Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.06.1972, Qupperneq 3

Skinfaxi - 01.06.1972, Qupperneq 3
SKINFAXI í________________________ Tímarit Ungmennafélags Islands — LXIII. érgangur — 3. hefti 1972 — Ritstjórl Eysteinn Þorvaldsson — Út koma 6 hefti á ári hverju íslendingar viljum við allir vera Grunntónninn i starfsemi og lögum ung- mennafálaganna er þjóðernisstefna þeirra, og æðsta boðorð samtakanna er samkvæmt því, island allt. Ungmennafélögin leitast við, með allri starfsemi sinni, að gera menn og konur að betri þjóðfélagsþegnum, og í því skyni eru hugur og hönd þjálfuð í leik og starfi. I upphafi voru ungmennafélögin stofnuð til að gera stóra hluti, og forsenda og grundvöll- ur þess að árangur næðist var að það tækist að gera þjóðina að félagslegri einingu, að það tækist að kenna mönnum að vinna og berjast sem félagsleg heild. Skóli og ögun hafa ungmennafélögin því all'af verið þeim sem skipað hafa sér í virka sveit félags og forystumanna hreyfingarinnar víðsvegar um landið. Ástæðan fyrir því að ég vil gjarnan að menn hugleiði þessl mál nú, er sú að mér finnst blása byrlega fyrir þessari stefnu í dag, augu manna eru að opnaðst fyrir því hversu gott það er að vera Islendingur. Til marks um það vil ég nefna aukna umhyggju fyrir náltúru landsins og aukna viðurkenningu á gæðum þess, þá má hér einnig nefna órofa samstöðu Islendinga í landhelgismálinu. Baráttan við mengunina, landgræðslan, land- helgismálið og slík mál, sem eru hrein þjóð- ernisbarátta, eru vissulega mál ungmennafé- laganna, og við höfum að minu áliti liðið stjórnmálaflokkunum [ allt of ríkum mæli að ernoka vissa málaflokka, telja það sin mai og gefa í skyn að það eigi helzt ekki að ræða þau á öðrum vettvangi. í þessu samþandl er fróðlegt að velta fyrir sér þeim atþurðum, sem gerzt hafa í Noregi varðandi þjóðaratkvæðagreiðsluna um aðild- Noregs að Efnahagsbandalagi Evrópu. Noregs Ungdomslag sem eru samtök norsku ungmennafélaganna, taldi að hér væri á ferð- inni mál sem ungmennafélögum og þjóðern- isstefnu þeirra kæmi virkilega við, enda fór svo að Noregs Ungdomslag lýstl yfir andstöðu sinni við aðild Noregs að EBE og gekk fram fyrir skjöldu í þeirri baráttu sem háð var fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna. Sigur andstæðinga aðildar Noregs að EBE í þjóðaratkvæðagreiðslunni á naumast sinn líka í sögunni, sjómenn, bændur og æskufólk Noregs vann þarna sigur á stjórnmálaflokk- um, þingliði og ríkisstjórn, þrátt fyrir nær ótak- markað fjármagn, sem hinir siðartöldu höfðu í kosningabaráttunni. Þjóðernisstefna norsku ungmennafélaganna vann þarna sinn stærsta sigur á síðustu áratugum. Ég óska norskum félögum okkar til ham- ingju með sigurinn. Ég valdi þessu greinarkorni sem yfirskrift kjörorð þeirra Fjölnismanna „fslendingar vilj- um við allir vera,“ það á við um alla sanna ungmennafélaga, og ég veit að þeir eru enn sem fyrr reiðubúnir að leggja nokkuð á sig til þess að vinna í anda þjóðernisstefnu ung- mennafélaganna. Islandi allt. S. G.

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.