Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.06.1972, Page 12

Skinfaxi - 01.06.1972, Page 12
Ungmennafélögin eru vettvangur fyrir alla Rætt við Þórodd Jóhannsson framkvæmdastjóra UMSE Ungmennasamband Eyjafjarðar hefur haft framkvæmdastjóra í hálfu starfi síðan 1964. Sá maður sem gengt hefur því starfi æ síðan er Þóroddur Jóhanns- son. Hann er gjörkunnugur málum ung- mennafélaganna, hann var sjálfur for- maður UMSE 1957—1963 og var um langt skeið fjölhæfur keppnismaður í íþróttum. Við spyrjum Þórodd fyrst í hverju starf hans sé aðallega fólgið. — Það er auðvitað að sjá um allan daglegan rekstur sambandsins, en þar eru íþróttamálin langstærsti þátturinn, þ. e. undirbúningur og skipulagning æf- inga og íþróttamóta af ýmsu tagi, ung- mennabúða o. fl. Við útvegum kennara og leiðbeinendur til flestra sambandsfé- laganna á sumrin, en víða eru líka sjálf- boðaliðar sem leiðbeina í sínum ung- mennafélögum. í sveitunum er erfitt að halda uppi íþróttaæfingum á veturna vegna fámennis, en við leitumst við að fá skólastjóra og kennara í barna- og unglingaskólunum til samstarfs. í vetur verður t. d. reynt að koma á glímu- kennslu í skólum. — Hvaða íþróttamót eru helzt í hér- aðinu? — Árlega eru haldin héraðsmót í frjálsum íþróttum, knattspyrnu, sundi, handknattleik kvenna, skíðaíþróttum, bridge og skák og stundum í glímu. Þá eru haldin sérstök héraðsmót í frjálsum íþróttum fyrir konur og fyrir drengi. Auk þess eru ýmis konar mót önnur á dagskránni, svo sem keppni við HSÞ, og lið frá UMSE taka þátt í Norðurlands- móti í frjálsum íþróttum, sundi og knatt- spyrnu. Knattspyrnulið UMSE keppir líka í 3ju deild íslandsmótsins. — Hvernig er félagslífið í héraðinu? — Það er misjafnlega þróttmikið í hinum ýmsu félögum en víða gott. Varðandi skemmtanahald fer það í vöxt að halda skemmtanir fyrir heimamenn á öllum aldri, en ekki opinbera dansleiki. Skemmtiefni er þá allt heimabúið, og hefur þetta gefizt mjög vel. Héraðssambandið gengst árlega fyr- 12 SKINFAXI

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.