Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.06.1973, Blaðsíða 23

Skinfaxi - 01.06.1973, Blaðsíða 23
Frá starfi ungmennafélaganna ^1111111111111111,................ 11111 ■ 11111111111111111 |l 1111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111 ■ I ■ 11111111111111111111111111 ■> 111111 ■ 11 • • U ■ 1111111131 Héraðsþing HVÍ 59.unda héraðsþing Héraðssambands Vestur-ísfirðinga var háð í Barnaskól- anum á Suðureyri við Súgandafjörð 31. hiaí s. 1. Fulltrúar voru mættir úr öllum félögum sambandsins, en þau eru á, einn- ig sátu þingið sem gestir Sigurður Geir- dal framkv.stj. UMFÍ og Guðmundur Gislason framkv.stj. UMSK. Formaður HVÍ, Björn Sigurbjörnsson, setti þingið um kl. 10.30 og bauð fulltrúa °g gesti velkomna, síðan tilnefndi hann Tómas Jónsson, skólastjóra Þingeyri, sem þingforseta og Valdimar Gíslason hrepp- stjóra Mýrum Dýrafirði, sem þingritara til aðstoðar ritara sambandsins. For- hiaðurinn flutti skýrslu stjórnarinnar °g ræddi m. a. um Héraðsmót HVÍ, sem háð var að Núpsskóla 22. og 23. júli 1972, eftir að það hafði legið lengi niðri. Taldi þ^nn, að möguleikar fyrir eflingu íþrótta- °§ félagsmála væru góðar á svæðinu á komandi tímum. Bergur Torfason, gjaldkeri HVÍ, skýrði feikninga og kom þar fram að töluverður halli varð á framkvæmd héraðsmótsins og síðasta starfsárs. Páll Pálsson, ritari HVÍ, sagði frá starfi hinna ýmsu félaga og benti á að félag- starfið færi ört vaxandi í flestum félög- unum. Skýrslur stjórnarinnar lágu fjöl- ritaðar frammi fyrir þinginu ásamt ýms- um upplýsingum um starf sambandsins og frammistöðu íþróttamanna þess. Sigurður Geirdal framkv.stj. UMFÍ ræddi tengsl UMFÍ og hinna einstöku sambanda og félaga og minnti á ýmislegt gagn sem UMFÍ getur gert aðilum úti um land. Guðmundur Gíslason framk.stj. UMSK flutti erindi um uppbyggingu félagsmála- starfs almennt og um skipulagningarmál íþrótta- og ungmennahreyfingarinnar og fjármál þessu lútandi. Þinginu barst bréf frá Emil Hjartar- syni, skólastjóra á Flateyri, þar sem Emil býður sambandinu að gjöf verðlauna- grip, sem keppt sé um i flokki sveina og sé til handa stigahæsta félagi í þeim aldursflokki. Er þetta í tilefni þess, að liðin eru 20 ár siðan Emil keppti fyrst á Héraðsmóti HVÍ. Umræður voru um hin ýmsu mál í- þróttanna og samþykkti þingið ýmsar tillögur til eflingar iþróttastarfsemi sambandssvæðisins. Má þar nefna: und- irbúning þátttöku HVÍ í sambandi við SKINFAXI 23

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.