Skinfaxi - 01.08.1972, Side 12
Knattspyrnukappinn
Þegar litið er yfir síðasta áratug ensku
knattspyrnunnar, þá fer ekki á milli mála,
hvaða knattspyrnumaður á þar lengsta
og bezta afreksferilinn. Það er Bobby
Charlton, sem frá unglingsárunum hefur
leikið með Manchester United og lengi
verið fyrirliði liðsins. Þótt liðið megi nú
muna sinn fífil fegri, eru vinsældir þess
enn miklar. Manchester United hefur
„Það var ég liafði hárið“, getur Bobby (til
hægri) sagt. Hér er hann á tali við Busby
(með staf), skömmu eftir flugslysið við
Miinchen.
ekki aðeins orðið Englandsmeistari held-
ur líka Evrópumeistari, og máttarstoðin
í þessari velgengni liðsins var Bobby
Chralton. Hann er nú 35 ára og er enn
í fullu fjöri, enda þótt hann leiki ekki í
öllum leikjum liðsins á yfirstandandi
keppnistímabili.
Matt Busby, framkvæmdastjóri Mansh.
Utd., segir að Charlton sé sending af
himnum ofan, og flestir knattspyrnuunn-
endur geta víst tekið undir þá fullyrð-
ingu hans að Bobby sé vinsælasti knatt-
spyrnumaðurinn.
Charlton hefur skorað á annað hundr-
að mörk með liði sínu, og hann segir að
það hvarfli ekki að sér að hætta að keppa
í knattspyrnu fyrr en eftir nokkur ár.
Bobby Charlton er ættaður frá Ash-
ington á Norðymbralandi, og hann var
aðeins 16 ára gamall, þegar Busby komst
á snoðir um að þarna væri efnilegur
sveitamaður á ferðinni. Siðan hefur
Bobby verið með Manchester United í
19 ár samfleitt, og ásamt félögum sínum
hefur hann unnið heimsbikarkeppnina,
Evrópubikarkeppnina, FA-bikarkeppnina
og ensku deildarkeppnina. Hann hefur
verið krjörinn knattspyrnumaður ársins
bæði á Englandi og í Evrópu sem heild,
12
SKINFAX!