Skinfaxi - 01.08.1972, Síða 14
Nýjar íþróttagreinar
og aukin félagsstörf
Sigurður Skarphéðinsson form. UMSK
Eitt af þeim héraðssamböndum sem
eiga merkisafmæli á þessu ári, er Ung-
mennasamband Kjalamesþings, sem á
fimmtugsafmæh. í tilefni þess áttum við
stutt samtal við Sigurð Skarphéðinsson,
formann UMSK. Við spyrjum hann fyrst
hvað UMSK-fólk geri til hátíðabrigða.
— Héraðsmót okkar í öllum greinum
eru sérstök afmælismót í ár í tilefni af-
mælis UMSK. Einnig leggjum við á-
herzhi á að reyna að efla íþróttaiðkanir
og íþróttaaðstöðu á sambandssvæðinu. A
50. ársþingi UMSK 18.—19. nóvember
verður afmælisins líka minnzt og af-
mælishóf haldið. I ár héldum við héraðs-
mót í tveim nýjum íþróttagreinum innan
sambandsins, borðtennis og badminton.
— Batnar ekki aðstaða ykkar við fram-
kvæmdirnar að Varmá í Mosfellssveit?
— Jú, það er von okkar að þar rísi
iþróttamiðstöð fyrir sambandssvæðið, og
við höfum fengið stuðning sveitaryfir-
valda til þess. Næsta sumar verður að-
staða þar orðin mjög góð, og hún verður
enn betri, þegar reist hefur verið íþrótta-
Sigurður Skarphéðinsson, form. UMSK, á-
samt frjálsiþróttastúlkum með sérverðlaun
fyrir frjálsar iþróttir á landsmótinu 1971.
14
SKINFAXI