmiiimiiiii
111111 ■ i ■ 11 ■ 111111
iiiiimiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiimimmiiimiiiiiimiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii
AUKIN TENGSL
UNGMENNAFÉLAGA
immmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmimmmmmmmmi mmmmmmmmmmmmmmmmm
Stjórn UMFÍ, sem öll var endurkjörin
á 27. sambandsþinginu, var fyrst kosin
fyrir tveimur árum. Allt frá þeim tíma
hefur stjórnin lagt mikla áherzlu á er-
indrekstur og aukin persónuleg tengsl
við sambandsaðila. Sambandsstjóri, aðrir
stjórnarmenn og framkvæmdastjóri hafa
á þessu tímabili heimsótt flestöll héraðs-
þing og auk þess tekizt á hendur lengri
og skemmri ferðir til að hjálpa til að
endurvekja starf, þar sem það hafði lagzt
niður. Þá hafa sambandsstjóri og fram-
kvæmdastjóri heimsótt og komið fram á
sumarhátíðum sambandsaðila allvíða.
Endurvakið hefur verið starf ung-
mennafélaganna í Vestur-Skaftafells-
sýslu, eitt samband er nú fyrir sýsluna
alla, Ungmennasamband Vestur-Skafta-
fellssýslu USVS. Þar hefur verið stofnað
nýtt félag í Vík í Mýrdal, er heitir Umf.
Drangur. Þá hefur einnig verið stofnað
eitt félag fyrir Skaftártungu og Álftaver.
Ungmenna- og íþróttasamband Vestur-
Barðstrendinga hefur verið endurvakið
og nefnist nú Héraðssambandið Hrafna-
Flóki,
Stjórn UMFI hefur með persónulegum
viðræðum gert ráðstafanir' til þess að
koma starfandi ungmennafélögum á fé-
lagssvæði Ungmennasambands Norður-
Breiðfirðinga í tengsl við næstu héraðs-
sambönd, með þeim árangri, að þau tvö
félög sem þar störfuðu hafa nú sameinast
Ungmennasambandi Dalamanna, og er
Nokkrir fundarmenn er
tóku þátt i fundi að
Hrífunesi, en þá voru
sameinuð ungmenna-
félögin 1 Skaftártungu
og í Álftaveri.
22
SKINFAXI