Skinfaxi - 01.08.1972, Síða 3
SKINFAXI
Tímarit Ungmennafélags íslands — LXIII. érgangur — 4. hefti 1972 — Ritstjóri Eysteinn
Þorvaldsson — Út koma 6 hefti á ári hverju
Átak í félagsmálafræðslu
Lokið er fyrsta námskeiði, sem Æskulýðs-
ráð ríkisins gengst fyrir í samráði við UMFÍ
og ÍSÍ, til þess að mennta fólk til að stjórna
félagsmálanámskeiðum og kenna á þeim.
Æskulýðsráð ríkisins á heiður skilinn fyrir
forgöngu í þessu máli, og æskulýðsfulltrúi
ríkisins, Reynir Karlsson, hefur unnið mjög
giftudrjúgt starf í sambandi við þetta miál.
Það er sérstakt ánægjuefni fyrir ungmenna-
félaga að þetta námskeið skyldi komast á
fót, því ungmennafélögin hafa undanfarið
lagt mikla áherzlu á að auka félagsmálastarfið
og hvers konar fræðslu um félagsstarf. í þessu
skyni stofnaði UMFÍ félagsmálaskóla sinn, sem
haldið hefur allmörg námskeið á undanförn-
um árum. Sú starfsemi kom að góðu gagni við
undirbúnings leiðbeinendanámskeiðsins að
Leirá, en UMFÍ vann ásamt ÆRR að því að
útbúa kennslugögn og námsefni námskeiðs-
ins. Þessari starfsemi þarf að halda áfram.
Ýmsu þarf að auka við félagsmálaþátt leið-
beinendafræðslunnar, og sem fyrst þarf að
vera hægt að halda námskeið þar sem lögð
verður höfuðáherzla á íþróttaleiðbeinenda-
nám.
Það var ánægjulegt að sjá hversu ung-
mennafélagar fjölmenntu á þetta námskeið að
Leirá, og stjórn UMFl’ hafði hvatt mjög til þess.
Þess er að vænta, að námskeiðið verði til að
efla til muna félagsstarfið á ýmsum sviðum
um landa allt. Ætlunin er að halda áfram að
endurbæta námsefnið, þannig að það verði
með límanum handhæg og nytsöm handbók
við félagsstarf í ungmenna- og íþróttafélög-
um. Samstarf og kynning þátttakenda frá hin-
um ýmsu landshlutum stuðlar líka að sam-
heldni og samskiptum æskufólks um allt land.
Jafnframt mun UMFÍ leggja áherzlu á að
efla starf síns eigin félagsmálaskóla, enda
hafa honum bætzt góðir starfskraftar eftir
námskeiðið að Leirá.
H. Þ.
SKINFAXI
3