Skinfaxi - 01.12.1971, Qupperneq 7
sem félagar þeirra fóru í þær og hlupu
síðan til laugarinnar og syntu.
Kl. 9 hófust nefndarstörf og störfuðu
nefndir til hádegis, en þá bauð UMFÍ til
hádegisverðar. KI. 13 var þingfundi fram
haldið og nefndaálit tekin til umræðu.
Alyktanir, sem samþvkktar voru á þing-
inu, eru fjölmargar, og er þeirra helztu
getið hér í blaðinu og í næsta blaði.
M. a. lá fyrir þinginu til umræðna
reglugerð vegna 15. landsmóts UMFÍ,
sem háð verður 1974. Er hún nokkuð
með öðru sniði en fyrri reglugerðir og
gerir ráð fyrir verulegum breytingum
að ýmýsu leyti. Þingfulltrúar óskuðu eftir
betri tíma til að kynna sér reglugerðina.
V'ar lögð fram og samþykkt tillaga um
að næsta sambandsráðsfundi yrði falið
fullt umboð til að ganga frá reglum um
næsta landsmót UMFÍ.
Guðjón Ingimundarson form. Ung-
mennasambands Skagafjarðar kvaddi sér
hljóðs og flutti þakkir sínar og annarra
Skagfirðinga fyrir gott samstarf í sam-
bandi við landsmótið á Sauðárkróki í
sumar. Árnaði hann samtökunum heilla í
framtíðinni.
Viðurkenningar og kosningar-
Hafsteinn Þorvaldsson skýrði frá
tveimur veglegum verðlaunabikurum,
sem þeir Niels Ibsen og Jón Þorsteinsson
gáfu samtökunum, er þeir heimsóttu
landsmótið í sumar. Lýsti hann veitingu
bikaranna og var þessum viðurkenning-
um mjög vel tekið af þingheimi. Jóns
Þorsteinssonar-bikarinn skal veittur ein-
staklingi fyrir frábær störf að ungmenna-
félagsmálum. Bikarinn hlaut Brynjar
Halldórsson formaður Ungmennasam-
bands Norður-Þingeyinga fyrir frábær
störf að unglingamálum þar nyrðra. Ib-
Hin frækna boðsundssveit þingfulltrúa að
norðan og vestan. Sitjandi frá vinstri: Arn-
grímur Geirsson (HSÞ), Jón Ingvi Ingvars-
son (USAH), Sigurður Sigmundsson (UMSE)
og Sveinn Jónsson (UMSE). Standandi: Unn-
ar Þór Böðvarsson (Hrafna-Flóki), Birgir
Marinósson (UMSE), Matthías Ásgeirsson
(UMSB), og Þóroddur Jóhannsson (UMSE),
Óttar Geirsson (UMSB), Niels Á. Lund (UNÞ)
og Jón Guðbjörnsson (UMSB). (Ljósm. Sig.
Geirdal.)
sens-bikarinn er afhentur sambandsaðila
eða félagi fyrir verulegt átak og vaxandi
störf í þágu íþróttastarfseminnar. Bikar-
inn hlaut Ungmennasambandið Úlfljótur
fyrir stóraukið starf við erfiðar aðstæður
og fyrir prúðmannlega framgöngu
íþróttafólksins úr Austur-Skaftafellssýslu.
Þessu næst var gengið til kosninga.
Sveinn Jónsson formaður kjörnefndar
lýsti tillögum nefndarinnar. Voru þær
svohljóðandi:
Formaður: Hafsteinn Þorvaldsson.
Meðstj.: Gunnar Sveinsson, Sigurð-
ur Guðmundsson, Guðjón
Ingimundarson og Valdi-
mar Óskarsson.
SKINFAXI
7