Skinfaxi - 01.06.1973, Blaðsíða 4
Styðjið UMFÍ
Hér fara á eftir tvær af samþykktum
sambandsþings UMFÍ varðandi fjármál:
I.
28. sambandsþing UMFÍ, haldið í
Haukadal ályktar að stóraukin starf-
semi frjálsrar félagshreyfingar vítt um
land sé tryggasti grundvöllur fyrir lífs-
hamingju fólksins og þannig verði stuðl-
að að jafnvægi í byggð landsins. Skorar
þingið því á fjárveitingavaldið að gefa
þessari starfsemi nánari gaum og grund-
valla slíka starfsemi með auknum fjár-
veitingum. Þingið skorar á Alþingi að
auka þegar á næsta ári verulega fjár-
veitingar til UMFÍ og minnir á þá stað-
reynd að á fjárlögum hefur UMFÍ engan
styik til íþróttastarfsemi sinnar.
II.
28. sambandsþing UMFÍ samþykkir að
þakka Alþingi þá fjárveitingu í fjárlögum
1973, sem veitt var íþróttasjóði til þess
að greiða ógreidd framlög sjóðsins til
þeirra, sem á undanförnum árum hafa
reist íþróttamannvirki. í framhaldi af
þessari lagfæringu fjárhags sjóðsins á-
lyktar þingið að eigi hann að ná til-
gangi sínum þá verði sjóðurinn að vera
þess megnugur að geta hafið þegar árið
1974 greiðslur samkvæmt fyrirfram gerðri
áætlun til þeirra, sem búa við hálfgerð
mannvirki eða eru að hefja framkvæmd-
ir.
FORSÍÐUMYNDIN
er að þessu sinni ekki alveg ný. En hún
sýnir körfuknattleiksmenn Umf. Skalla-
gríms í 1. deildar-baráttunni í fyrra sem
þeir að vísu töpuðu, En nú eru þeir aft-
ur komnir í 1. deild.
Borgnesingar í 1. deild
Ungmennafélagið Skallagrímur i Borg-
arnesi vann sigur i keppni 2. deildar í
körfuknattleik í ár, og leikur þvi aftur í
1. deild eftir aðeins eins árs dvöl í 2.
deild.
Borgnesingarnir unnu íþróttafélag MA
i úrslitaleik með 64:59 i tvísýnum og
skemmtilegum leik, en Borgnesingarnir
voru því greinilega sterkari aðilinn.
Við óskum UMFS til hamingju með
sigurinn og heilla i baráttunni næsta vet-
ur.
Hlutu starfsmerki
Þessir tveir húnvetnsku ungmennafélagar
voru sæmdir starfsmcrki UMFÍ á héraðsþingi
USAH í vor. Þeir eru Ottó Finnsson (t. v.) og
Stefán Á Jónsson.
4
SKINFAXI