Skinfaxi - 01.06.1973, Blaðsíða 27
nefndum svo og einstökum fulltrúum
samþykktar á þinginu.
í stjórn HSS fyrir næsta ár voru kosn-
ir: Ingimar Elíasson, Framnesi, formað-
ur; Þorbjörn Bjarnason, Lyngholti, vara-
formaður; Pálmi Sigurðsson, Klúku, rit-
ari; Bragi Guðmundsson, Heydalsá, gjal-
keri og Gunnlaugur Bjarnason, Hólma-
yik, meðstjórnandi.
Fjórar nefndir starfa á vegum sam-
bandsins: Fjáröflunarnefnd, frjálsí-
þróttanefnd, sundnefnd og knattspyrnu-
hefnd. Aðildarfélögin tilnefna fulltrúa í
hefndirnar.
Ársþing
USAH
Fimmtugasta og sjötta ársþing Ung-
hiennasambands Austur-Húnvetninga var
haldið i félagsheimilinu Fellsborg á
Skagaströnd laugardaginn 5. maí síðast-
hðinn.
Til þingsins komu fulltrúar frá átta
aðildarfélögum sambandsins.
í skýrslu stjórnar kom fram, að fjár-
hagur sambandsins var góður á árinu og
var það aðallega að þakka góðri aðsókn
að Húnavöku og spilakeppni sambands-
ins.
Gestir þingsins voru þeir Hafsteinn
Þorvaldsson, formaður UMFÍ, Sigurður
Geirdal, framkvæmdastjóri UMFÍ og
Guðmundur Gíslason, framkvæmdastjóri
UMSK. Greindu þeir þingfulltrúum frá
ýmsum málum varðandi ungmennafé-
lagshreyfinguna.
Á þinginu var samþykkt tillaga þess
efnis að ráða framkvæmdastjóra i „hálft
starf“ til sambandsins.
Stefán Á. Jónsson og Ottó Finnsson
voru sæmdir starfsmerki UMFÍ, og einnig
var Ottó gerður að heiðursfélaga Ung-
mennasamndas Austur-Húnvetninga fyr-
ir vel unnin störf i þágu ungmennafélags-
hreyfingarinnar.
Lárus Guðmundsson var kjörinn í-
þróttamaður ársins, en það er í fyrsta
sinn, sem það er gert hjá sambandinu.
Úr stjórn áttu að ganga Jóhann Guð-
mundsson og Ottó Finnsson. Var Jóhann
endurkjörinn, en Ottó gaf ekki kost á
sér til endurkjörs. í stað hans var kjör-
inn Skarphéðinn Einarsson.
Þulltrúar á héraðsþingi
USAH á Skagaströnd.
SKINFAXI
27