Skinfaxi - 01.06.1972, Blaðsíða 10
U ngmennaf élagsstarf
á tvennum tímum
Rætt við Jón Stefánsson á Dalvík
í 50 ára afmælishófi UMSE í vor voru
tveir af eldri ungmennafélögum í Eyja-
firði heiðraðir með starfsmerki UMFÍ
fyrir langt og heilladrjúgt starf í þágu
ungmennafélaganna. Annar þessara fé-
laga er Jón Stefánsson útgerðarmaður á
Dalvík.
Jón er ættaður úr Svarfaðardal og hef-
ur verið ungmennafélagi frá því á æsku-
áruin. Hann var aðeins 13 ára gamah
þegar hann fór að stunda sjósókn og
það gerði hann lengi en sinnti jafnan
hugðarefnum ungmennafélaganna ef
tómstundir gáfust í landi. Á seinni ár-
um hefur Jón oft sést á íþróttamótum
í fylgd ungs fólks úr Eyjafirði. Hann
hefur verið stoð þess og stytta, og ungu
íþróttafólki er það mikill styrkur að eiga
slíkan stuðningsmann. Af þessum ástæð-
um spyrjum við Jón fyrst hvað honum
finnist um áhugamál ungafólksins.
— Ég hef haft mikla ánægju af jwí
að starfa með krökkunum sem áhuga
hafa, en því miður er áhugi unglinga á
íþróttum ekki nógu almennur.
— Hvað veldur?
— Þetta er að mörgu leyti skiljanleg
þróun. Áhugi á félagsstarfi var tiltölu-
lega meiri áður fyrr, þar sem ekki var
að annarri tómstundaiðju að hverfa. Nú
er margt komið til sögunnar sem keppir
um hylli unglinganna og glepur fyrir
þeim. Ég held líka að bóknámið í skól-
unum taki svo mikið af tíma ungling-
anna að þeir telji sig ekki komast yfir
meira. Iþróttaæfingar þyrftu að vera
meiri í skólunum og þó sérstaklega fjöl-
breyttari en nú er. Þýðing líkamlegrar
þjálfunar fyrir allt nám og andleg störf
er vanmetin. Gott dæmi um það eru
skákmeistaramir, sem eru að keppa um
heimsmeistaratitilinn. Þeir leggja báðir
kapp á líkamsæfingar og íþróttir til þess
að geta hugsað skýrar og teflt betur.
— Eru unglingar ekki blátt áfram
latari en áður var?
— Það má orða það svo, þótt auðvit-
að sé það afleiðing breyttra tíma. 5
kílómetra hérna frammi í dalnum var
byggð fyrsta yfirbyggða sundlaugin í
10
SKINFAXI