Skinfaxi - 01.12.1971, Side 8
Hér eru þingfulltrúar á 27. sambandsþingi UMFÍ við anddyri Húnavallaskóla. (Ljósm. Sig.
Geirdal.)
Varastj.: Óskar Ágústsson, Pálmi
Gíslason og Sigurður
Helgason.
Endurskoð.: Kjartan Bergmann og
Gestur Guðmundsson.
Varaendursk.: Barði Þórhallsson, Kópa-
vogi, og Hjörtur Jóhanns-
son, Hveragerði.
Ekki komu aðrar tillögur og voru til-
lögur kjörnefndar samþykktar samhljóða.
Hafsteinn Þorvaldsson þakkaði traust,
sem sér væri sýnt með þessari kosningu.
Fulltrúum þakkaði hann góða þingsetu
og óskaði þeim og félögum þeirra góðs
gengis á komandi árum, og kvaðst hlakka
til samstarfs við þá- Gestgjöfum þakkaði
hann góðar móttökur.
Magnús Ólafsson, USAH, þakkaði
mönnum komuna og óskaði þeim góðrar
heimferðar.
Sigurður Guðmundsson þakkaði full-
trúum þingsetu og óskaði þeim góðrar
heimferðar. Síðan sagði hann 27. Sam-
bandsþingi UMFÍ slitið.
Ályktanir
frá þingi UMFÍ
Um æskulýðsmálalöggjöf
27. sambandsþing UMFÍ fagnar lögum
um æskulýðsmál frá 17. apríl 1970. Væntir
þingið mikils af samstarfi við æskulýðs-
fulltrúa ríkisins og að starfsemi Æsku-
lýðsráðs ríkisins verði til eflingar félags-
legs starfs ungmennafélaga í landinu.
Um sjálfstæðismál
27. sambandsþing UMFÍ haldið að
Húnavöllum dagana 30.—31. október 1971
hvetur Alþingi og alla íslendinga til sam-
stöðu í landhelgismálinu, einu mesta lifs-
hagsmunamáli íslenzku þjóðarinnar og
lýsir eindregnum stuðningi við málið.
27. sambandsþing UMFÍ ítrekar fyrri
samþykktir ungmennafélagshreyfingar-
innar um, að í landinu skuli ekki dvelja
erlendur her á friðartímum.
8
SKINFAXI