Skinfaxi - 01.06.1972, Page 6
F imleikaheimsókn
frá Danmörku
Ðagana 29. júlí til 7. ágúst dvöldust
hér á landi góðir gestir á vegum UMFÍ.
Þessir gestir voru fimleikamenn og kon-
ur frá Vestur-Jótlandi, eða nánar tiltek-
ið frá Holstebro og nágrenni. í Holste-
bro fór einmitt síðasta landsmót dönsku
ungmennafélaganna fram, og það mót
sótti fjölmennur hópur frá UMFÍ, svo
sem Skinnfaxi hefur áður greint frá. Má
því segja að þessi heimsókn Dananna
sé ávöxtur af þeim kynnum og vináttu
sem skapaðist milli DDGU og UMFÍ í
Holstebro 1970.
Fimleikaflokkurinn kom frá héraðs-
sambandi, sem heitir Holstebroegnens
Hovekreds for Gymnastik og Ungdoms-
foreninger og samanstendur af 34 fim-
leika- íþrótta- og ungmennafélögum,
sem hafa samtals innan sinna vébanda
5800 starfandi félaga. Þessi félög leggja
stund á margskonar íþróttir s. s. knatt-
leiki allskonar, badminton, frjálsíþrótt-
ir, sund og þjóðdansa auk margskonar
klúbba og fundastarfsemi. 21 af þessum
félögum leggja stund á fimleika, og var
flokkurinn sem heimsótti ísland úrval
úr öllum þessum félögum.
Alls héldu Danimir 7 sýningar hér á
landi, tvær í Hafnarfirði og síðan á Ak-
ureyri, Húsavík, Vaglaskógi og tvær í
Húsafelli, tóku sýningarnar um fimm
stundarfjórðunga og fóru 45 mín. í sjálfa
fimleikana og 30 mín í sýningu á þjóð-
dönsum. Hvarvetna fékk fimleikafólkið
frábærlega góðar móttökur, enda var
sýning þeirra bæði í senn glæsileg
íþróttasýning og glettin og vinaleg sam-
verustund með ungu fólki sem geislaði
af gleði yfir viðfangsefni sínu, svo að
áhorfendur heilluðust og smituðust af
kátínunni sem ríkti í flokknum, og má
víst raunar segja það sama um alla sem
kynntust þessum káta og samstillta hóp.
Fararstjóri Dananna var góðkunningi
okkar frá Holstebro, Hans Jörgen Lörup
en hann var einnig þjálfari piltanna;
þjálfari stúlknanna var Anna Nörrgárd.
Fylgisveinar fimleikahópsins af hálfu
UMFI voru þeir Hafsteinn Þorvaldsson
og Sigurður Geirdal, en þeir höfðu
einnig undirbúið komu Dananna og
skipulagt ferð þeirra hér innanlands.
Var víða farið og margt var það sem
Dönum þótti nýstárlegt, og hrikalegt
þótti þeim landið, en það skyldi engan
undra sem hefur séð blessaða flatneskj-
una þeirra heima.
Of langt mál yrði það, að segja ferða-
sögu hópsins hér um landið, en einu
viljum við ekki gleyma, og það er að
koma á framfæri kveðjum frá Dönun-
um og þökkum frá þeim og UMFÍ til
6
SKINFAXi