Skinfaxi - 01.06.1972, Blaðsíða 16
íþróttamót Andrésar andar
Glæsilegur árangur
íslenzku barnanna
Fjögur íslenzk börn, 11 og 12 ára tóku
þátt í hinu stóra frjálsíþróttamóti barna,
sem kennt er við Andrés önd og haldið
er í Kongsberg í Noregi.
Fararstjóri hins tápmikla íslenzka
hóps var Sigurður Helgason, en hann
hefur beitt sér fyrir íslenzkri þátttöku í
þessu móti. Sigurður tjáði Skinfaxa að
mót þetta væri mjög vel skipulagt og
vel framkvæmt í alla staði. Aðstæður
væru góðar þar ytra og mikið gert til að
örva áhuga og ánægju barnanna. Þetta
er í 5. sinn sem slíkir leikar eru háðir.
Þátttakendur voru 450, langflestir frá
Noregi, en auk þess er boðið fjórum
börnum frá hverju hinna Norðurland-
anna. Erlendu þátttakendumir eru vald-
Guðmundur Geirdal sigrar með yfirburðum i
sinum riðli i 600 m. hlaupi, og hvergi sést til
næstu manna. (Ljósm. Sig Helgason).
ir á úrtökumótum, eins og kunnugt er
hér á landi. Sænsku þátttakendurnir
voru t. d. valdir úr 20 þúsund keppend-
um, þannig að þama keppir stranglega
valið úrvalslið.
Norðmenn hafa frá upphafi sigrað í
öllum greinum leikanna þar til núna að
íslenzku bömin mfu þá sigurgöngu
rækilega og hrifsuðu til sín þrenn gull-
verðlaun og ein silfurverðlaun. Árangur
allra íslenzku barnanna var með ágæt-
um, en sérstaka athygli vekur þó ein-
stæð frammistaða 11 ára gamallar stúlku
úr Kópavogi, Ástu B. Gunnlaugsdóttur,
en hún sigraði með yfirburðum í báðum
þeim greinum sem hún keppti í, 60 m.
hlaupi og 600 m. hlaupi. Guðmundur
Geirdal, sem einnig er úr Kópavogi,
hlaut gullverðlaun í 600 m. hlaupi 12
ára pilta, en annar piltur hlaut sama
tíma og Guðmundur. Sá hljóp ekki í
sama riðli og Guðmundur, en í 600 m.
hlaupinu var tími látinn ráða. I 60 m.
voru hins vegar hlaupnar undanrásir,
milliriðlar og undanúrslit, og Guðmund-
ur varð 5. í 60 m. hlaupi. Súsanna Torfa-
dóttir frá Hala í Suðursveit hlaut silfur-
verðlaun í kúluvarpi 12 ára telpna og
Unnar Vilhjálmsson frá Reykholti í
Borgarfirði varð fjórði í kúluvarpi 11 ára
pilta.
16
SKINFAXI