Skinfaxi - 01.12.1971, Blaðsíða 9
MIIMIIIMIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIMI MIIIIIIIIIIIIIMMIIIIIMIIMIIIIIIIIIIIIIIIimillMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIMIMIMIIIIMIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIMimiJ
: FÉLAGSMÁLASKÓLI |
: UMFl :
Framtíð
Félagsmálaskólans
MIIIIIMMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII.Illll IIIIIIIIII11111111111111111111111111111111111111111
Félagsmálaskóli UMFÍ og starfræksla
hans í framtíðinni hefur mjög verið til
umræðu innan samtakanna undailfarið.
Margir aðilar hafa sýnt áhuga á þessari
starfsemi og miklu fleiri umsóknir um
námskeið hafa borizt en nokkur tök hafa
verið á að sinna. Starfsemin hefur ekki
verið einskorðuð við ungmennafélög,
enda starfar skólinn á breiðum grundvelli
og takmark hans er að ná til sem flestra.
Forystumenn UMFÍ hafa kynnt > starf
félagsmálaskólans fyrir ýmsum aðilum
fræðslumála, m. a. menntamálaráðu-
neytinu. Starfstmi skólans hefur fengið
svo góðar og almennar undirtektir, að
nauðsynlegt er að honum verði gerð ný
starfskrá og fjárhagsgrundvöllur hans
tryggður.
Félagsmálaskólinn á sér ekki langa
sögu. Það var á 26. sambandsþinginu á
Laugum 1969 að samþykkt var svo-
hljóðandi tillaga:
26. sambandsing UMFÍ samþykkir að
UMFÍ hefjist þegar handa með athugun
á stofnun og starfrækslu félagsmálaskóla,
sem hafi það markmið að þjálfa unga
menn og konur til þess að taka að sér fé-
lagslega uppbyggingu meðal æskufólks í
landinu.
Að loknu þingi hóf stjórn UMFÍ þegar
í stað að fjalla um leiðir til þess að auka
félagsmálafræðslu á vegum samtakanna.
Eftir nokkra undirbúningsvinnu var skól-
an-jm sett reglugerð af stjóm UMFÍ, og
tók hún gildi 1. febrúar 1970.
Annáll skólans.
Fyrsti kennari Félagsmálaskólans var
ráðinn Sigurfinnur Sigurðsson frá Sel-
fossi, en hann tók einnig að sér ásamt
Hafsteini Þorvaldssyni að semja kennslu-
gögn fyrir skólann.
Skólinn hóf svo starfsemi sína með
námskeiði í íþróttaskóla Sig. Greipssonar
í Haukadal dagana 21. og 22. febrúar
1970. Þátttakendur voru 9 og kennarar
þeir Sigurfinnur Sigurðsson og Hafsteinn
Þorvaldsson.
Annað námskeið skólans hófst svo 23.
febrúar í félagsheimilinu Stapa í Ytri-
Njarðvík og sóttu það 24 félagar frá ung-
mennafélögunum á Suðurnesjum kennsla
fór fram eitt kvöld í viku og lauk nám-
skeiðinu 20. apríl. Kennarar á þessu
námsekiði voru Sigurfinnur Sigurðsson,
Hafsteinn Þorvaldsson og Sig. Geirdal.
Fleiri urðu námskeiðin ekki á fyrsta
starfsári skólans.
Annað starfsár hófst með þriðja nám-
skeiði skólans sem haldið var í Kennara-
skóla íslands og hófst 18. nóv. og stóð
fram á vor. Kennt var eitt kvöld í viku,
SKINFAXl
9