Skinfaxi - 01.08.1972, Blaðsíða 13
og í landsleikjum og alþjóðamótum hef-
ur hann skorað fleiri mörk en nokkur
annar Englendingur.
Það er athyglisvert og óvenjulegt að
slíkur sóknarmaður skuli líka vera þekkt-
astur allra fyrir prúðmennsku og drengi-
legan leik, en einmitt það er lykillinn að
hinum miklu vinsældum Charltons.
Charlton standa til boða mörg tilboð um
vel launaða atvinnu í viðskipta- og at-
vinnulífi, en hann hefur vísað slíku frá
sér og kveðst vilja vera knattspymunni
tnir. Charlton segist gjarnan horfa á
keppni annarra liða, einkum Liverpool
og Stoke. Það er til marks um htillæti
hans, að hann segist jafnan geta lært af
því að horfa á leiki annarra.
Busby hefur sagt um Charlton, að
hann sé ímynd hins sanna íþrótta-
manns, sem allir íþróttaleiðtogar óski að
eiga sér að liðsmönnum. Hann mæti
hverju sem er með fullkomnu æðruleysi,
aldrei séu nein vandræði í kringum hann
Bobby Charlton afhendir íslenzkum drengj-
um verSlaun á Laugardalsvellinum í sumar
að lokinni úrslitakeppni i Ford-knattþrauta-
keppninni.
Gamla kempan i skotstuði. Á annað hundrað
mörk fyrir Manchester United.
og alltaf sé hann boðinn og búinn að
hjálpa öðrum og bæta liðsandann.
Manchester United varð fyrir miklu
áfalli í flugslysi við Múnchen í Þýzka-
landi árið 1958, er liðið var í keppnisferð.
Þar fórust 8 af leikmönnum liðsins og
auk þess þrír forystumenn og 8 íþrótta-
fréttaritarar. Meðal þeirra sem komust
af voru Bobby Charlton og þjálfarinn
Matt Busbv.
J
í vor fengu íslendingar tækifæri til að
sjá Charlton, en hann kom hingað til
lands til að afhenda verðlaun í hinni
svonefndu Ford-keppni, en það er aldurs-
flokkakeppni í knattþrautum fyrir drengi
fædda 1959—1964.
SKINFAXI
13